Merki ţess ađ sumri hallar

Erfitt er ađ negla niđur hvađa dag sumri fer ađ halla. Svartsýnismenn segja ţađ auđvitađ vera strax eftir sumarsólstöđur - og er nokkuđ til í ţví. Hiti nćr ţó ekki hámarki fyrr en síđar. Hámarki međalhitans er náđ ekki löngu eftir sólstöđur ţar sem land er ţurrt og langt frá sjó en yfirleitt er hlýjast á landinu á tímabilinu frá ţví um 20. júlí til 10. ágúst. Sjórinn í kringum landiđ hlýnar yfirleitt fram í ágúst.

Loftţrýstingur nćr hámarki í maí og lćkkar síđan allt sumariđ - en tekur dálitla dýfu í lok ágúst - um höfuđdaginn. Um svipađ leyti fćrast illviđri í aukana og frostnćtur fara ađ gera vart viđ sig inn til landsins.

Silfurskýin sem sjást hér á landi frá 25. júlí og fram í miđjan ágúst hverfa ţá snögglega - eđa hafa gert ţađ hingađ til.

En athyglisverđ breyting verđur á hitafari í kringum landiđ. Hitinn fyrir sunnan land hörfar lítiđ síđari hluta ágústmánađar en norđurundan fer hann ađ lćkka - ađ međaltali nokkuđ snögglega. Ţetta sést vel á mynd sem hefur reyndar birst í einhverju formi á hungurdiskum áđur - en viđ rifjum hana upp hér ađ neđan.

w-blogg160812

Myndin tekur yfir eitt ár og eru mánađanöfnin sett viđ 15. hvers mánađar. Á lóđrétta kvarđanum eru tölur sem vísa til ţykktarmunar á milli 70°N og 60°N. Fastir lesendur vita ađ ţykktin mćlir hita í neđri hluta veđrahvolfs. Ţví meiri sem munur er á henni ţví meiri er hitabrattinn á milli mćlipunkta. Viđ skulum ekki velta vöngum yfir einingunum en hitamunur á milli breiddarbauganna tveggja reiknast minnstur 13. ágúst. Miđađ er viđ tímabiliđ 1971 til 2000. Trúlega hliđrast lágmarkiđ eitthvađ til á milli tímabila.

Viđ sjáum ađ ţykktarbrattinn er ţrisvar sinnum meiri á vetrum heldur en á sumri. Sérstaka athygli vekur á myndinni hversu snögglega hann vex síđari hluta ágústmánađar og tvöfaldast hann ţá á einum mánuđi. Sumarástandi vestanvindabeltisins er ţar međ lokiđ og haustiđ fer ađ sćkja ađ.

Ţađ er auđvitađ misjafnt hvernig ţetta gerist frá ári til árs, framsókn kuldans úr norđri er langt í frá samfelld - hvorki í tíma né rúmi.

En viđ sitjum alla vega í hlýindum í nokkra daga í viđbót og rétt ađ njóta ţeirra međan ţau gefast.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 507
  • Frá upphafi: 2343269

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 459
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband