Tólfmánaðameðalhitinn - staðan um þessar mundir

Við lítum nú rétt einu sinni á stöðu tólfmánaðameðalhitans í Reykjavík. Tíminn líður og líður.

Hiti í Reykjavík 12- og 120-mánaða keðjumeðaltöl

Þessi mynd nær rétt rúm 20 ár aftur í tímann. Ártölin eru sett við lok almanaksárs (janúar til desember). Grái ferillinn sýnir 12-mánaða meðaltölin (12 á ári). Lóðrétti kvarðinn markar hitann. Á þessum 20 árum hefur 12-mánaðahitinn sveiflast frá 4,33 stigum upp í 6,61. Hámarkinu náði hann í september 2002 til ágúst 2003. Upp á síðkastið hefur hann einnig verið í hæstu hæðum, komst í 6,38 stig í mars 2016 til febrúar 2017 og í 6,37 í júní 2016 til maí 2017. Nú í júlílok var hann í 6,21 stigi. Það er líklegt að hann lækki heldur í haust og vetur því hitinn í október 2016 var með þvílíkum ólíkindum að varla er við því að búast að komandi október eigi nokkurn möguleika í að slá hann út. 

Rauði ferillinn á myndinni sýnir 120-mánaða meðaltalið (10 ár). Sá ferill er að sjálfsögðu mun jafnari en er lítillega lægri nú en hann var hæstur fyrir 5 árum, ekki munar þó nema 0,13 stigum á stöðunni nú og þá. 

Næsta mynd sýnir mun lengra tímabil. Þar er 120-mánaðahitinn grár, en rauði ferillinn sýnir 360-mánaðameðaltalið (30 ár).

120- og 360-mánaða keðjumeðaltöl hita í Reykjavík

Greinilega má sjá hversu óvenjulega tíma við höfum lifað að undanförnu. 120-mánaðahitinn hefur nú lengi verið langt ofan við það sem best gerðist á tuttugustualdarhlýskeiðinu og 360-mánaðahitinn nýlega kominn upp fyrir það, fór í fyrsta sinn yfir 5 stig í lok árs 2016. Hann hækkar ekki mikið á þessu ári vegna þess að árið 1987 var fremur hlýtt en þar á eftir komu fjölmörg mjög köld ár og því er góður möguleiki á frekari hækkun 360-mánaðahitans á næstu árum svo fremi sem ekki kólni niður fyrir meðaltal þeirra köldu ára. Allt ofan við það hækkar 360-mánaðahitann. 

Sú spurning vaknar hversu langt sé síðan 360-mánaðahitinn hefur verið jafnhár eða hærri í Reykjavík. Ritstjóri hungurdiska treystir sér ekki til að svara því svo vel sé. Það er hins vegar líklegt að ekki sé alveg jafnlangt síðan 120-mánaðahitinn hefur verið jafnhár eða hærri en nú (hvenær sem það annars hefur verið). 

En auðvitað segja þessar myndir ekkert um framhaldið - þær sýna fortíðina. En þungi löngu meðaltalanna er þó mikill. Stærsta sveifla 12-mánaðahitans sem við þekkjum í Reykjavík var frá því í september 1880 þegar hann stóð í 5,55 stigum og var hrapaður niður í 2,08 stig í ágústlok árið eftir. Ef sú atburðarás endurtæki sig nú (varla líklegt) myndi 120-mánaðahitinn ekki lækka nema um 0,3 stig og 360-mánaðahitinn um tæplega 0,1 stig á 12 mánuðum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefurðu séð þessa framsetningu?

https://www.flickr.com/photos/150411108@N06/35471910724/

Matthias (IP-tala skráð) 7.8.2017 kl. 09:43

2 identicon

Það er alltaf gaman að geta glatt sig við gamlar minningar og betri tíma svo sem fyrir 5-15 árum þegar hitinn var í hæstum hæðum hér á landi.
Síðan þá hefur hins vegar kólnað eins og við höfum upplifað annaðhvort ár síðan: 2013, 2015 og nú aftur 2017 eins og allt stefnir í.
Fróðlegt var að sjá hjá þér Trausti spána næstu 10 daga (6.-16. ágúst) þar sem líkur eru á 2-3 stiga lægri meðalhita en meðalhitinn hefur verið síðustu 10 ára eða svo.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 7.8.2017 kl. 13:31

3 identicon

Mjög fróðlegt. Staðfestir þetta ekki enn og aftur að hitinn er í hæstu hæðum og mjög nálægt metárunum fyrir 13-14 árum eða svo. Veit því ekki hvað þú Torfi ert að tala um. Vissulega koma köld ár eða svalari inn á milli en fólki á suðvestur horninu hættir til að jafna allt við metgóðviðrissumrin á fyrsta áratug þessarar aldar. Jafnvel bestu sumarseríur frá landnámi í þeim landshluta. Ef rætt er við fólk t.a.m. á Norðausturlandi er bara allt annað upp á teningnum. Norðaustanáttin sem var ríkjandi að sumarlagi svo árum skipti eftir 2000 var ekki eins gjöful á sól og blíðviðri svo vikum skipti í þeim landshluta og hafa því síðustu sumur verið að jafnaði ekki síðri en sumrin fyrir 10-15 árum. Kannski slær þó ekkert út sumarið 2004, a.m.k. á mínum slóðum á Norðurlandi. Árin í heild hafa jú verið misjöfn en ég man varla eins mildan vetur, bæði hvaða varðar hita og vind eða vindleysi, eins og sl. vetur, jafnvel ekki síðri en bestu vetur eftir 2000 sem voru alveg einstakir nokkrir í röð vel að merkja. 

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 10.8.2017 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 52
  • Sl. sólarhring: 123
  • Sl. viku: 1801
  • Frá upphafi: 2348679

Annað

  • Innlit í dag: 48
  • Innlit sl. viku: 1578
  • Gestir í dag: 48
  • IP-tölur í dag: 48

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband