Af dćgurmetauppskeru ársins 2016

Ritstjóri hungurdiska er enn ađ gera upp áriđ 2016 - í ţetta sinn er ţađ dćgurmetauppskeran. - Ţetta verđur ađ teljast nokkuđ nördalegt - og ađ miklu leyti endurtekiđ úr pistli sem birtist 21. janúar 2016 - en látum ţađ fljóta - tölur eru nýjar - og munur mikill á niđurstöđum áranna.

Í fréttum ađ utan er oft gert talsvert úr svonefndum dćgurmetum - hćsta eđa lćgsta hita sem mćlst hefur á einhverri veđurstöđ ákveđinn dag ársins. Ein og sér segja ţessi met lítiđ - en geta samt faliđ í sér skemmtileg tíđindi. Nú, hafi veriđ mćlt mjög lengi á stöđinni verđa ţessi tíđindi eftirtektarverđari. Svipađ má segja um mjög miklar metahrinur - daga ţegar dćgurmet falla um stóra hluta landsins.

Talning leiđir í ljós ađ alls féllu 4347 hámarksdćgurmet á almennu sjálfvirku stöđvunum hér á landi á árinu 2016 - séu ţćr stöđvar sem athugađ hafa í 5 ár eđa meira ađeins taldar međ. Lágmarksmetin urđu hins vegar ađeins 1871. Hlutfall hámarks- og lágmarksmeta mjög ólíkt ţví sem var áriđ 2015. Ţetta hlutfall hlýtur ađ segja okkur eitthvađ? Rétt rúmlega 60 ţúsund dćgurmet hvorrar tegundar eru skráđ alls á tímabilinu frá 1996 til 2016. - Ţađ sem flćkir máliđ er ađ stöđvum hefur fjölgađ - en viđ sjáum samt ađ hámarksmetin eru fleiri en búast hefđi mátt viđ - ef metafalliđ vćri alveg óháđ frá stöđ til stöđvar - og í tíma. Lágmarksmetin voru aftur á móti öllu fćrri 2016.

Áriđ var enda eitt ţađ hlýjasta á öllu tímabilinu.

Lítum nú á línurit sem sýnir hlutfall hámarksdćgurmeta af heildinni frá ári til árs.

w-blogg310117a

Ađeins ţarf ađ doka viđ til ađ skilja myndina - lárétti ásinn sýnir ár tímabilsins. Lóđrétti ásinn til hćgri sýnir landsmeđalhita, ţađ gerir rauđstrikađa línan einnig. Hlýjust eru árin 2003, 2014 og nýliđiđ ár, en 2015 hins vegar ámóta kalt og árin fyrir aldamót.

Lóđrétti ásinn til vinstri sýnir hlut hámarksdćgurmeta af summu útgildametanna (hámarks og lágmarks). Hlutur lágmarksmetanna fćst međ ţví ađ draga frá einum.

Viđ sjáum ađ allgott samband er á milli hámarksmetahlutarins og landsmeđalhitans. Hámarkshitametin eru líklega fleiri ţegar almennt er hlýtt í veđri.

Eftir ţví sem árunum fjölgar verđur erfiđara ađ slá metin 60 ţúsund. Ţrátt fyrir ţađ er á ţennan hátt hćgt ađ fylgjast međ veđurfarsbreytingum. Skyndileg breyting á veđurlagi á hvorn veg sem er - nú eđa í átt til öfga á báđa bóga kćmi fram viđ samanburđ viđ hegđan metanna síđastliđin 20 ár. - En ţví nenna nú fáir nema útnörd - eins og ritstjóri hungurdiska - varla ađ slíkt eftirlit verđi í forgangi hjá ţví opinbera (ţrátt fyrir tal um veđurfarsbreytingar).

Viđ skulum líka líta á línurit sem sýnir samband hámarksmetahlutarins og landsmeđalhitans. 

w-blogg310117b

Lárétti ásinn markar hámarksmetahlutinn, en sá lóđrétti međalhitann. Punktadreifin rađast vel og reglulega í kringum beina línu - ţví fleiri sem hámarkshitametin eru miđađ viđ ţau köldu, ţví hlýrra er áriđ. Fylgnistuđull er 0,91. En viđ skulum ekki venja okkur á ađ líta alveg hugsunarlaust á dreifirit sem ţetta - athugum t.d. ađ hlutur hámarksmeta getur ekki orđiđ hćrri en 1,0. Skyldi áriđ ţegar landsmeđalhiti nćr 6,14 stigum verđa algjörlega lágmarksmetalaust? - eđa áriđ ţegar landsmeđalhitinn fellur niđur í 2,6 stig - skyldu ţá nákvćmlega engin hámarkshitamet verđa sett? - 

Viđ ţurfum ekki ađ fara lengra aftur í tímann en til 1983 til ađ finna lćgri landsmeđalhita en 2,6 stig - og áriđ 1979 var hann ekki nema 1,8 stig. - Ţađ var ábyggilega ekki mikiđ um hámarkshitamet ţessi ár. 

En fleira nördalegt kemur fram í metaskránum. Hvađa daga féllu flest dćgurmet? Viđ skulum svara ţví - forvitnin krefst ţess. - Í ljós kemur ađ dagarnir sem voru efstir á ţessum listum í pistlinum í fyrra (2015) misstu báđir hluta sinna meta til almanaksbrćđra ársins 2016 og féllu ţar međ af stalli. - Ađrir dagar hafa tekiđ viđ á toppnum.

Flest hámarksdćgurmet féllu samtímis á jóladag áriđ 2005, á 90 prósentum stöđvanna. Man nokkur nokkuđ frá ţessum degi? Varla, en hann er sum sé allt í einu orđinn merkilegur. Ţetta var fyrir tíma hungurdiskabloggsins.

Flest féllu lágmarksmetin 30. apríl 2013, á 92 prósentum stöđvanna. Um ţađ merkilega kuldakast fjölluđu hungurdiskar ítarlega - dögum saman - ţví kuldinn hélst í marga daga. Auđvelt er ađ fletta ţessum fróđleik upp - hafi einhver ţrek til. Sama hlutfalli, 92 prósentum náđi 6. mars 1998 - ţađ kuldakast muna eldri nörd. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 27
  • Sl. sólarhring: 69
  • Sl. viku: 425
  • Frá upphafi: 2343338

Annađ

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 383
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband