Skyldi vera eitthvað í því?

Venjulega eru þriggjavikna spár evrópureikninmiðstöðvarinnar heldur loðnar og óljósar. Nú bregður svo við að sýnd er nokkuð eindregin spá.

w-blogg061117a

Spáð er miklum hæðarhrygg í háloftum yfir Grænlandi og háþrýstingi hér á landi, meginlægðir langt undan. Kortið sýnir meðalsjávarmálsþrýsting og vik frá meðaltali dagana 20. til 26. nóvember, ekki í þessari viku, ekki í þeirri næstu, heldur í þarnæstu. Það væri sannarlega vel af sér vikið hjá reiknimiðstöðinni ef þessi spá rættist. 

En við verðum auðvitað löngu búin að gleyma henni þegar þessi framtíðarvika líður hjá - og kannski bara eins gott. Svo getur ýmis konar veður leynst á bakvið meðaltalið - jafnvel þó spáin rættist í aðalatriðum. 

Svo segir reiknimiðstöðin að vikan þar á eftir verði líka með svipuðu lagi. Venjulegt fólk (eins og ritstjóri hungurdiska) þarf ekki mikið á framtíðarspám af þessu tagi að halda - en þær eru mjög gagnlegar fyrir stóraðgerðir af ýmsu tagi - svo og fjárhættuspilara í kauphöllum nútímans, þeirra sem gera út á veðurafleiðuviðskipti (eins og það heitir víst). Alls konar ósómi og afbrigðilegheit geta fylgt miklum fyrirstöðum í vestanvindabeltinu sem gott er að frétta af með fyrirvara (sé það hægt). 


Af illviðrinu

Mikil snerpa var í landsynningsillviðri dagsins, hlutfall stöðva þar sem vindhraði fór í stormstyrk eða meira var 32 prósent. Meðalvindhraði í byggðum landsins var þó ekki sérlega hár, veðrinu mjög misskipt (enda varla búið að ná hámarki víða fyrir norðan og austan þegar þetta er skrifað). Á fáeinum stöðvum varð vindhraði mjög mikill - óvenjumikill - og mældist fárviðri á 13 stöðvum, þar af 3 í byggð (við Hafnarfjall, á Þyrli í Hvalfirði og á Hólmsheiði ofan Reykjavíkur). Vindhviður fóru í meir en 60 m/s þar sem mest var, undir Hafnarfjalli (64,9 m/s, á Miðfitjahól á Skarðsheiði, (63,6 m/s) og á Botnsheiði (61,5 m/s). 

Ársvindhraðamet (10-mínútna meðaltal 30,9 m/s) var sett á Skrauthólum á Kjalarnesi, en það kemur nokkuð á óvart hvað hviðuhlutfallið þar var lágt, mesta hviða „aðeins“ 40,5 m/s - en staðurinn alræmdur fyrir mun meiri hviður - en vindáttin var um 120 gráður, mestu hviðurnar gerir þar gjarnan í austlægari áttum. Sjálfvirk stöð hefur verið á Skrauthólum frá 2001. 

Mánaðarvindhraðamet voru slegin á allmörgum stöðvum. Nefna má staði þar sem athugað hefur verið frá því fyrir aldamót, Bláfjöll, Reykjanesbraut, Veiðivatnahraun, við Hafnarfjall og á Kleifaheiði. Vindhraði náði ekki stormstyrk á Veðurstofutúni (18,4 m/s) en aftur á móti gerði hann það á flugvellinum (25,0 m/s). 

Tveir síðustu dagar hafa verið fremur kaldir á landinu - meðalhiti í byggð rétt undir frostmarki. Það er hins vegar langt í frá óalgengt á þessum árstíma. 


Bloggfærslur 6. nóvember 2017

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 107
  • Sl. sólarhring: 110
  • Sl. viku: 1856
  • Frá upphafi: 2348734

Annað

  • Innlit í dag: 97
  • Innlit sl. viku: 1627
  • Gestir í dag: 88
  • IP-tölur í dag: 88

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband