Átakavika framundan?

Hlýindin virðast ætla að toppa á mánudaginn. Þykktinni er þá spáð nærri meti (ekki alveg þó) og mættishiti í 850 hPa yfir landinu austanverðu fer í rúm 20 stig. Undanfarna daga hafa reiknimiðstöðvar spáð miklu kuldakasti í kjölfarið - en eru í dag (laugardag) aðeins að linast á hörku þess. En víst er að barátta fer fram um Hólmann. Þegar þetta er skrifað eru þó ekki miklar líkur á mjög vondu veðri - við vonum að svo fari.

En lítum á gervihnattamynd sem tekin er kl. 23:15 á laugardagskvöldi og fengin er frá kanadísku veðurstofunni.

w-blogg241213a

Ísland er rétt við efri brún myndarinnar en hún nær allt suður að 20. breiddarstigi. Kanaríeyjar eru lengst til hægri. Lægðin á miðri mynd ræður veðri fram eftir vikunni. Skýjakerfi hennar teygir sig langt til suðurs. Þar að auki er miðjan líka teygð frá norðri til suðurs. Af öllu má giska á að lægðarmiðjan sitji eftir en ný lægð slitni norður úr henni. Reiknimiðstöðvar segja að slit muni eiga sér stað á sunnudagskvöld. En það merkilega er að meginlægðarmiðjan sjálf á að fylgja eftir á miðvikudag.

Síðan er algjör óvissa, spennandi að fylgjast með því.

Á myndinni sést líka lítil lægð rétt á undan skýjakerfi stóru lægðarinnar. Sú mun valda allhvassri sunnanátt með rigningu framan af sunnudegi. Slitalægðin fylgir síðan í kjölfarið og sést hún vel rétt vestur af landinu á spákortinu hér að neðan - það gildir kl. 6 á mánudagsmorgni.

w-blogg241213b

Jafnþrýstilínur eru heildregnar, litafletir sýna úrkomumagn og strikalínur hita í 850 hPa. Gríðarleg úrkoma (vonandi skammvinn) fylgir sunnanáttinni sem liggur langt sunnan úr höfum. Lægðir eins og þessi eru nokkuð algengar. Fyrir sjálfan sig (engan annan) kallar ritstjórinn þetta troðningslægðir. Ofsaveður er í norðaustanáttinni meðfram Grænlandi, norðan við lægðarmiðjuna en troðningur er líka sunnan við. Þar er gríðarmikill suðvestanstrengur í háloftunum og hefur stundum þann ósið að slá sér niður í miklum fjallabylgjum yfir Norðurlandi og jafnvel norðanverðum Austfjörðum. Hvort það gerist nú skal ósagt látið.

Meginlægðin fylgir síðan í kjölfarið og enginn hætta er á kulda fyrr en hún er komin hjá en það á ekki að gerast fyrr en á miðvikudag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 8
  • Sl. sólarhring: 59
  • Sl. viku: 406
  • Frá upphafi: 2343319

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 367
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband