Austanhafs og vestan

Mikið leiðindaveður er nú (föstudag 29. janúar) víða í Evrópu og landakort meteoalarm lituð gulum og brúngulum aðvörunarlitum og meira að segja sést rauði liturinn á spjaldi morgundagsins - en hann merkir aftakaveður af einhverju tagi. Aðeins 5 veðurstofur af 34 í samstarfinu eru alveg aðvaranalausar í dag og á morgun, þar á meðal Veðurstofan okkar. 

Snjókoma plagar Breta, sjávargangur Portúgali og þrumuveður og stormur Miðjarðarhafslönd. Meira að segja er vindi spáð nærri fárviðrisstyrk á Eyjahafi á laugardaginn. Eitthvað vill undan láta. 

En við lítum á 500 hPa-spákort bandarísku veðurstofunnar og gildir það um hádegi á laugardag (31. janúar).

w-blogg300115a

Hér eru jafnhæðarlínur heildregnar að vanda og þykktin er sýnd með litum. Kvarðinn batnar sé kortið stækkað. Það er stór háloftalægð sem sér um alla illskuna. Hún dælir köldu lofti að norðan suður yfir Bretland, Frakkland og síðar vestanvert Miðjarðarhaf - en krappar lægðir ganga þar austur um í átt til Grikklands og síðar Svartahafs. Hlýindi eru austantil í álfunni en þeim fylgir hvassviðri og jafnvel rigning. 

Eins og venjulega eru mörkin á bláu og grænu litunum við 5280 metra þykkt. Allt undir því er ávísun á vandræði á Bretlandi og Frakklandi og stórvandræði nái svo kalt loft suður á Miðjarðarhaf. Mið-Evrópumenn eru mun vanari þessari þykkt - og hún er því ekki nándar nærri því eins hættuleg þar og vestar og sunnar.

Raunar er þetta loft alls ekki svo mjög kalt því það er komið úr norðri, suður um Noregshaf þar sem það hlýnar mjög yfir hlýjum sjó. Það er austankuldinn sem er alvarlegastur í Evrópu - gjarnan þurrari en þetta - en mun kaldari. Lítið hefur borið á slíku í vetur. 

Hlýtt er í vestanverðum Bandaríkjunum en kaldara í austursveitum. Kortið gildir líka á laugardag kl. 12.

w-blogg300115b

Kuldapollurinn Stóri-Boli hristir vetrarhlekkina og litlu má muna að hann nái suður á þéttbýl svæði. Talað er um tvær norðansóknir í næstu viku, á mánudag og miðvikudag. Eftir talsvert kuldakast hefur aftur hlýnað í Alaska - en reiknimiðstöðvar búast við mikilli árás á Alaska, ættaða frá kuldapollinum Síberíu-Blesa, um miðja næstu viku. 

Ísland er hins vegar í hæðarhrygg - en þeir sem gaumgæfa smáatriði kortsins sjá dálítið lægðardrag við suðurodda Grænlands - en það fer hjá án teljandi tíðinda hér á landi og hæðarhryggurinn heldur sér. Kannski snjóar eitthvað - en ekki er spáð teljandi vindi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Í Jótlandspóstinum sá ég um daginn grein með yfirskriftina: Heitt á Suðurskautinu og frost í Bandaríkjunum. Ekki las ég greinina alla, en þar var verið að furða sig á þessu, og velt fyrir sér, hvernig á þessu stæði eða hvort það væri einhver umpólun í gangi. Manni bregður líka við þessum snjóavetri hérna allt í einu eftir svona mörg ár, og það í svona langan tíma. Fer þessu ekkert að linna, svo að snjórinn nái að þiðna eitthvað, enda þetta óvanalega langur kafli, án þess að það hláni eitthvað svo heitið geti, og hægt sé að ganga á auðum götum? Maður er orðinn býsna þreyttur á þessum langa snjóakafla.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2015 kl. 11:46

2 identicon

Smáleiðrétting: Þetta átti að vera Norðurpóllinn en ekki Suðurskautið, sem verið var að tala um. Heiti greinarinnar í Jótlandspóstinum var: Vejret går amok: Varme i Arktis - ekstrem kulde i USA.
Ustabile luftstrømme i Arktis er begyndt at sende ekstremt vejr ned mod os. Både i form af massiv kulde fra nord og intens varme fra syd. - Mere ekstremt vejr truer
Indblik 25.01.2015 kl. 03:00
De arktiske luftstrømme er blevet så ustabile, at vi vil få endnu mere ekstremt vejr – både i form af ekstrem kulde fra nord og ekstrem varme fra syd. Sådan lyder beskeden fra Norges førende klimaforskere.

 Eins og ég sagði gat ég ekki lesið alla greinina, en þetta er athyglisvert þykir mér. Er hér um loftslagsbreytingar einar sér að ræða eða er jörðin smám saman að umpólast? Hvað er eiginlega í gangi?

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2015 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 1496
  • Frá upphafi: 2348741

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 1302
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband