Desemberhlýindi (fyrritíðar)

Eins og fjallað var um í pistli hér á hungurdiskum í gær (7. desember) hefur fyrsta vika mánaðarins verið sérlega hlý á landinu. Ekkert er enn hægt að segja um endingu hlýindanna. Ritstjórinn hefur fengið ýmsar spurningar varðandi fyrri desemberhlýindi. Hér verður reynt að svara sumum þeirra. 

1. Hver er hæsti hiti sem mælst hefur á landinu í desember? 

Þessari spurningu hefur svosem verið svarað hér á diskunum áður - en allt í lagi að rifja svarið upp. 

RODstöðármándagurklsthámark NAFN
140020011214918,4 Sauðanesviti
252719971215918,2 Skjaldþingsstaðir
361519881214918,0 Seyðisfjörður
4365819971215317,9 Ólafsfjörður
5527199712141817,8 Skjaldþingsstaðir
6615199712152117,8 Seyðisfjörður
7531620101292217,3 Kvísker
85272002126917,2 Skjaldþingsstaðir
94180199712141317,2 Seyðisfjörður-Vestdalur
103531520101292217,2 Kvísker Vegagerðarstöð

Taflan sýnir hæstu tölurnar. Þrjár stöðvar hafa náð 18 stigum. Tilvikin í töflunni eru frá 1988, 1997, 2001, 2002 og 2010, fimm á 30 árum. - En engin eldri. Þó hefur verið alllengi mælt á Seyðisfirði. Sömuleiðis var lengi mælt í Vopnafjarðarkauptúni og í Fagradal í Vopnafirði - kannski staðhættir á Skjaldþingsstöðum séu hagstæðari til desembermeta heldur en á hinum tveimur? 

2. Hver er hæsti hiti sem mælst hefur í desember á hverri stöð um sig?

Stöðvarnar eru margar - og þeir sem forvitnir eru geta fundið „sína stöð“ í allsherjarlista í viðhenginu - raðað er eftir hámarkshita - auðvelt að afrita í og raða að vild. 

3. Hver er hæsti mánaðarmeðalhiti á landinu í desember?

röðstöðármándesmeðaltnafn
1361322002125,96 Steinar
260152002125,94 Vestmannaeyjabær
3361272001125,86 Hvammur
460162002125,73 Vestmannaeyjar - hraun
513612002125,69 Grindavík
6361272002125,55 Hvammur
714532002125,54 Garðskagaviti
88152002125,46 Stórhöfði
98151933125,38 Stórhöfði
107981933125,31 Vík í Mýrdal

Hér verður auðvitað að taka fram að annar aukastafur meðalhita einstaks mánaðar hefur nákvæmlega enga raunverulega merkingu - er aðeins hafður hér með til keppnisánægju. En tökum samt eftir því að efsta talan, 5,96 stig, ætti að hækka í 6,0 en sú næsthæsta, 5,94 stig, að lækka í 5,9 væri einsaukastafshefð beitt - og þannig yrði gert meira úr muninum en hann reiknast hér.

Talan frá Hvammi 2001 er inni á „grunsamlega tímabilinu“ á þeim stað - og áður hefur verið nefnt í pistlum hér á hungurdiskum. Annars eru efstu tölurnar allar frá desember 2002 - nema þær tvær neðstu. Þar sýnir desember 1933 sig. 

4. Hver er hlýjastur desembermánaða á hverri stöð fyrir sig?

Þessi listi er líka langur - og er í viðhengi fyrir forvitna. Raðað er eftir ártölum. Komi ártal aðeins einu sinni fyrir er líklegt að stöðin hafi starfað mjög stutt - mjög hlýir desembermánuðir skilja eftir sig spor á mörgum stöðum hver um sig. Stöðvum sem byrja að athuga eftir 2006 er hér sleppt. 

Desember 1933 er sá hlýjasti á fjölmörgum stöðvum, en desember 2002 hirðir margar. Eftir það er það helst 2006 sem skilar metum. 

Gríðarleg hrúga nýrra stöðvadægurhámarksmeta hefur skilað sér í núlíðandi desembermánuði - en ekki hefur verið mikið um mánaðarmet - og ekkert enn á stöðvum sem lengi hafa athugað. En ... 

5. Hver er hæsti sólarhringsmeðalhiti í Reykjavík í desember?

röðármándagurt
11997121410,2
2200112109,6
319681269,3
4200912139,3
5199712159,2
6194312139,1
6197812129,1
6200912119,1
9200112139,0
9200912129,0

Hér er enginn nýliðinna daga - hæstur þeirra er enn sá þriðji með meðalhitann 8,2 stig og er neðan við 20. sæti á listanum (ekki sýnt). Hlýjast var 14. desember 1997 - meðalhiti yfir 10 stig. Þrír dagar í röð 2009 eru á listanum - jú, hiti var ofan meðallags í þeim mánuði í heild - en ekki neitt sérstaklega. Þarna eru þrír mun eldri höfðingjar - 6. desember 1968, 12. desember 1978 og 13. desember 1943 - langelstur (og rétt meðaltal óvissara). 

6. Hverjir eru hlýjustu desembermánuðir landsins alls (í byggð)?

röðármán meðalhiti
1193312 3,47
2200212 3,19
3185112 2,62
4195312 2,34
5194612 2,33
6198712 2,10
7200612 2,06
8193412 1,92
9183412 1,76
10185012 1,69

Hér nær desember 1933 toppsætinu - eigum við ekki bara að trúa því. Desember 1851? - Það er svosem ekkert að marka þá tölu - eða nákvæmnin er alla vega ekki sú sem taflan er að gefa til kynna. Hann var samt óvenjuhlýr í Stykkishólmi, Reykjavík og á Akureyri - og allgóðar mælingar eru til frá öllum þessum stöðum. Svo er 1953 ofarlega ásamt 1946 - þessir mánuðir eru þeir hlýjustu á sumum stöðvum. Eldri veðurnörd muna auðvitað eftir desember 1987 - 1850 var líka hlýr, en óvissa er mikil varðandi þann mánuð, og lítið vit í að hafa desember 1834 með á svona lista - en við gerum það samt, okkur til skemmtunar - og til að minna okkur á að það var eitthvað til sem við köllum hlýskeið 19. aldar (hafi einhver gleymt því). Annars var veturinn 1834 til 1835 frægur fyrir skelfilegheit - þó hlýindi hafi sýnt sig í desember. En látum fornsögur bíða betri tíma. 

Fleiri spurningar? 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 41
  • Sl. sólarhring: 74
  • Sl. viku: 439
  • Frá upphafi: 2343352

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 395
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband