Éljagangur vestanlands - gott eystra

Búist mun viđ éljagangi um landiđ suđvestan- og vestanvert nćstu daga - en meinlitlu og oftast góđu norđaustanlands. Í dag (miđvikudaginn 25. mars) var éljagangurinn reyndar svo meinlaus ađ minnti á voriđ. 

Gervihnattamyndin hér ađ neđan er gripin um miđnćturbil - ađ kvöldi 25. Hún er ekkert sérlega skýr - svćđiđ er á jađri ţess sem jarđstöđuhnötturinn sér - en jarđstöđuhnettir eru sem kunnugt er yfir miđbaug.

w-blogg260315aa

Mest ber á háreista bakkanum fyrir austan land - en hann olli úrkomu víđast hvar á landinu ţegar hann fór hjá. Yfir Vesturlandi er dálítill éljagarđur - hann fór yfir höfuđborgarsvćđiđ rétt fyrir miđnćtti og festi ţá snjó - hálkan liggur ćtíđ í leyni. 

Annars er éljaloft á nćr öllu Grćnlandshafi og vestur fyrir Grćnland sunnanvert. Ekki ber ţar á neinum sérstökum bökkum heldur eru éljaklakkarnir nokkuđ jafndreifđir. Nćst Grćnlandi er ţó hringrás lćgđarinnar og sunnan viđ hana má sjá ađ loftiđ er mjög ţurrt í vestanáttinni ţar sem ţađ kemur af jöklinum. Tíma tekur fyrir ţađ ađ ná nćgilegum raka til ađ mynda ský. 

Lćgđarmiđjan hreyfist ekki mikiđ fyrst í stađ. Vestan viđ Grćnland má sjá ađra lćgđ - ţar ofan viđ er miđja háloftalćgđarinnar. Sú á ađ hreyfast yfir jökulinn og slá sér niđur á Grćnlandshafi upp úr hádegi á morgun (fimmtudag) - og grípur ţá fyrri lćgđina međ sér á leiđ norđaustur um Grćnlandssund á föstudaginn. 

Sú stađa sést á kortinu hér ađ neđan.

w-blogg260315a

Kortiđ sýnir hćđ 500 hPa-flatarins og ţykktina og gildir kl.18 á föstudag. Jafnhćđarlínur eru heildregnar - en ţykktin er í lit. Viđ sjáum ađ töluverđur strengur er yfir Vesturlandi og vćntanlega heldur hryssingslegt veđur - sérstaklega á heiđavegum.

Ţađ er líka fremur kalt - ţađ sjáum viđ af ţykktinni, en hún sýnir hita í neđri hluta veđrahvolfs. Af kvarđanum til hćgri (hann verđur skýrari sé myndin stćkkuđ) má sjá ađ ţykktin er á bilinu 5100 til 5160 metrar yfir landinu - ţađ er 4 til 7 stigum undir međallagi. Ţar sem loftiđ er mjög óstöđugt verđa hitavikin ekki alveg svona mikil niđur viđ sjávarmál. 

Svo rennur ţetta hjá og vindur gengur niđur. Ađ sögn reiknimiđstöđva eiga nćstu lćgđir ađ ganga til austurs fyrir sunnan land - og vindur ţví líklegri til austan eđa norđanátta á međan ţćr fara hjá. En hafa verđur í huga ađ mjög stutt verđur upp í vestanáttina - og varla tekst ađ hreinsa hana alveg frá. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 101
  • Sl. sólarhring: 108
  • Sl. viku: 1850
  • Frá upphafi: 2348728

Annađ

  • Innlit í dag: 91
  • Innlit sl. viku: 1621
  • Gestir í dag: 85
  • IP-tölur í dag: 85

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband