Tíðnidreifing júlíhita í Reykjavík og breytingar á henni

Hér verður litið á tíðnidreifingu sólarhringsmeðalhita í Reykjavík í júlí á ýmsum tímabilum og velt vöngum yfir breytingum. Breytileiki hita frá degi til dags er minni að sumarlagi heldur en á öðrum árstímum - en samt finnum við mjög greinilega fyrir honum. 

Við teygjum okkur nokkuð langt í þessum pistli. Töluverð óvissa er í hitamælingum frá fyrri tíð - mánaðameðalhiti er þó öllu betur negldur niður en meðalhiti einstakra daga. En við látum okkur hafa það - skemmtunar og fróðleiks vegna. 

Fyrst skulum við líta á meðalhita júlímánaðar í Reykjavík - nokkur ár á bilinu 1854 til 1865 eru þó nánast skáldskapur sem og tölur frá því fyrir 1820. Engin dægurmeðaltöl eru til frá þessum skáldaárum og koma þau því ekki við sögu í þessum pistli nema á þessari einu mynd. 

w-blogg150717aa

Mislöng köld og hlý tímabil skiptast á með nokkuð áberandi hætti. Heildarleitni er ekki mikil. Stærð hennar er mjög háð vali á byrjunartíma - við gætum komið því þannig fyrir að hún reiknist veruleg. 

Hver sem nú reiknuð leitni annars er fer þó varla á milli mála að minna hefur hlýnað í júlí en í flestum öðrum mánuðum ársins. Það væri gagnlegt að vita með vissu hvers vegna það er svo en varla samt tilviljun að hér er um þann mánuð ársins að ræða þar sem landið og sól ráða tiltölulega meiru um veður heldur en flutningur lofts um langar leiðir. Reykjavík er auk þess betur varin fyrir áhrifum kaldsjávar og hafíss heldur en flestir aðrir landshlutar. 

Á myndinni hefur árabilið 1949 til 2016 verið afmarkað sérstaklega, en það er efni næstu myndar. 

w-blogg150717a

Hún sýnir hvernig júlísólarhringsmeðalhitinn féll á kvarðann á þessu árabili (bláar súlur). Hér er talið þannig að talan 10 vísar til alls bilsins frá og með 10 stigum að 11. Kaldasti júlídagur þessa tímabils var sá 23. árið 1963, sólarhringsmeðalhitinn ekki nema 5,8 stig. Sá hlýjasti var sá 31. árið 1980, meðalhiti 19,2 stig. Meðalhiti júlímánaðar alls á þessu tímabili er 11,1 stig. Taka má eftir því að nærri helming daga (46 prósent) er meðalhitinn annað hvort 10 eða 11 stig og fjóra daga af hverjum fimm er hann frá 9 stigum upp að 13. - aðeins tíundihver dagur er kaldari og tíundihver hlýrri. 

Af fyrri myndinni sjáum við að júlímánuðir þessara ára spanna mjög breitt bil, á það falla bæði mjög kaldir og hlýir mánuðir. 

Til gamans má líka sjá á myndinni sömu dreifingu - sé meðalhiti 2 stigum hærri, væri þá 13,1 stig en ekki 11,1. Skyldi þetta geta orðið venjulegt í framtíðinni? Hvað sem annars má um það segja er nokkuð ljóst að langt verður þangað til 70 ára meðaltal júlíhita nær 13,1 stigi. Enginn mánuður fortíðar hefur enn með vissu náð slíkum hæðum - tveir, 1991 og 2010 komust að vísu nærri því - meðalhitinn í þeim báðum var 13,0 stig. Svo reiknast meðalhiti í júlí 1829 13,6 stig - en trúlega er það of há tala miðað við staðalaðstæður mælinga nú, 13,0 stig sem reiknast meðalhiti júlí 1838 er heldur trúlegri. 

Næst skulum við bera saman þrjú tímabil. Í fyrsta lagi öllum daglegum meðaltölum sem við eigum frá Reykjavík á 19. öld, í öðru lagi lítum við á hlýja tímann frá 1927 til 1960 og að lokum á tímabilið 1997 til 2016. 

w-blogg150717b

Bláu súlurnar sýna 19. öldina, þær brúnu hlýskeiðið gamla og þær grænu nýja hlýskeiðið - sem enn stendur. Töluverður munur kemur fram á tímabilunum. Á 19. öld var meðalhiti undir 10 stigum 35 prósent daga, 16 prósent á gamla hlýskeiðinu, en ekki nema 12 prósent á því nýja. 

Á 19. öld var meðalhiti meiri en 14 stig um það bil 20. hvern dag (5 prósent), á gamla hlýskeiðinu líka um 5 prósent, en um 8 prósent á nýja hlýskeiðinu. 

Þennan mun sjáum við betur á næstu tveimur myndum.

w-blogg150717c

Hér má sjá tíðnimun hita á 19. öld og á nýja hlýskeiðinu. Skiptin eru við 11 stig. Dögum hlýrri en það hefur fjölgað að mun, en þeim kaldari fækkað að sama skapi. Fjöldi mjög hlýrra daga hefur nánast ekkert breyst - þeir hafa alltaf verið sárafáir og tilviljanakenndir. Kaldasti júlídagur sem við vitum um í Reykjavík á 19. öld var sá 6. árið 1840, meðalhiti 4,1 stig, en sá hlýjasti var sá 19. árið 1842, meðalhiti 18,6 stig, ámóta hlýtt var daginn áður og sömuleiðis 2. júlí 1894. 

Minni munur er á hlýskeiðunum tveimur, því gamla og nýja.

w-blogg150717d

Hér eru skiptin við 12 stigin. Er þetta hin hnattræna hlýnun? Kaldasti júlídagur gamla hlýskeiðsins var sá 1. 1954, þá var meðalhitinn 6,5 stig. Sá hlýjasti var sá 21. árið 1944, meðalhiti 17,8 stig. Á nýja hlýskeiðinu er kaldasti júlídagurinn sá 23. árið 1998, meðalhiti 7,2 stig, en sá hlýjasti sá 30. árið 2008, meðalhiti 17,5 stig. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Í hvert sinn sem fréttaþulur kemur með óbeina fullyrðingu um hnattræna hlýnun, fæ ég hroll. Þegar ég horfi á fræðimenn velta sér upp úr tölum án fullyrðinga, opnast skilningarvitin. Þessi fyrirfram ákveðnu tímabil sem notast er við þegar reiknuð er út hlýnun eða kólnun er umhugsunarefni fyrir fræðaheiminn. Vísindamenn verða að miðla upplýsingum til almennings, það er óumdeilt. Fróðlegt væri að lesa söguna eftir 300 ár, þegar fræðaheimurinn hefur úr mun meiri og áreiðanlegri gögnum að moða, um ástandið á 20. og 21. öldinni.

Nema gögnin frá þeim tíma dæmd séu ónothæf.

Umhugsunarverður pistill Trausti.

Sindri Karl Sigurðsson, 16.7.2017 kl. 00:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 113
  • Sl. viku: 1513
  • Frá upphafi: 2348758

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1319
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband