Úrkoma í grennd fćrist í aukana

Ţegar horft er á veđurgögn og gagnarađir á hverjum degi áriđ út og inn fer ekki hjá ţví ađ ýmislegt skrýtiđ ber fyrir augu. Mynd dagsins sýnir eitt slíkt atriđi. Svo virđist sem úrkoma í grennd hafi fćrst í aukana á síđustu áratugum og aldrei veriđ eins algeng og á síđasta ári (2011).

En hvađ er úrkoma í grennd? Veđurathugunarmönnum er gert ađ flokka veđur á athugunartíma í 100 mismunandi „gerđir“ veđurs, hver gerđ á sér tölu á bilinu frá 00 til 99. Frá 1949 til 1981 var algjör skylda ađ nefna einhverja tölu, en frá og međ 1982 var leyft ađ sleppa henni ef hún féll á flokkana 00 til 03 - en ţćr greina ađeins á milli mismunandi ţróunar skýjahulu frá síđustu athugun.

Eitthvađ verđur ţví veđriđ ađ heita. Í listanum langa eru ţrjár mismunandi tölur sem taka til úrkomu sem sést frá athugunarstađ - en fellur ţó ekki á stöđinni ţegar athugun fer fram. Ţetta köllum viđ lauslega úrkomu í grennd. Tölurnar ţrjár eru 14, 15 og 16 - eiga ţćr eftirfarandi skilgreiningar:

14 – Úrkoma sjáanleg, en nćr ekki til jarđar.
15 – Úrkoma sjáanleg og nćr til jarđar í meira en 5 km fjarlćgđ frá athugunarstađ, en úrkomulaust á athugunarstađ.
16 – Úrkoma sjáanleg og nćr til jarđar í minna en 5 km fjarlćgđ frá athugunarstađ, en úrkomulaust á athugunarstađ.

Lykiltala 15 er langalgengust, yfir 80% athugana á úrkomu í grennd falla á hana.

Nú hefur tíđni athugana sem falla á ţessar tölur veriđ reiknuđ hvert ár og fyrir allt tímabiliđ 1949 til 2011. Úrkoma í grennd reynist nokkuđ algeng ţví um ţađ bil ein athugun af hverjum 20 segir frá henni eđa um 5%. Á myndinni hér ađ neđan eru ţúsundustuhlutar notađir (af óviđkomandi ástćđum), međaltal tímabilsins alls er 50,2 ţúsundustuhlutar (prómill).

w-blogg260412

Lárétti ásinn sýnir ár en sá lóđrétti tíđnina. Kemur nú hiđ furđulega í ljós. Tíđnin leitar greinilega upp á viđ og áriđ í fyrra, 2011, er algjört metár. Annađ er líka einkennilegt, breytingar frá ári til árs eru mjög litlar - en áratugasveiflur og leitni eru mun meiri. Ţetta kemur mjög á óvart. Frekar var búist viđ óreglulegum stökkum milli ára og lítilli eđa engri leitni.

En eru einhverjar skýringar til? Tíđnihámarkiđ milli 1970 og 1980 er illskiljanlegt, en lágmarkiđ fyrstu árin gćti stafađ af „leka“ úr eldri athugunarlykli. Hann var í notkun á árunum 1929 til 1948. Svo vill til í honum táknuđu tölurnar 14, 15 og 16 ekki úrkomu í grennd:

14 – Rosaveđur, loftiđ svipađ og í skúraveđri, en engin úrkoma á síđustu klukkustund
15 – Hryđjur og éljagangur síđustu 3 stundirnar
16 – Vatnsstrókar (kisur) hafa sést síđustu ţrjár stundirnar

Kann ađ vera ađ sumum veđurathugunarmönnum hafi veriđ gömlu tölurnar tamar fyrstu árin eftir merkingarbreytinguna.

Einnig getur veriđ ađ leki hafi orđiđ á milli úrkomu í grennd og misturs - en mistri hefur fćkkađ ađ mun á ţessu tímabili. Geta lesendur rifjađ upp pistil hungurdiska frá 16. febrúar s.l.

En úrkoma í grennd var sérlega algeng í fyrra - stökkiđ frá 2010 til 2011 er trúlega ađeins ađ sýna eđlilegan breytileika frá ári til árs. Ţegar mannađar veđurathuganir hćtta alveg styttir vćntanlega upp í grennd - gagnaglámar finna ţá eitthvađ annađ skrýtiđ og skemmtilegt í stađinn.

En fyrir alla muni tengiđ myndina ekki auknum gróđurhúsaáhrifum án ţess ađ láta ţess getiđ hvert líklegt orsakasamhengi sé.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki vildi ég búa ţarna í grennd, eins og karlinn sagđi. Hvernig eru tengslin viđ ađra veđurţćtti t.d. úrkomu? En ţetta er skemmtilegt, hver sem skýringin á ţví kann ađ vera.

Sigurđur G. Tómasson (IP-tala skráđ) 26.4.2012 kl. 11:26

2 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ég hef oft tekiđ eftir ţví ađ sé sól og blíđa í Reykjavík ţegar lesiđ er upp í veđurfréttum ađ sé úrkoma ţar í grennd. Mér finnst ţađ villandi fyrir utanađkomandi, sem ekki eru á viđkomandi stađ, ađ lesa ţetta upp í almennum veđurfregnum (menn halda ađ ţađ sé endilega ţungbúiđ) ţó ţetta sé skráđ í veđurbćkur.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 26.4.2012 kl. 12:14

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Úrkoma í grennd á sér bćđi dćgur- og árstíđasveiflu - hún sést t.d. verr á nóttu heldur en degi og betur í birtunni á sumrin heldur en í skammdegismyrkrinu. Engar málamiđlanir eiga ađ eiga sér stađ í hefđbundnum veđurfréttalestri - en krafan um ţćr er svo geigvćnleg ađ allar almennilegar veđurfréttir eru ađ leggjast af - viđ fáum bara asnalegar myndir af skýjum sem ber viđ sól. Lifi úrkoma í grennd - lifi lágţokublettir og súld á síđustu klukkustund.

Trausti Jónsson, 27.4.2012 kl. 00:07

4 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Lifi sól og blíđa!

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 27.4.2012 kl. 01:48

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 9
  • Sl. sólarhring: 60
  • Sl. viku: 407
  • Frá upphafi: 2343320

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 368
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband