Hökt af stað úr snjóskafli

Nú hökta hungurdiskar aftur af stað eftir viku hlé. Hvenær fullu skriði verður náð aftur er óljóst en hér verður fjallað lítillega um snjóinn sem nú plagar íbúa höfuðborgarsvæðisins og sjálfsagt fleiri.

Snjódýptin mældist 33 cm við Veðurstofuna í morgun (fimmtudaginn 29. desember) og telst það desembermet fyrir Reykjavík. Nákvæmnin er þó ekki með þeim hætti að þetta sé endilega meira heldur en þeir 32 cm sem mældust að morgni 31. desember 1978 og þann 22. desember 1984 - munur upp á 1 cm verður að teljast tilviljun. En ágætt var að losna við tvöfalda metið. Sömuleiðis þurfti sá sem þetta skrifar að yfirgefa Veðurstofuna á keðjum jóladagsmorgun 1982 - þá var litlu minni snjór en nú.

Áðurnefnd snjókoma í árslok 1978 hafði skilað 32 cm að morgni þess 31. en áfram snjóaði og á nýjársdagsmorgun var hún komin upp í 39 cm. Hefði aukahlaupársdegi verið skotið inn árið 1978 hefði þessi nýjársdagur 1979 ekki verið það - heldur gamlársdagur 1978 og snjódýptarmet desembermánaðar hefði þar með verið 39 cm og stæði enn. En þegar þetta er skrifað eru enn tvær snjódýptarmælingar eftir til áramóta - hver veit nema að tala dagsins í dag hækki til morguns?

Það er reyndar afbrigðilegt að snjódýptarmet nóvembermánaðar er hærra en desembermetið. Mesta snjódýpt sem mælst hefur í nóvember í Reykjavík er 38 cm. Það var í miklu snjóakasti 1978. Sá snjór bráðnaði allur á fáeinum dögum í óvenjumiklum hlýindum í desember þannig að gamlársdagssnjórinn mikli féll á auða jörð.

Ritstjóri hungurdiska lét hafa eftir sér í Fréttablaðinu í morgun (- viðtal tekið í gær, 28. desember) að meiriháttar umferðarvandræði hæfust í Reykjavík við 28 til 30 cm snjódýpt. Það virðist staðfestast með snjókomu næturinnar. En snjódýpt ræðst oft af röð tilviljana. Atburður síðastliðinnar nætur var ekki svo stór einn og sér. Ákoma (aukning snjódýptar) frá því deginum áður var 13 cm. Þetta er hóflegur atburður.

Atburðurinn um áramótin 1978 til 1979 var miklu stærri - nærri 40 cm. Svo mikil snjósöfnun í einum atburði er mjög óvenjuleg í Reykjavík - þó ekki dæmalaus. Snjódýptin nú fellst í nokkrum smærri atburðum. Við sem fylgdumst með snjó hér í Reykjavík á snjóatímabilinu mikla fyrir 1995 munum vel vandræðaástand það sem er í umferðarmálum við 30 til 40 cm snjódýpt. Þá fer húsþökum sumum einnig að verða hætt. En dæmi eru um enn meiri snjó í Reykjavík - en ekki nýlega.

Á snjóaárunum lá einhvern veginn í loftinu að tveir stórir atburðir ættu sér stað með það skömmu millibili að sá fyrri væri lítt farinn að sjatna þegar sá síðari skylli yfir. - En það gerðist ekki. Við 45 cm er ástandið við meiriháttar vandræði - hvað þá í 80 cm (tveir stórir)?  Hvað ef þeir 80 cm bráðnuðu ekki - en endurfrysu svona fjórum sinnum? Atburðir af þessu tagi liggja auðvitað í leyni í framtíðinni - enginn má verða mjög hissa.

Á vef Veðurstofunnar liggur pistill ritstjórans um snjódýptarmet Íslandsog sagt er frá snjódýptarmeti Reykjavíkur (55 cm frá 1937). Á vef Veðurstofunnar er einnig ritgerð um snjóhulu og snjódýpt á landinu - orðin nærri 10 ára gömul en inniheldur samt mikinn fróðleik.

Í ritgerðinni er kynnt til sögunnar summa snjódýptar alhvítra daga. Hún hefur verið gerð fyrir alla mánuði frá því að snjódýptarmælingar hófust í Reykjavík í janúarlok 1921. Sjá má alla töfluna í sérstöku viðhengi með þessum pistli.

Það er 1984 sem státar af hæstu snjódýptarsummu desembermánaða, 418. Næst kemur desember 1955 með 311. Núlíðandi desember er í dag kominn upp í 353 og skortir því 65 upp á að ná metinu. Verði snjódýpt jafn mikil eða meiri síðustu tvo dagana og er í dag verður metið slegið. Hins vegar hafa alhvítir dagar aldrei verið jafn margir í desember í Reykjavík og nú.

Snjórinn sem nú liggur á jörð þarf afgerandi hláku til að hverfa. Slíkt virðist ekki í augsýn. Sú bleyta sem þó er spáð aðra nótt (aðfaranótt 31.) og á gamlársdag ætti þó að draga úr snjódýptinni - það er að segja ef ekki snjóar meira á morgun (föstudag). Síðan kvu spáð stirðnun og frosti aftur.

Skammvinnar, vægar vetrarhlákur af þessu tagi voru á öldum áður réttilega kallaðir spilliblotar - því það eru þeir svo sannarlega - hvernig sem á málið er litið. Þegar snjór blotnar og frýs aftur verða til svonefndir áfreðar - þeir hafa aldrei verið vinsælir.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst skárra að fá spilliblota heldur en hafa bara órofið frost. En best væri að fá almennilega hláku sem tæki up allan snjóinn. Gaman að þessari summusamantekt.

Sigurður Þór Guðjónsson, 29.12.2011 kl. 22:32

2 identicon

Þakka snæpistilinn Trausti , þetta er svosem ekkert fagnaðarerindi frekar

en fjárlögin,  en  "kaldar staðreyndir"  samt og fróðlegar. Og gaman að fá

orðin " spilliblota" og " áfreða ",  en þau hef ég ekki heyrt fyrr. Auðvitað

hlaut að koma að svona vetri , en það má til gamans geta þess að Jónas

frá Hrafnagili segir  í bók sinni " Íslenskir þjóðhættir " ( kaflinn um veðurfarið ) að : "....sumarpáskum fylgi harður vetur " . Auðvitað er þetta hjátrú , en einhverra

hluta vegna var þessu trúað og varla alveg að ástæðulausu. Líklega tilviljun

ein , en þess má til gamans geta að síðustu páskar voru " sumarpáskar ".

óli Hilmar Briem Jónsson (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 18:09

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Óli Hilmar, ég held að harðindin samfara sumarpáskum hafi átt við veturinn fram að þeim - en ekki á eftir. Lengi þurfi að bíða eftir vori við sumarpáska. En engan veginn er ég samt viss. Gleðilegt ár.

Trausti Jónsson, 30.12.2011 kl. 22:16

4 Smámynd: Jón Guðbjörn Guðjónsson

Sæll Sigurður.

Mér finnst nú alltaf hundleiðinlegt að fá þessa svonefndu spilliblota,eða allavega fyrir þá sem þurfa að vera í einhverjum akstri,það gerir bara aukna hálku þegar hitastig er um frostmarkið og tala nú ekki um ef hiti fer í um 3 til fjögur stig og skyndilega frýs,þetta er það sem hefur oft hörmulegar afleiðingar í akstri. Ef gerði nú almennilegan hita í um fimm til sex daga og næði að bræða snjóinn almennilega,því það er lengi nú eftir þessi frost undanfarið að frost fari úr jörðu og yfirborð við veg (jörð) er lengi að jafna sig á þessum árstíma sérstaklega,nema þegar sól fer að hækka á lofti fyrir alvöru og eins og sagt er að jörð fari að hlyna neðanafrá. Ég er svo sem engin sérfræðingur,en afsakið.

Jón Guðbjörn Guðjónsson, 1.1.2012 kl. 05:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 160
  • Sl. viku: 1751
  • Frá upphafi: 2348629

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1532
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband