Nálægt slæmu kuldakasti

Strax upp úr helgi virðist kuldafylla ætla að sturtast út úr Norðuríshafi og til suðurs fyrir austan Ísland. Vonandi fer hún að mestu leyti framhjá - því það eru óneitanlega mikil leiðindi af verulegu næturfrosti svona á miðju sumri. 

Tíu daga spá evrópureiknimiðstöðvarinnar sýnir þetta að nokkru - en smyr kuldakastið nokkuð út - fyllan fer hratt til suðurs - stendur vart lengi við á hverjum stað, en á að komast langt suður á meginland Evrópu.

w-blogg050816a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, þykkt sýnd með strikalínum, en þykktarvikin með litum. Af þessu má ráða að reiknað er með hita í meðallagi þessa tíu daga (tekna saman) á Suðvesturlandi, en norðaustanlands verði hiti 1-2 stigum neðan meðallags í neðri hluta veðrahvolfs - og reyndar svipað niður í mannheimum.

En eins og sjá má er miklum hlýindum spáð vestan Grænlands, meir en 5 stigum ofan meðallags þar sem mest yrði.

En við vonum það besta.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Fyllibyttan fer svo fínlega framhjá kjálkanum mínum á Vestfjörðum,það er gott meðan ég heimsæki þá. 

Helga Kristjánsdóttir, 5.8.2016 kl. 01:15

2 identicon

Það var ansi kalt í nótt víða á Suður- og Vesturlandi, alveg niður undir frostmark. Það er spurning hvort kuldinn sé ekki þegar kominn - og haustið - þó enn sé hlýtt að deginum.

 

Hætt er við að ber skemmist ef það kólnar mikið meira. Fer þá lítið fyrir þessu mikla berjasumri sem allt stefndi í.

 

Norðmenn er hræddir við flóð eins og þau gerast verst á haustin:

http://www.yr.no/artikkel/_-dette-ligner-mer-pa-host-enn-sommer-1.13072315

 

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 5.8.2016 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1498
  • Frá upphafi: 2348743

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1304
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband