Loftþrýstingurinn lági

Lægðin sem fór hjá landinu í gær (miðvikudag) skilaði 945,1 hPa sem lægsta þrýsting á landinu. Lægðin í dag (fimmtudag) gerði enn betur, þrýstingurinn fór niður í 942,6 hPa á Dalatanga kl. 15. Þetta er lægsti þrýstingur á landinu síðan 18. janúar 2009, þá varð hann lægstur 942,8 hPa (á Raufarhöfn). Fyrir nærri því 12 árum 2. febrúar 2002 fór hann niður í 942,4 hPa í Akurnesi í Hornafirði. Það var 16. janúar 1999 sem þrýstingurinn fór síðast niður fyrir 940 hPa.

Þetta er allt með lægsta móti. Svo virðist sem næsta lægð gefi okkur lágmarksþrýsting á bilinu 950 til 955 hPa. Fleiri gríðardjúpar lægðir fylgja svo í kjölfarið en fara líklega til austurs nokkuð fyrir sunnan land. En þrýstingur helst þó áfram mjög lágur hér á landi og sé eitthvað að marga spárnar í dag fer hann ekki upp í meðallag fyrr en milli jóla og nýjárs.

Það sem af er mánuðinum er þrýstingurinn um 10 hPa undir meðallagi. Það telst mikið og munar mikið um daga eins og í dag þegar þrýstingurinn var hátt í 50 hPa undir meðallaginu. Of snemmt er þó að tala um desembermet í meðalþrýstingi en óhætt mun að upplýsa að keppt er við 1924 en þá var meðalþrýstingur mánaðarins um 980 hPa. Sjá má að erfitt verður að keppa við það að þessu sinni. En fróðlegt er að fylgjast með þessu. Mesta hæð norðurhvels er nú yfir Síberíu austraverðri, en mestu lægðirnar eigum við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 82
  • Sl. sólarhring: 296
  • Sl. viku: 2324
  • Frá upphafi: 2348551

Annað

  • Innlit í dag: 74
  • Innlit sl. viku: 2037
  • Gestir í dag: 71
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband