Af hlýindum á Grćnlandi

Áskrifendur frétta frá bandarísku geimferđastofnuninni NASA (ţar á međal ritstjóri hungurdiska, góđur lesandi, Jón Frímann, og eflaust fleiri hungurdiskaáhangendur) fengu í dag sendan tengil á nótu um hlýindi á Grćnlandi. Fréttin gengur út á ţađ ađ gervihnettir hafi aldrei „séđ“ „bráđnun“ eiga sér stađ á jafn stórum hluta Grćnlandsjökuls á sama tíma og um miđjan mánuđinn.

Ekki skal efast um sannleiksgildi fréttarinnar - en ţađ er samt dálítiđ fyrirkvíđanlegt ađ hún verđi í framtíđinni rifin úr samhengi - sérstaklega ţó myndin. Í textanum er bent á ađ ţetta virđist ekki vera í fyrsta sinn sem eitthvađ bráđni mjög víđa hátt á jöklinum sama sumariđ og er áriđ 1889 nefnt sérstaklega í ţví sambandi. Síđan er sagt ađ ískjarnar sýni ađ ţetta hafi gerst á um ţađ bil 150 ára fresti á ónefndu tímabili. Töluna má alls ekki taka bókstaflega - miklu frekar táknar hún fimm til sex sinnum á hverjum ţúsund árum - ađ jafnađi.

Í fréttinni kemur réttilega fram ađ ástćđa hlýindanna nú sé margnefndur hćđarhryggur sem endurtekiđ hefur veriđ ađ rísa til norđurs úr vestanvindabeltinu frá ţví síđari hluta maí. Ţótt bráđnunaratvik fyrri ára hafi örugglega veriđ tengd ámóta hryggjum eđa fyrirstöđuhćđum nćr samlíkingin ekki lengra - ţađ er ekkert sem segir ađ nákvćmlega ţessi stađa endurtaki sig á um ţađ bil 150 ára fresti. Hún er miklu algengari - en hittir e.t.v. ekki alltaf jafnvel i árstíđasveifluna.

Sumur hafa veriđ hlý á Grćnlandi síđustu árin - rétt eins og hér á landi. En ţar - eins og hér - var ámóta hlýtt á fjórđa áratug síđustu aldar og nú. Mjög lausleg yfirferđ bendir til ţess ađ sumariđ 1948 hafi veriđ ţađ hlýjasta í Nuuk, en hlýjasti júlímánuđurinn hafi komiđ 1936. - Nema ţađ hafi veriđ 2010 en ritstjórinn er ekki međ ţćr tölur viđ höndina - bćtir vonandi úr ţví síđar.

En hlýindin í sumar eru óvenjuleg á Vestur-Grćnlandi. Hugsanlegt er ađ međalhiti júlímánađar í Nassarsuaq fari í 13 stig og jafnvel yfir 12 í Syđri-Straumfirđi. Lítum á stöđuna á Grćnlandi eins og hún er í dag (24. júlí) í töflu. Gera má ráđ fyrir talsverđri ónákvćmni í reikningum og ţví má helst ekki taka tölurnar hátíđlega - heldur er ţetta ađeins til umrćđu. Svo er mánuđurinn ekki búinn. Gögnin eru ţau sem borist hafa Veđurstofunni í mánuđinum.

Nauđsynlegt er ađ skýra töfludálkana. Fyrst koma ár og mánuđur, síđan er međaltal allra athugana - ekki er víst ađ ţađ sé rétt međaltal miđađ viđ sólarhringinn. Ţar á eftir fylgir hćsti hiti á athugunartíma og ţar nćst er hćsta hámark. Hćsti hitinn er hafđur hér međ vegna ţess ađ Veđurstofan fćr ekki hámarksskeyti frá öllum stöđvum.

Síđan fylgja á sama átt lćgsti hiti á athugunartíma og loks lćgsta lágmark. # ţýđir ađ upplýsingar vanti. Ţar á eftir er dálkur sem sýnir fjölda skeyta sem eru á bakviđ hverja stöđ og loks er stöđvarnafn. Ţćr efstu eru í námunda viđ Thule - en síđan er fariđ suđur međ vesturströndinni og endađ í Eystribyggđ.

Austurströndin er einnig tekin úr norđri, byrjađ á nyrsta odda Grćnlands Morrisjesuphöfđa en endađ í góđkunningja gamalla veđurfréttahlustenda - Kristjánssundi viđ Hvarf. Ţar á eftir er Summit stöđin efst á hvalbak Grćnlandsjökuls í meir en ţrjú ţúsund metra hćđ. Stafsetning nafnanna er sótt í nafnatöflu alţjóđaveđurfrćđistofnunarinnar og er margt hvorki međ íslenskum, norrćnum né grćnlenskum hćtti.

ármánmhitihćsti hhćsta hámlćgsti hlćgsta lágmfjöldinafn
201275,512,4#1,9#182KITSISSUT (CAREY OEER)                  
201276,712,9#3,8#181KITSISSORSUIT (EDDERFUGLE OEER)         
201278,616,419,0-1,2#186AASIAAT (EGEDESMINDE)                   
201279,120,621,14,43,9186ILULISSAT (JAKOBSHAVN)                  
2012712,222,824,74,03,5183KANGERLUSSUAQ (Syđri-Straumfjörđur)        
201279,114,919,04,5#82NUUK (GODTHAAB)                         
2012710,619,220,34,64,1186MITTARFIK NUUK (GODTHAAB LUFTHAVN)      
201277,522,222,71,51,1186PAAMIUT (FREDERIKSHAAB)                 
2012713,221,123,66,24,8185NARSARSUAQ                              
2012710,318,719,52,01,6186QAQORTOQ (JULIANEHAAB)                  
201273,312,5#-1,3#182KAP MORRIS JESUP                        
201275,716,0#-2,8#182STATION NORD AWS                        
201273,19,8#-1,2#181HENRIK KROEYER HOLME                    
201275,214,317,5-0,7#154DANMARKSHAVN                            
201275,814,6#0,4#181DANEBORG                                
201276,116,317,6-0,4#186ILLOQQORTOORMIUT (SCORESBYSUND)         
201272,79,6#-3,2#182APUTITEEQ                               
201277,315,616,00,6#186TASIILAQ (AMMASSALIK)                   
201276,513,814,40,10,1184KULUSUK                                 
201277,813,314,70,80,1178PRINS CHRISTIAN SUND                    
20127-8,92,2#-26,7#156SUMMIT                                  

Tölurnar ćttu ađ skýra sig sjálfar. Enn hefur Apútíteeq ekki náđ 10 stigum en sú stöđ er handan Grćnlandssunds norđvestur af Vestfjörđum, en 17,6 stiga hiti hefur mćlst í Scoresbysundi í júlí.

Veđurnördum til ánćgju fylgir í viđhengi langur listi međ sömu upplýsingum frá öllum nafngreindum veđurstöđvum sem Veđurstofan hefur frétt af í júlímánuđi. Athugiđ ađ hugsanlegt er ađ velja ţurfi annan textaritil heldur en ţann sjálfgefna til ađ geta lesiđ skjaliđ í réttum dálkum - gangi ţađ illa má reyna beint úr excel.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki breytilegt endurskin (albedo) og sólskin líka stór ţáttur í breytileika bráđnunarhrađa? Minna endurskin vegna sóts og annarra efnisagna úr lagskiptum ísnum ţýđir ađ minni sólarorka endurkastast, yfirborđiđ drekkur ţví í sig meiri varma o.s.frv...

Svo getur ţetta e.t.v. orđiđ eins konar "perfect storm" ţegar heitasti tími ársins, veđurkerfi og ađrir ţćttir slá í takt?

Eyjólfur

Eyjólfur (IP-tala skráđ) 25.7.2012 kl. 01:35

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 504
  • Sl. viku: 2243
  • Frá upphafi: 2348470

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1964
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband