Önnur lausn í dag

Í gćr fjölluđu hungurdiskar um lítinn ljótan blett á leiđ til landsins. Hann er ekki ađ hverfa - en nú á hann ađ fara ađra leiđ heldur en spáđ var í gćr. Ţrátt fyrir mikil gćđi gengur tölvuspálíkönum ekki alltof vel ađ ráđa viđ fyrirbrigđi af ţessu tagi - alla vega ekki marga daga fram í tímann. Ţess vegna eru nýjar og nýjar lausnir bođnar fram í hvert skipti sem líkaniđ rennur skeiđiđ - og auđvitađ eru mismunandi líkön ekki heldur sammála.

Viđ skulum líta á mynd. Viđ höfum séđ fleiri af ţessu tagi og hugsanlegt ađ einhverjir séu farnir ađ venjast framsetningunni. Ţeir munu ţó fáir ennţá. Lesendur geta ađ skađlausu stokkiđ hér yfir nokkrar málsgreinar ađ ţeim stađ sem merktur er međ ţremur stjörnum (***).

w-blogg230312a

Kortiđ sýnir norđanvert Atlantshaf. Ísland er ekki langt ofan viđ miđja mynd. Spánn er neđst til hćgri, en rétt sést í Nýja-Skotland (Nova Scotia) lengst til vinstri. Kortiđ er úr fórum evrópureiknimiđstöđvarinnar og gildir á miđnćtti á ađfaranótt laugardags (föstudaginn 23. mars kl. 24).

Litafletirnir sýna mćttishita í veđrahvörfum. Ţađ hljómar ekki vel - en eftir ađ búiđ ađ horfa á nokkur svona kort verđur ţađ jafn eđlilegt og hver annar auglýsingabćklingur. Mćttishiti er ţannig reiknađur ađ fyrst mćlum viđ hita loftsins og ţvínćst drögum viđ ţađ niđur í 1000 hPa ţrýsting (nćrri sjávarmáli), mćlum hitann aftur og köllum mćttishita. Mćttishiti hćkkar međ aukinni hćđ. Til ţess ađ minni hćtta sé á ruglingi er venjan ađ tilfćra mćttishita í Kelvinstigum (K = 273 + °C). Ţau venjast fljótt.

Bláu litirnir sýna lágan mćttishita - en ţeir rauđgulu háan. Allgott samhengi er á milli hćđar veđrahvarfanna og mćttishita í ţeim (en ekki má ţó taka regluna of bókstaflega). Tölurnar eru settar ţar sem eru stađbundin hámörk og lágmörk.

Litli ljótur sést vel á kortinu sem blár blettur viđ Skotland, ţar er hiti í veđrahvörfum ekki nema 293 K stig (= 20°C). Fleygur af köldu liggur skammt fyrir suđvestan Ísland - ţar er hiti 310 K = 37°C. Langhćsti hiti á kortinu er yfir vesturströnd Grćnlands, 262 K, kćmist ţetta loft til jarđar vćri hiti ţess nćrri 90°C - en ţađ gerist ekki. Ástćđa ţessa stađbundna ofurhita er vćntanlega bylgjubrot í veđrahvörfunum sem blandar enn „hlýrra“ lofti úr heiđhvolfinu niđur á viđ.

Ţrír bókstafir (A, B og C) afmarka hlýjan strók sunnan úr höfum - viđ sjáum lögun hans vel á kortinu.

(***) 

En beinum aftur sjónum ađ „litla ljót“. Í gćr var honum spáđ eins og örin sem merkt er „í gćr“ sýnir, en í dag á hann ađ fara til austurs úr ţessari stöđu. Reyndar er iđuhámark hans (snúningurinn) sem viđ litum á í gćr svo eindregiđ ađ hann á ađ lifa í viku í viđbót. Á ţeim tíma er honum spáđ sólarsinnis í kringum Bretlandseyjar og lenda síđan enn á ný yfir Biskćjaflóa, á sama stađ og hann vakti fyrst athygli okkar. Ţetta sýnir hvađ iđan er ţrautseig. En hugsanlega verđa einhver stór veđurkerfi búin ađ éta hann fyrir ţennan tíma.

Ţađ er hins vegar athyglisvert ađ ţessari snöggu beygju til austurs fylgir lítiđ útskot til norđvesturs (mjóa örin). Ef viđ leggjum lauslega saman örina sem merkt er „í dag“ og ţá mjóu er ekki fjarri ţví ađ útkoman sé örin „í gćr“. Beygja til austurs verđur möguleg međ ţví ađ kasta iđu af sér til vesturs. Ţetta er ţó ábyrgđarlaust hjal.

En niđurstađan er ţó sú ađ litla ljót hefur tekist ađ stugga ađeins viđ hlýja loftinu - ţótt ţessi fleygur sé ómerkilegri en hann sjálfur.

En hlýindi liggja enn í loftinu. Reyndar var mjög hlýtt í dag (fimmtudag) víđa um land og mánuđurinn vel yfir međallagi til ţessa, mest norđaustan- og austanlands.

Í viđhenginu er síđa úr „Kortafylleríi“, síbólgnandi kortaskýringariti ritstjórans.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 151
  • Sl. sólarhring: 184
  • Sl. viku: 2393
  • Frá upphafi: 2348620

Annađ

  • Innlit í dag: 124
  • Innlit sl. viku: 2087
  • Gestir í dag: 112
  • IP-tölur í dag: 112

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband