Með öflugra móti

Hæðarhryggur fyrir vestan land færist nú í aukana og verður óvenjuöflugur í nokkra daga. Evrópureiknimiðstöðin segir að á mánudagskvöld (11. apríl) verði staðan sú sem myndin sýnir.

w-blogg090416a

Heildregnu línurnar sýna hæð 500 hPa-flatarins, en litir þykktina. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Mörkin milli grænu og gulu litanna er við 5460 metra - meiri þykkt en það telst sumarhiti. - En uppheimahiti sem þessi nýtist illa við jörð - hér fyrst og fremst vegna vindáttarinnar (að norðan) sem og þess að yfirborð landsins er enn kalt - snjór víða að bráðna til heiða og fjalla - auk þess sem sjávarhiti er auðvitað nærri vetrarstöðu líka. En aldrei samt að vita nema að einhvers staðar á landinu verði hlýtt. 

Svona staða er oft harla óþægileg - þegar mikil hlýindi skjóta sér langt norður fyrir venjulega stöðu eru kuldar oft á ferð sunnar en vant er - þeir eru það svosem í þessu tilviki eins og sjá má á kortinu hér að neðan.

Litirnir sýna þykktarvik næstu tíu daga í reikningum evrópureiknimiðstöðvarinnar. 

w-blogg090416b

Hlýindin yfir Grænlandi (í hæðarhryggnum) sýna hita um 190 metra yfir meðallagi (9,5 stig) - en vestur af Bretlandi er óvenjukalt - hiti rúmlega -100 metra undir meðallaginu (-5,0 stig) - það er mikið í 10 daga yfir varmagefandi hafi. 

En okkur finnst þetta svosem í lagi - miðað við vindátt - hér er hita spáð nærri meðallagi í mannheimum - ríflega vestan- og suðvestanlands - en tæplega í meðallagi eystra. - En ritstjóra hungurdiska er þó sjaldnast rótt undir mjög stórum háþrýstisvæðum að vorlagi - sama þótt reiknimiðstöðvar syngi þýðum rómi. - Hófsamir söngvar eru hollari. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Trausti! Hver er meðalhitinn það sem af er mánuðinum, núna þegar næstum þriðjungur er búinn af honum og landið að fara inn í norðanáttir og kaldari nætur en hafa verið það sem af er mánuðinum?

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 9.4.2016 kl. 17:42

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu 9 daga aprílmánaðar er 4,9 stig. Það er 3,2 stigum ofan meðallags 1961 til 1990, og 1,7 ofan meðallags síðustu tíu ára, í 11 sæti sömu daga á 68-ára hitalistanum. Á Akureyri er meðalhitinn þessa sömu daga 2,8 stig, 2,4 og 1,2 stig ofan meðaltalanna og í 17. sæti á 68-ára listanu.

Trausti Jónsson, 10.4.2016 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 107
  • Sl. viku: 1492
  • Frá upphafi: 2348737

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1299
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband