Láta bíða eftir sér (hlýindin)

Á síðustu árum hefur verið venjan að hiti komist í 20 stig einhvers staðar á landinu fyrir lok maímánaðar. Nú eru að vísu fimm dagar eftir af mánuðinum en enn bólar ekkert á svo háum hita í tölvuspám. Við getum samt vonað að þær bregðist. Það hefur ekki gerst síðan 1999 að hiti á landinu hafi ekki náð 19 stigum á þessum tíma. Þá var hæsti hiti fyrstu fimm mánaða ársins 18,1 stig. Jafn og nú. Fyrir þann tíma voru hitamælistöðvar mun færri heldur en nú er og líkur á háum tölum minni ár hvert.

Í maílok 1994 var hæsti hiti ársins til þessa tíma 17,2 stig. Við huggum okkur við það að í maílok 1979 hafði hitinn hvergi náð 15 stigum á landinu - við erum ekki að lenda í því að þessu sinni.

Þetta er þó ekki þannig að einhver skortur sé á hlýju lofti á norðurhveli - það er bara ekki hér.

w-blogg270513a

Myndin sýnir megnið af norðurhveli jarðar norðan við 30. breiddarstig. Ísland er rétt neðan við miðja mynd. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar. Því þéttari sem þær eru því meiri er vindur, hann blæs samsíða línunum. Litafletir sýna þykktina, því meiri sem hún er því hlýrra er loftið í neðri hluta veðrahvolfs. Kvarðinn (sýnir dekametra) batnar mjög sé kortið stækkað. Mörkin á milli grænu og gulu svæðanna er við 5460 metra. Líkur á 20 stiga einhvers staðar á landinu aukast mjög sé þeirri þykkt náð. Mörkin á milli bláu og grænu litanna er við 5280 metra. Minni þykkt en það eykur mjög líkur á næturfrostum.

Við erum sum sé í grænu litunum. Það er ekki slæmt - en gæti samt verið betra. En við sjáum að það er aðeins á tveimur svæðum þar sem gulir og brúnir litir ná norður fyrir 60. breiddarstig. Það er yfir Skandinavíu - þar halda hlýindin áfram og yfir Alaska - þar sem var svo hræðilega kalt fyrir viku. Það er á fréttum að skilja að hitinn i Fairbanks hafi komist í 25 stig í dag.

Ekki eiga að verða miklar breytingar á þessu. Okkar hitavonir felast einkum í tvennu. Annars vegar þeim möguleika að hlýindin yfir Skandinavíu hellist til vesturs. Það gerist oft í ámóta stöðu og var talið líklegt fyrir nokkrum dögum - en, nei, varla verður úr því. Hinn möguleikinn fellst í hæðarhryggnum hlýja suður í hafi. Fyrir tveimur dögum sögðu spár að hann myndi teygjast norður til Íslands með miklum og góðum hlýindum - en, nei, varla verður úr því.

Það er því útlit fyrir að við verðum áfram í græna litnum og þökkum í sjálfu sér fyrir það. Stöku sinnum getur austanáttin orðið furðuhlý hér suðvestanlands við til þess að gera lága þykkt. En fyrst þarf að hreinsa núverandi (sunnudagskvöld) norðaustanloft frá landinu.

Aðalkuldapollurinn er við norðurskautið, ansi krappur og kaldur en hreyfist mjög lítið næstu daga þannig að við getum verið áhyggjulítil gagnvart stórhretum að sinni. Á myndinni er kuldapollurinn yfir Evrópu að endurnýjast - græni liturinn er þar boðberi kulda og rigninga á þessum tíma árs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þessi tíð ekki dæmigerður fyrirboði þess að sumarið verði svalt og sólarlítið?

Sporin hræða amk. þegar þessi ár sem þú nefnir er höfðu til hliðsjónar.

Þannig hefur það nefnilega verið að á eftir köldu vori kemur oftast kalt sumar.

Ekkert bendir heldur til þess að það fari hlýnandi næstu 14 dagana skv. langtímaspám.

Nú sem stendur er ekkert sem minnir okkur á að eftir nokkra daga sé að koma júní, tíðin núna líkist meira tíðinni í miðjum október; svalt, sólarlítið, hvöss norðanátt og Esjan hvít niður í miðjar hlíðar.


Í raun var veðrið betra hér á landi í vetur, hvort sem við nefnum desember, seinnihluta janúar, eða sl. febrúar.

Ennfremur má benda á það að kalt hefur verið í Alaska og á vesturstönd Bandaríkjanna, sem og í Vestur-Evrópu allt suður á Íberíu-skaga, svo norðurhvel Jarðar er orðið ansi svalt.  Er farið að kólna á Jörðinni?

Ég er því ansi hræddur um að loftið hér á norðurhveli sé orðið svo kalt eftir þessa langvarandi kuldatíð, að sumarið hér á landi verði eitt það svalasta og sólarminsta í áratugi, minni svona meira á sumarið 1981 og 1983 eða jafnvel 1979.

Björn J. (IP-tala skráð) 27.5.2013 kl. 11:23

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Björn. Það er reyndar nokkuð langt síðan ég hef litið á samband vor- og sumarhita. Ég geri það á næstunni. Annars hefur ekki verið neinn sérstakur kuldi - nema kuldakastið um mánaðamótin. En hlýir dagar hafa varla látið sjá sig. Það er ekkert enn sem bendir til þess að það sé farið að kólna á jörðinni. Við vonum enn að sumarið verði sem best.

Trausti Jónsson, 28.5.2013 kl. 01:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 159
  • Sl. viku: 1752
  • Frá upphafi: 2348630

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 1533
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband