Á Reykjanesbrautinni í dag, 28. apríl

Skörp skil lágu yfir landinu suđvestanverđu í dag - og hreyfđust nokkuđ fram og aftur. Um tíma lágu ţau á milli veđurstöđvanna á Strandarheiđi (Reykjanesbraut er stöđin kölluđ) og Straumsvíkur. Viđ skulum kíkja á mynd sem sýnir hitamćlingar á stöđvunum á 10-mínútna fresti frá kl. 8 í morgun til kl. 19.

w-blogg280417a

Blái ferillinn sýnir hita í Straumsvík, sá rauđi hita á Strandarheiđi og sá grćni hitamun stöđvanna tveggja. 

Hiti var svipađur á stöđvunum báđum fram undir hádegi, ţó kólnađi nokkuđ snögglega á Strandarheiđinni um hálftólfleytiđ - og um kl. 14 á báđum stöđvum hafđi hiti falliđ um nćr 5 stig frá ţví sem mest var í morgun. Síđan breytist hiti lítiđ á Strandarheiđinni, en hlýnar lítillega viđ Straumsvík. Um kl.16 hlýnađi ţar hins vegar snögglega um 3,9 stig á 10 mínútum - og síđan kólnađi aftur enn sneggra um kl. 18, ţá um -5,8 stig á 10 mínútum. 

Mismunur hita stöđvanna varđ mestur 7,6 stig. 

Í gćr (27. apríl) féll hiti um 6,8 stig á innan viđ klukkustund í Reykjavík. Ţetta ţykir meira ađ segja mikil ţriggja stunda breyting ţar um slóđir. Í gögnum sjálfvirku stöđvarinnar sem nú ná til um 20 ára fannst ađeins eitt eldra tilvik annađ međ jafnsnöggu falli á Veđurstofutúni. Ţađ var 19. febrúar 2004. Í dag (28. apríl) varđ mesta hitastökk á stöđinni 6,9 stig. 

Í gćr voru hitastökk 6,7 stig eđa meira á 5 stöđvum (viđ Veđurstofuna, í Geldinganesi, viđ Korpu, á Ţyrli í Hvalfirđi og á Haugi í Miđfirđi). Mest varđ ţađ á Haugi, 7,7 stig - ţar kom aukahlýindatoppur í sunnanáttinni rétt á undan skilunum.

Í dag hefur ţegar ţetta er skrifađ frést af stökkum upp á 6,7 stig eđa meira á fjórum stöđvum (viđ Veđurstofuna, viđ Korpu, í Geldinganesi og á Hellu). Hugsanlega skila sér fleiri stökk áđur en dagurinn er allur (nú er klukkan rúmlega 19). 

Á sumum veđurstöđvum eru svona hitastökk miklum mun algengari heldur en viđ Veđurstofuna, t.d. má telja yfir 50 tilvik viđ Korpu á síđustu tuttugu árum (ýmist upp eđa niđur), mest 9,9 stig. Ritstjóri hungurdiska skrifađi einhvern tíma um hitastökk bćđi innan klukkustundar og sólarhrings á ţessum vettvangi - kannski rétt ađ fara ađ rifja ţađ upp.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

ţađ vćri aldeilis skemmtilegt ef ţú rifjađir ţađ upp.

Helga Kristjánsdóttir, 28.4.2017 kl. 23:23

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 113
  • Sl. sólarhring: 235
  • Sl. viku: 2355
  • Frá upphafi: 2348582

Annađ

  • Innlit í dag: 100
  • Innlit sl. viku: 2063
  • Gestir í dag: 90
  • IP-tölur í dag: 90

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband