Yfirborđshiti

Öll frambćrileg veđurspálíkön ţurfa ađ vita eitthvađ um yfirborđshita lands og sjávar. Gervihnettir geta gefiđ grunnupplýsingar um ţessi atriđi - svona ţegar viđrar til slíkra athugana. Líkönin reikna síđan varmaskipti lofts og yfirborđs og hitanum eftir ţví hvernig varmaskipti ganga fyrir sig. Sjávarhitinn breytist ekki mikiđ frá degi til dags en öđru máli gegnir um ţurrlendi.

Upplýsingar um yfirborđsgerđ, raka eđa gróđurfar skipta ţví meira máli sem líkönin ná til smćrri og smćrri svćđa. Allsherjarheimslíkön geta leyft sér heldur grófari mynd. Nýlega minnkađi evrópureiknimiđstöđin Vatnajökul verulega og ţá bötnuđu spár ţeirra um hita í kringum hann verulega.

Viđ lítum á spá reiknimiđstöđvarinnar um yfirborđshita lands og sjávar síđdegis á sunnudag (11. ágúst).

w-blogg110813a

Sjávarhiti er á bilinu 10 til 15 stig á öllu hafsvćđinu sunnan Íslands. Ţetta svćđi nćr einnig til vesturstrandarinnar, en viđ Austurland liggur ađ venju köld tunga Austuríslandsstraumsins. Ţar sýnist hitabiliđ 6 til 8 stig ná alveg upp ađ Austfjörđum sunnanverđum.

Ţrátt fyrir ţessa hitadreifingu (hlýtt vestan viđ - kalt austan viđ) er međalstađan samt ţannig í neđri hluta veđrahvolfs ađ hlýrra er fyrir austan land heldur en vestan. Ţađ ţýđir ađ hiti fellur hrađar međ hćđ undan Vesturlandi heldur en undan Austurlandi. Loftiđ er óstöđugra vesturundan heldur en eystra. Ţetta á viđ međalástand - einstaka daga bregđur mjög út af.

Viđ sjáum ađ stóru jöklarnir fjórir koma vel fram á kortinu. Blár blettur er í ţeim öllum en blái liturinn sýnir hita á bilinu frá frostmarki niđur í -2 stiga frost. Eins og minnst var á ađ ofan var jöklamynd reiknimiđstöđvarinnar mjög grófgerđ ţar til ađ bćtt var úr í júnílok nú í sumar. Reyndist breytingin ekki hafa áhrif á veđurspár í öđrum löndum (já - ţađ var athugađ).

Sá yfirborđshiti lands sem sýndur er á kortinu á reyndar ađ vera međalhiti frá yfirborđi niđur á 7 cm dýpi. Ţađ er til ţess ađ ţađ landiđ sé ekki alveg minnislaust - viđ ţađ yrđu hitasveiflur mjög stórar. Sá minnislausi yfirborđshiti er reyndar tíundađur sérstaklega í líkaninu.  Á ensku heitir hann skin temperature - viđ getum kallađ hann annađ hvort himnuhita eđa geislunarjafnvćgishita.

Á kortinu ađ ofan er yfirborđshiti hćstur viđ Dýrafjörđ - 17,6 stig. Ţar á ađ vera glampandi sól á gildistíma spárinnar.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 376
  • Sl. viku: 1584
  • Frá upphafi: 2350211

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 1457
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband