Tvær lægðir til jóla (rétt rúmlega það)

„Rétt rúmlega það“ vísar til lægðarinnar sem er að ganga yfir þegar þetta er skrifað (rétt fyrir miðnætti á miðvikudagskvöldi 21. desember). Mjög mikill suðvestanstrengur fylgir lægðinni á mjóu svæði. Höfuðborgarsvæðið virðist ætla að sleppa en athygli vekur hversu hvasst er uppi á Mýrum (Fíflholt með 24,2 m/s í jafnaðarvind kl. 23) og í Hvalfirði (Þyrill með 25,1 m/s á sama tíma). Enn hvassara er á fjallastöðvum í nágrenninu. Rétt fyrir miðnætti var komið vonskuveður á Holtavörðuheiði og sennilega verður þessa sama strengs líka vart sums staðar á Norðurlandi eða á Vestfjörðum. Vonandi að ekkert fjúki.

Næsta lægð fer hjá síðdegis á morgun (fimmtudag). Hún virðist nú ætla að fara til norðausturs rétt fyrir sunnan land. Lítum á gervihnattarmynd sem tekin var kl. 23 á miðvikudagskvöldi 21.12.

w-blogg221211a

Við sjáum að lægð dagsins er við Vestfirði og verður alveg úr sögunni fyrir hádegi á fimmtudag. Nýja lægðin á að fara í þá stefnu sem örin sýnir. Ætli við verðum ekki að trúa því. Veður samfara lægðinni er langverst fyrir suðvestan og sunnan miðjuna þannig að við ættum að sleppa við það. Kannski hvessir um stund af vestri eða vestnorðvestri allra syðst á landinu annað kvöld.

Aðalspurningin samfara þessari lægð er sú hvort og hvar snjóar - og hversu mikið. Það getur gerst á tveimur svæðum tengdum kerfinu. Annars vegar í aðalúrkomubakkanum norðan og norðvestan við lægðarmiðjuna en hins vegar í éljakerfi sem gæti fallið inn á landið úr vestri annað kvöld eða aðra nótt. Það kerfi eða annað ámóta má sjá sem lítinn sveip á myndinni, vestarlega á Grænlandshafi.

Hungurdiskar geta engu um þetta spáð (frekar en venjulega) en rétt fyrir fólk á ferð að fylgjast vel með fréttum af veðri fimmtudagsins.  

Síðan nálgast önnur lægð á Þorláksmessukvöld - örlög hennar eru enn óráðin og illa virðist spám ætla að ganga við að negla þau niður. Flestar gera þó ráð fyrir því að hún dýpki gríðarlega í námunda við landið á aðfaranótt aðfangadags - evrópureiknimiðstöðin nefnir 41 hPa á sólarhring, þar af 14 hPa milli miðnættis og kl. 6 á aðfangadagsmorgunn. En hér verður að leggja varnagla við mikilli óvissu. Lægðin er að vísu orðin til, var um hádegi á miðvikudag yfir Indianafylki í Bandaríkjunum, 1003 hPa djúp, um hádegi á morgun á hún aðeins að hafa dýpkað um 2 hPa á leið sinni. En það verður gaman að fylgjast með þróun hennar á myndum og í spám næstu daga. Kannski verður ekkert úr henni? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já nú erum komnir bullandi umhleypingar. Hér snögg hvessti um kl 23 og var nánast ofsa veður um tíma. Það er ekki oft sem það skellur svona snögt á, sumir mundu segja  ,,það skellti saman". Ég er með smá veðurstöð. Vindhraði fór í 28 til 29 m. í kviðum. Ég held að mælingin sé nálægt lagi og tek ég þá samanburð við stöðina á Holtavörðuheiði. Vissulega er þar hvassara en hér niður í firðinum. Þegar þetta er skrifað er heldur farið að ganga niður mesta rokið og úrfellið farið að minka.

Gunnar Sæmundsson (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 00:48

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Ég þakka upplýsingarnar Gunnar, gaman að heyra af einkaveðurstöðvum. Ertu í Hrútafirði?

Trausti Jónsson, 22.12.2011 kl. 00:54

3 identicon

Sælir heiðursmenn !

Gaman að heyra þetta orðatiltæki " skella saman" hjá Gunnari. Ekki veitir af að

halda til haga veðurmáli forfeðranna , og víst er, að  mikið  var undir , hversu veðurglöggir menn voru , - jafnvel líf og afkoma. Ætli "lægðafæribandinu"  fari nú

ekki senn að ljúka , en sannarlega reyndist langtímaspá þeirra evrópsku rétt ,:

kalt til jóla á Íslandi . Í dag er sól í " Sökkvabekk" , sem fornmenn kölluðu.

Og þá þurfti að gefa gjafir til að blíðka goðin , svo hún hækkaði nú aftur með betri tíð í farteskinu. Kaupmenn  í dag njóta góðs af þessum ótta langa-  langa langa ....langa áa  okkar !

Vonandi fer nú veðráttan batnadi og umhleypingar taki sér smá hvíld. Etv. er

staða köldu rastarinnar yfir Atlantshaf að breytast. Hvað um það. Óska öllum

þeim sem hungurdiskar næra,  gleðilega jóla og farsæls árs.  Um leið þakka

ég Trausta einstaklega skemmtilega , fróðlega og upplýsandi pistla hér.

Einhverntíma hefði svona fágæt elja og óeigingjörn ,verið kölluð afrek. 

óli Hilmar Briem Jónsson (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 17:32

4 identicon

Sæll Trausti.

Ég á heima í Hrútatungu í Hrútafirði. Og þá má vist segja að ég sé haldinn mikilli  forvitni um veður og veðurfar. Það er t.d. alltaf jafn fróðlegt að skoða þykktarkortin sem þú kemur með og leggur útaf. Ég tek undir með Óla Hilmari að það er afrek að halda úti svona magnaðri veðursíðu. Við sem lesum þetta daglega yrðum miklu fáfróðari ef ekki væru menn eins og þú og Einar Sveinbjönsson til að bæta við þann fróðleik sem við fáum með veðuspám í útvarpi og sjónvarpi. Annars er ég viss um að skilningur fólks á veðri hefur mikið breyst með tilkomu veðurfrétta í sjónvarpi. 

Með bestu jólakveðjum

Gunnar Sæmundsson (IP-tala skráð) 22.12.2011 kl. 18:33

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka hlýleg orð í minn garð Gunnar og Óli Hilmar. Gleðileg jól.

Trausti Jónsson, 22.12.2011 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 51
  • Sl. sólarhring: 124
  • Sl. viku: 1800
  • Frá upphafi: 2348678

Annað

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 1577
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 47

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband