Hversu lágt fer þrýstingurinn?

Þótt lægðir með miðjuþrýsting undir 940 hPa séu ekki mjög sjaldséðar á Atlantshafi gerist það ekki oft að þrýstingur mælist svo lágur hér á landi. - Reyndar þó í fyrravetur (7. janúar, 939,0 hPa á Gufuskálum) - en síðan þarf að fara aftur til 1999 til að finna jafnlágan sjávarmálsþrýsting á íslenskri veðurstöð. 

Lægðin sem á að fara hjá landinu austanverðu aðfaranótt miðvikudags (þess 30.des.) er efnileg - og þegar þetta er skrifað (seint á sunnudagskvöldi, 27.) gera evrópureiknimiðstöðin og harmonie-spá Veðurstofunnar ráð fyrir því að þrýstingur í lægðarmiðju fari lægst í 937 hPa - og undir 940 hPa hér á landi. Sjá má tillögu harmonie-líkansins hér að neðan.

w-blogg281215a

Fari lægðin þessa leið - og líti hún svona út - má segja að við sleppum nokkuð vel. Lægðin aðeins farin að fletjast í botninn og veðrið þar að auki verst austan við lægðarmiðjuna að þessu sinni - rétt strýkst við Austurland. - 

En varla þarf að taka fram að þetta er allt mjög ótryggt og litlu má muna til að hlutir fari ekki á verri veg - svo verður víða hvasst á heiðum - auk hálku og skafrennings víða. 

Bandaríska veðurstofan segir lægðina fara niður í 928 hPa og beint yfir landið - það er auðvitað verri gerð en þetta. En spár að vestan hafa verið heldur ótrúverðugar upp á síðkastið - eins og einhver veikindi séu viðvarandi í líkaninu hvað varðar dýpt sumra lægða - ekki aðeins í margra daga spám, en líka í þeim stuttu. Ekki skal fullyrt neitt um það hér hvort þessi sýki nær til þeirrar lægðar sem hér er fjallað um. 

Danska hirlam-líkanið segir lægðina verða 935 hPa í miðju - og fara aðeins vestar en reiknimiðstöðin stingur upp á. Breska líkanið er sammála reiknimiðstöðinni og harmonie. 

En allir þeir sem þurfa að taka mark á veðurspám fylgjast með vef Veðurstofunnar eða með upplýsingum frá öðrum „til þess bærum aðilum“ - og láta ekki (frekar en venjulega) malið í ritstjóra hungurdiska trufla sig frá alvöru málsins. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einhver veikindi hrjá líka úrkomukort og snjódýptarkort Veðurstofu Íslands.

Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.12.2015 kl. 10:45

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og sá krankleiki hefur staðið í allmarga daga. Kannski að Veðurstofan sé lögst í banaleguna!

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.12.2015 kl. 12:24

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Nú er búið að laga úrkomu- og snjódýptarkortin.

Trausti Jónsson, 28.12.2015 kl. 12:56

4 identicon

Tel líklegt að fari fyrir Veðurstofunni eins og Siglingastofnun. Sé fyrir mér hvernig henni verður skipt.

Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.12.2015 kl. 16:18

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Já, Óskar. Það eru margar ljótar blikur á lofti hjá Veðurstofunni - bæði innvortis sem og í stjórnkerfi landsins. Það er hart þegar ekki er einu sinni hægt að halda veðurathugunum í höfuðstöðvunum í jafnvægi - og boðar ekki gott. 

Trausti Jónsson, 28.12.2015 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 35
  • Sl. sólarhring: 70
  • Sl. viku: 433
  • Frá upphafi: 2343346

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 389
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband