Kaldur laugardagsmorgunn (21. febrúar)

Norðanáttin sem ríkti á landinu í dag (fimmtudag 19. febrúar) gengur smám saman niður á morgun - föstudag - og síðan er gert ráð fyrir hægum vindi lengst af laugardags. Líklegt er að þá verði líka léttskýjað - og tækifæri gefst fyrir frostið að bíta um stund. 

Kortið hér að neðan gildir kl. 12 á laugardag og sýnir hvernig málum verður þá háttað í 500 hPa-fletinu og neðri hluta veðrahvolfs. 

w-blogg200215a

Ísland er rétt ofan við miðja mynd hulið vetrarbláma. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar - því þéttari sem þær eru því meiri er vindurinn - en hann blæs samsíða línunum með lægri hæð á vinstri hönd. Þykktin er sýnd með litum en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Mörkin á milli grænu og bláu litanna er við 5280 metra. 

Meðalþykkt í febrúar hér á landi er um 5240 metrar - í ljósasta bláa litnum. Hér er greinilega kaldara en það. Dekksti blái liturinn yfir landinu norðaustanverðu sýnir þykkt á bilinu 4980 til 5040 metra. - Það er í lægra lagi - en getur samt ekki talist óvenjulegt í febrúar. 

En töluvert frost gæti orðið víða um land - og auðvitað helst inn til landsins. Ekki skulu tölur nefndar hér - en spár má finna á vef Veðurstofunnar - eða hjá öðrum til þess bærum aðilum (svo notað sé stofnanamál - sem ritstjóranum finnst svo skemmtilegt). 

Mjög hlýtt loft er fyrir sunnan land - en það er að meginhluta á hraðri leið beint til austurs - og fer því framhjá okkur að þessu sinni. - En samt nær það að hreinsa tvo köldustu bláu litina norður fyrir land á sunnudag. - Það munar mikið um það og vel má vera að hann verði alveg frostlaus sums staðar sunnanlands á sunnudag.

Síðdegis á laugardag þykknar í lofti og kl. 18 gerir evrópureiknimiðstöðin ráð fyrir því að staðan verði lík þeirri hér að neðan. 

w-blogg200215b

Hér má sjá sjávarmálsþrýsting, vind í 10 metra hæð, úrkomu og hita í 850 hPa-fletinum (litaðar strikalínur). Úrkoman er sýnd í lit - og auk þess má sjá úrkomutegund - snjókoma er táknuð með örlitlum stjörnum. Eins og sjá má hefur vindur snúist til suðausturs um landið vestanvert.

Það eru þrjú úrkomusvæði sem sækja að. Þau sem eru nær landinu eru orðin til þar sem austanátt í neðri lögum mætir vestanáttinni uppi. Þar er töluverð úrkoma, en ekki víst að hennar gæti á landinu. Aðallægðin er sú sem lengst er frá landinu. Þegar hér er komið sögu er hún ekki orðin mjög djúp - 985 hPa í miðju - en á skömmu síðar að springa út - og evrópureiknimiðstöðin segir hana verða 953 hpa í miðju sólarhring síðar, hefur þá dýpkað um 32 hPa. Þá á hún að vera stödd beint sunnan við land. 

Ameríska útgáfan byrjar óðadýpkunarskeiðið um 6 klst fyrr - og vestar - en niðurstaðan er svipuð, rétt rúm 950 hPa síðdegis á sunnudag. 

Við höfum áhyggjur af tvennu varðandi þessa lægð. Annars vegar er það vindurinn - með heppni gætum við sloppið sæmilega - en rétt er samt fyrir alla sem hyggja á ferðalög um helgina að fylgjast mjög vel með spám. 

Hins vegar er það hríðarveðrið. Það ræðst mjög af því hvað háloftavestanáttin heldur sér lengi - hversu lengi lægðardýpkunin er að ná upp fyrir aðalúrkomumyndunarhæðina (2 til 5 km). Þeir sem fylgjast vel með útliti loftsins geta kannski eitthvað reynt að ráða í það af fari skýja á laugardaginn - að hætti veðurspámanna fyrri tíðar. Við tökum ofan fyrir þeim. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 26
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 517
  • Frá upphafi: 2343279

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 469
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband