Nýtt landsdćgurhámark (ekki svo merkilegt ţađ)

Um leiđ og háloftavindar snúast til suđlćgra og jafnvel vestlćgra átta ađ vetrarlagi aukast mjög líkur á háum landshámarkshita. Síđastliđna nótt (ađfaranótt ţriđjudags) fór hiti á Dalatanga í 15,6 stig og er ţađ hćsti hiti sem vitađ er um á landinu ţann 11. mars. Gamla metiđ (14,5 stig) var sett á Akureyri áriđ 1953 - fyrir 61 ári. Ţetta er fyrsta nýja landsdćgurhámarkiđ á ţessu ári - hins vegar eru ný landsdćgurlágmörk orđin tvö ţađ sem af.

Í venjulegu ári má búast viđ 3 til 5 landsdćgurmet af hvorri tegund falli - en nýjum metin eru ţó í raun mjög mismörg frá ári til árs. Á síđustu 15 árum hafa 132 landsdćgurhámörk falliđ - 8,8 á ári - talsvert umfram vćntingar. Á sama tíma hafa ađeins 62 landsdćgurlágmörk faliđ - sé eingöngu miđađ viđ athuganir í byggđ - rétt um helmingur á viđ hámörkin, 4,1 á ári. Frá 1993 fjölgađi stöđvum mjög á hálendinu og hafa ţćr stöđvar smám saman veriđ ađ hreinsa upp landsdćgurmet. Séu hálendisstöđvarnar teknar međ í lágmarksdćgurmetatalningunni reynast 108 slík met hafa falliđ á síđustu 15 árum, eđa 7,2 á ári. Í tölunum er ekki taliđ međ ţegar met fellur hvađ eftir annađ sama almanaksdaginn.

Munurinn á 8,8 hámarksmetum og 4,1 lágmarksmetum á ári skýrist af tvennu. Annars vegar hafa mikil hlýindi veriđ ríkjandi hér á landi - en ţađ hefur líka áhrif ađ hámarkshitamćlingar voru framan af gerđar á mun fćrri stöđvum heldur en lágmarksmćlingarnar. Ţađ eitt og sér eykur líkur á hámarksmetum lítillega umfram lágmarksmetin.

Nú sitja eftir ađeins 5 landsdćgurhámarksmet frá 19. öld (enn gćtu fáein í viđbót leynst í gögnum), en 24 landsdćgurlágmarksmet standa enn frá sama tíma.

Eins og oft hefur komiđ fram segja einstök landsdćgurmet ekkert um ţađ hvort tíđarfar er kalt eđa hlýtt. Ţess má t.d. geta ađ enn stendur eitt landsdćgurhámark sem sett var í mars 1918 - seint á frostavetrinum mikla [Seyđisfjörđur 14,7 stig ţann 17.

Ţađ verđur ađ teljast tilviljun ađ 133 hámarksdćgurmet hafa falliđ síđustu 15 árin í Reykjavík - nánast ţađ sama og á landinu í heild. En ekki hafa falliđ nema 8 lágmarksdćgurmet á sama tíma. Hér er vart um ađrar skýringar ađ rćđa heldur en hlýnandi veđurfar.

Í Reykjavík stendur enn 21 dćgurhámark frá 19. öld, en hvorki meira né minna en 179 dćgurlágmörk.

Á Akureyri eiga síđustu 15 árin 101 hámarksdćgurmet - en dćgurlágmarksmetin eru á sama tíma ađeins 8 eins og í Reykjavík. Hámarksmćlingar voru stopular á Akureyri fyrir 1935 en samt sitja enn 8 dćgurhámörk frá 19. öld á stóli. Dćgurlágmörk sem enn lifa frá sama tíma eru 52 á Akureyri - vćru trúlega fleiri ef stöđin hefđi ekki naumlega misst af frostavetrinum mikla 1880 til 1881 en frá ţeim vetri lifa enn 36 dćgurlágmörk í Reykjavík.

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ţetta landshámkark var á sjálvirku stöđinni en kvikasilfriđ sýndi bara 12,6. Í mínum huga er ekki um neitt landshámark ađ rćđa! En Akureyrarmetiđ var heiđarlegt kvikasilfursmet.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 12.3.2014 kl. 01:37

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Kvikasilfurshámarkiđ á Dalatanga ţ.11. var reyndar 15,0 stig (kl.9) en ekki 12,6 (ţađ var kl.18) - og ţar međ ofar Akureyrarsilfurstölunni frá 1953. Nýtt met ríkir - hvora mćligerđina sem miđađ er viđ.

Trausti Jónsson, 12.3.2014 kl. 02:13

3 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Áhugavert - sambćrilega ţróun skrifuđum viđ um á loftslag.is fyrir nokkrum árum (Hitamet mun fleiri en kuldamet í Bandaríkjunum) - en hlutfall hitameta og kuldameta í Bandaríkjunum á fyrsta áratugi ţessarar aldar var 1/2,04  - en hér virđist ţađ vera 1/2,14 síđastliđin 15 ár.

Höskuldur Búi Jónsson, 12.3.2014 kl. 08:59

4 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ţar međ ét ég ţetta ofan í mig međ mjög glöđu geđi en villa mín sýnir hve bagalegt ţađ er ađ Veđurstofan skuli vera hćtt ađ sýna á vefsíđu sinni hámarks og lagmarkshita mönnuđu stöđvanna. Flott met!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 12.3.2014 kl. 12:10

5 identicon

Ţađ er auđvitađ bara broslegt ađ nefndarmađur í Vísindanefnd um loftslagsbreytingar sem ritađ hefur tvćr lćrđar skýrslur um meinta óđahlýnun á Íslandi á ţessari öld skuli enn vera ađ reyna ađ telja landsmönnum trú um "hlýnandi veđurfar" á Íslandi.

Komiđ hefur fram ađ áriđ 2013 er kaldasta áriđ á ţessari öld á Íslandi og ţegar menn skođa yfirlit yfir međalhita sjálfvirkra stöđva í byggđ á Íslandi - tímabiliđ 1995 til 2013 - má greinilega sjá ađ leitnin er í átt til kólnunar frá aldamótum 2000 (http://trj.blog.is/blog/trj/image/1216840/)

Ţetta kemur reyndar heim og saman viđ greinilega leitni í kólnunarátt um heim allan frá aldamótum. (http://www.woodfortrees.org/plot/rss/from:2001/to:2004.05/plot/rss/from:2011/to:2014.05/plot/rss/from:2001/trend)

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráđ) 12.3.2014 kl. 18:56

6 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Hvađ gengur ţér til međ ţessari hegđun ţinni Hilmar Hafsteinsson barnaskólakennari???????????

Ţetta snýst fyrir löngu síđan EKKERT um ţína "aumu" baráttu um meinta hnattrćna kólnun. Heldur snýst ţetta hjá ţér ađ vera mest til leiđinda, og vera međ persónuníđ, eđa ţá helst ađ síđueigandi leggi ţessa síđu niđur.

Bíđ Trausta afsökunar á útblástursins hjá mér. Enn mér finnst merkilegt ađ ţessi mađur skuli hvađ eftir annađ fá ađ persónuníđa ţig Trausti einn "traustasta" Veđurfrćđing Veđurstofurnar.

Pálmi Freyr Óskarsson, 12.3.2014 kl. 19:43

7 identicon

Mikiđ býr Veđurstofa Íslands vel ađ njóta starfskrafta veđurathugunarmanna á borđ viđ Pálma Frey Óskarsson. Vel menntađur, vel skrifandi og vel hugsandi ofurhugi međ útblásturinn á vísum stađ eins og greina má á athugasemdum hans.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráđ) 13.3.2014 kl. 00:03

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 19
  • Sl. sólarhring: 61
  • Sl. viku: 510
  • Frá upphafi: 2343272

Annađ

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 462
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband