Þurrt í Reykjavík það sem af er ári

Fyrstu níu mánuðir ársins hafa verið fremur þurrir í Reykjavík, ekki þó metþurrir. Þetta sést vel á mynd.

w-blogg021016a

Hér má sjá mælingar allt aftur til 1885. Á tímabilinu 1911 til 1917 var mælt á Vífilsstöðum og eru þær mælingar tæplega samanburðarhæfar við þær sem gerðar voru fyrr og síðar - en við látum þær koma inn í eyðuna miklu í Reykjavík 1907 til 1920. Mælingarnar hafa verið gerðar víðs vegar um bæinn - og trúlegt að talsverð ósamfella sé í þeim, en þó hefur verið haldið kyrru fyrir á Veðurstofutúni frá því í nóvember 1973. 

Fyrstu 9 mánuðir ársins 2010 voru ámóta þurrir í Reykjavík og nú, en annars þarf að leita allt aftur til 1995 til að finna þurrara tímabil. Enn þurrara var í fáein önnur skipti í fortíðinni, úrkoma fyrstu níu mánaða ársins var minnst 1951 (fyrir utan 1915 og 1916 á Vífilsstöðum). 

Fyrstu árin eftir 1920 voru sérlega úrkomusöm, og einnig tímabilið í kringum 1990. Rauða línan sýnir 10-ára keðju. Þegar rýnt er í myndina virðist sem það gæti einhverrar tilhneigingar til hópamyndunar - úrkomusöm ár hópast aðeins saman og e.t.v. þau þurru líka. - Ekki er að sjá neinar afgerandi breytingar í úrkomumagninu - og samband hita og úrkomu harla flókið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 433
  • Sl. sólarhring: 434
  • Sl. viku: 2212
  • Frá upphafi: 2347946

Annað

  • Innlit í dag: 386
  • Innlit sl. viku: 1918
  • Gestir í dag: 365
  • IP-tölur í dag: 355

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband