Hvernig miđar haustinu?

Fyrir nokkrum árum (2014) velti ritstjóri hungurdiska haustkomu fyrir sér - og ritađi um í nokkrum pistlum. Hćgt er ađ skilgreina haustkomu á fjölmarga vegu. Einn ţeirra möguleika sem ritstjórinn nefndi var ađ nota međalhita í byggđum landsins til ađ skilgreina haustdaga - og telja ţá síđan.

Í tilraunaskyni stakk ritstjórinn upp á 7,5 stigum sem viđmiđi. Dagur telst haustdagur sé međalhiti sólarhringsins í byggđum landsins neđan ţess. Ţađ gefur auga leiđ ađ slíkir dagar koma á stangli allt sumariđ - án ţess ađ komiđ sé haust, en ţegar á líđur ţéttast ţeir smám saman. En svo munar auđvitađ töluverđu hvort međalhitinn er t.d. 7,4 stig eđa 3,0 stig. Fimm dagar međ međalhita 7,4 stig eru varla jafngildir fimm dögum međ međalhita 3,0 stig. Ţeir síđarnefndu eru mun haustlegri.

Hentugast ţótti ţví ađ skilgreina einskonar „haustsummu“. Reiknađ var hversu langt hiti hvers dags vćri neđan 7,5 stiga og síđan lagt saman. Eftir nokkrar vangaveltur (sem lesa má um í fornum hungurdiskapistli) ţótti hentugt ađ segja haust komiđ (eđa skolliđ á) ţegar haustsumman nćđi 30 stigum. Til ađ ná ţeirri tölu ţarf ađeins fjóra daga međ hita viđ frostmark, en 12 daga međ međalhita 5,0 stig. 

Ađ međaltali fer haustsumman í 30 stig 18. september - og 100 stig 12. október. Á ţessu hefur reynst nokkur tímabilamunur - og mikil áraskipti. 

En hvernig standa málin nú, 11. október?

w-blogg111017a

Súlurnar sýna haustdagafjölda fyrir 11. október ár hvert. Seinni árin er fjöldi sjálfvirka og mannađa kerfisins borinn saman - og viđ sjáum ađ samrćmiđ er gott. Í ár (2017) eru haustdagarnir orđnir 12 - einum fleiri en var í fyrra - langoftast eru ţeir orđnir á milli 20 og 30 á ţessum tíma - viđ sjáum reyndar ađ ástandiđ á tímabilinu frá 1962 og fram yfir 1990 var talsvert annađ en algengast hefur veriđ hin síđari ár. 

w-blogg111017b

Síđari myndin sýnir stöđu haustsummunnar 11. október hvert ár. Haustiđ er langoftast komiđ - en fáein ár skera sig ţó úr, summan nú er t.d. ađeins komin í 16,3 stig, var 16,4 á sama tíma í fyrra. Hún var einnig lág um ţetta leyti 2001 og 2002 og líka sérlega lág árin 1958, 1959, 1960 og 1961. 

Ţessar tölur segja auđvitađ lítiđ um framhaldiđ - hér eingöngu settar fram til gamans fyrir nördin og ţá ađra sem vilja af einhverjum ástćđum ná hvíld frá dćgurţrasinu. 


Bloggfćrslur 11. október 2017

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 18
  • Sl. sólarhring: 67
  • Sl. viku: 416
  • Frá upphafi: 2343329

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 374
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband