Hárastarveđur

Veđriđ sem gekk yfir landiđ í morgun og í dag var eitt ţađ versta á síđari árum - hvađ vindhrađa varđar. Lćgđin var ekkert sérstaklega djúp - en lagđist ţannig ađ skotvindur heimskautarastarinnar gat teygt sig nćrri niđur ađ sjávarmáli. Ţetta kemur fyrir en illviđrin fyrr í vetur hafa ekki veriđ ţessarar gerđar. 

Víst er ađ ţversniđ vinds frá sjávarmáli og upp í 10 km hćđ (250 hPa) líta ekki oft eins illa út og sjá má á myndinni hér ađ neđan. 

w-blogg140315-iia

Sjá má legu sniđsins á litla kortinu uppi í hćgra horni - syđsti hlutinn er lengst til vinstri - Snćfellsnes kemur fram sem lítill grár hóll neđst fyrir miđju - og Vestfjarđafjöllin ađeins hćrri ţar lengra til hćgri.

Bleikgráu litirnir sýna svćđi ţar sem vindur er meiri en 48 m/s - vindur fer vaxandi upp í gegnum allt veđrahvolfiđ - engin lćgri stađbundin hámörk er ađ finna. Vindáttin er svipuđ uppúr og niđrúr - hallast ađeins austur fyrir suđur alveg neđst - vegna núningsáhrifa.

Ţeir sem vilja rýna frekar í myndina geta tekiđ eftir ţví ađ mćttishitalínur (heildregnar) eru ekki nema tvćr undir 800 hPa hćđ á öllum vinstri helmingi myndarinnar - ţarna er loftiđ orđiđ nokkuđ vel blandađ og bylgjur eru ţví veikar yfir Snćfellsnesi ţrátt fyrir ađ vindáttin sé ţvert á fjöllin - ofar eru mćttishitalínurnar ţéttari og ţar ber meira á bylgjum - eins yfir Vestfjörđum - ţar sem mćttishitalínurnar eru ţéttari. 

Síđari myndin sýnir ţversniđ austur eftir Norđurlandi. Ţar eru mćttishitalínur ţéttari og bylgjur mun meiri og draga ţćr 50m/s nćrri ţví niđur til jarđar yfir Tröllaskaga - hes rastarinnar lafir niđur undir fjöll. Harla óhuggulegt svo ekki sé meira sagt. 

w-blogg140315-iib

Strikalínan (grćn) sem liggur á ská upp til vinstri sýnir svćđi (halla) ţar sem mćttishitalínurnar liggja mjög bratt - ţetta eru einhvers konar skil.

Ţetta er skólabókardćmi um hárastarveđur. Ţau eru algengust í suđlćgu áttunum - en koma líka fyrir í vestanátt - en nokkuđ langt er ţó síđan ritstjórinn hefur séđ góđ dćmi um slíkt í mjög vondu veđri. 

Afskaplega gagnlegt er ađ fá ađ sjá teikningar sem ţessar úr nákvćmu veđurlíkani eins og harmonie-líkaniđ er. Ţökk sé öllum ţeim sem gerđu ţađ mögulegt, tökum ofan fyrir harmonie-teymi Veđurstofunnar - og spávakt Veđurstofunnar. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 159
  • Sl. viku: 1750
  • Frá upphafi: 2348628

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1531
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband