Eiginlega án fyrirsagnar

Sökum flutninga og breytinga á ritstjórnarskrifstofum hungurdiska er nokkur hiksti í framleiđslunni ţessa dagana. Lesendur beđnir velvirđingar á ţví ástandi (sem vonandi lýkur einhvern tíma). 

Á ţessum árstíma er mjög hlýtt í Pakistan og á Indlandi - á Indlandi er hlýjasti tími ársins venjulega rétt áđur en sumarmonsúninn nćr undirtökunum. Hlýindi ţessi sjást mjög vel á korti dagsins sem bandaríska veđurstofan sýnir okkur. Útlínur Suđur-Asíu ćttu ađ sjást ef vel er ađ gáđ. 

w-blogg280517a

Ţađ er á vorin sem vestanvindabeltiđ yfirgefur Himalajafjöll og Tíbet - hörfar til norđurs og hitabeltiđ sćkir til norđurs. Á milli beltanna tveggja ríkir mikiđ niđurstreymi og verđur veđrahvolfiđ mjög hlýtt. Meginland Asíu nćr ađeins ađ snúa upp á hringrásina ţannig ađ á Indlandi og ţar austan viđ nćr vindur ađ blása af hafi - um síđir - og hitabeltisregniđ nćr ţangađ - en vestar sleppir niđurstreymiđ ekki völdum sínum.

En hér er ţykktin meiri en 5940 metrar ţar sem mest er - dćgurhámörk geta ţá fariđ í 45 til 50 stig, jafnvel rúmlega ţađ - ţrátt fyrir gríđarlegt varmatap í heiđríkju yfir ţurri jörđ ađ nćturlagi - eins gott ađ búa ekki viđ örstuttar nćtur undir slíkri ofurţykkt. 

Rauđa örin bendir á hitabeltislćgđ á Bengalflóa - slíkar lćgđir ţekkjast á kortum sem ţessum sem litlir hringlaga blettir ţar sem ţykktin er meiri heldur en umhverfis. Í blettunum er ţykktinni haldiđ uppi međ dulvarmalosun og miklu úrfelli. 

Everestfarar nýta sér tímann á milli vestanvinda og monsúns, ţá eru skárri líkur á sćmilegu veđri en áđur og eftir. - Annars mun ţađ nokkuđ misjafnt hvenćr best er ađ reyna göngur á fjöllin á ţessum slóđum - vestar - ţar sem áhrif monsúnsins eru minni en viđ Everest kvu oftast vera beđiđ lengur fram á sumariđ. Minnir t.d. ađ K2-farar reyni helst í júlílok. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 113
  • Sl. viku: 1513
  • Frá upphafi: 2348758

Annađ

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1319
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband