Enn af afbrigđilegum októbermánuđum (-úff)

Viđ lítum nú á vestan- og austanmánuđina og höldum sömu ađferđum viđ matiđ og áđur.

Austanáttarmánuđir eru ađ jafnađi mjög úrkomusamir austanlands og vestanáttarmánuđir ćttu ţví ađ vera úrkomusamir vestanlands. Ţó er ţađ nú ţannig međ vestanáttina ađ komi hún beint frá Grćnlandi getur hún veriđ ţurr. suđvestan- og vestanlands rćđur sunnanáttin mun meiru um úrkomuna heldur en vestanáttin.

Vestan og austanáttirnar eru ţví ekki spegilmynd hvor af annarri - síđur en svo. Eins og margoft (en ekki nćgilega oft) hefur veriđ margtuggiđ á hungurdiskum er Ísland nefnilega í austanvindabelti heimskautaslóđa í lćgstu lögum lofthjúpsins en inni í vestanvindabelti háloftanna. Tíđni austanáttar er ađeins helmingur tíđni vestanáttarinnar viđ veđrahvörfin auk ţess sem hún er yfirleitt hćgari. Austanáttamánuđir einkennast gjarnan af stórum hćgfara lágţrýstisvćđum suđur og suđaustur af landinu. Vestanáttarmánuđir einkennast af hrađfara veđurkerfum sem hvert um sig stendur stutt viđ.

Viđ notum enn fimm flokkunarţćtti.
 1. Mismunur á loftţrýstingi sunnanlands og norđan. Ţessi röđ nćr sem stendur aftur til 1881. Gengiđ er út frá ţví ađ sé ţrýstingur hćrri norđanlands heldur en syđra séu austlćgar áttir ríkjandi. Líklegt er ađ ţví meiri sem munurinn er ţví ţrálátari hafi austanáttin veriđ. Samkvćmt ţessum mćlikvarđa er október 1968 mestur austanáttarmánađa. Enda er hann ţurrasti október sem ţekktur er á Vesturlandi. Úrkoma í Stykkishólmi var ađeins 10,4 mm, ţađ minnsta sem mćlst hefur ţrátt fyrir ađ mćlt hafi veriđ ţindarlaust síđan í október 1856 (jćja, ekki alveg ţindarlaust, mćlingar féllu niđur í október 1919 en ţá var trauđla jafnţurrt. Áriđ 1968 gekk á međ afbrigđilegheitum, háum loftţrýstingi, kuldum, hafísum og meira ađ segja hitum líka. Í öđru sćti austanáttarmánađa er október 2006, hagstćđur og hlýr mánuđur.

Mestur vestanáttaroktóbermánađa er 1946, ţá gengu rigningar vestanlands en óvenju hlýtt var í mánuđinum. Međalhiti hefur aldrei orđiđ jafnhár og ţá í október í Stykkishólmi og telst hann einnig hlýjasti október á landinu í heild. Glćsilegt.

2. Styrkur austanáttarinnar eins og hún kemur fram ţegar reiknuđ er međalstefna og styrkur allra vindathugana á öllum (mönnuđum) veđurstöđvum. Ţessi röđ nćr ađeins aftur til 1949. Hér teljast október 1968 og 2006 einnig í efstu austanáttarsćtunum.

Mestu vestanáttarmánuđirnir eru 1978 og 1956, jafnir ađ styrk - ţeir ţurfa ekki ađ keppa viđ 1946. Báđir mánuđirnir voru mjög votir á Suđur- og Vesturlandi og ekkert sérlega ţurrir fyrir norđan. 

3. Gerđar hafa veriđ vindáttartalningar fyrir ţćr veđurstöđvar sem lengst hafa athugađ samfellt og vindathugunum skipt á 8 höfuđvindáttir og prósentur reiknađar. Síđan er tíđni norđaustan-, austan, suđaustan og sunnanáttar lögđ saman. Ţá fćst heildartala austlćgra átta. Hér er fortíđin á fullu í austanáttinni, ţađ er 1882 sem er efstur og 1903 í öđru sćti. Október 1882 er auđvitađ ódauđlegur sem hlýjasti mánuđur ársins í Grímsey. Viđ ţurfum ađ fara niđur í sjötta sćti til ađ finna nýlegan október á ţessum lista. Nýlegan segi ég, en reyndar eru 32 ár síđan, 1979. Sá mánuđur var sá fyrsti hlýi eftir langa kuldatíđ - sem margir muna. Á Akureyri var október 1979 hlýrri en september (ísaldarmánuđurinn).

Fortíđin rćđur einnig ríkjum á vestanáttarlistanum. Ţađ er 1895 sem er á toppnum og október 1934 í öđru sćti. Af nýlegum mánuđum er 2004 í fimmta sćti. Ţađ er eftirtektarvert ađ gríđarleg brim gerđi norđanlands í bćđi október 1934 og 1895. Óţćgilegt ađ vita af slíku í framtíđinni. Hvoru tveggja veđrin ćttu skiliđ ađ fá sérstaka umfjöllun.

4. Fjórđi mćlikvarđinn er fenginn úr endurgreiningunni amerísku og nćr hann aftur til 1871. Fyrstu 20 til 30 árin verđum viđ ţó ađ taka niđurstöđum greiningarinnar međ varúđ. Mest er austanáttin í október 1968 og 2006 í öđru sćti - eins og í fyrstu og annarri ađferđ hér ađ ofan - ţćgilegar slíkar stađfestingar. Vestanáttin var mest í október 1978 sem einnig var ofarlega á öđrum listum, 1946 er fimmta sćti - 1904 skýst í annađ sćtiđ.

Fimmti kvarđinn er einnig úr endurgreiningunni nema hvađ hér er reiknađ í 500 hPa-fletinum. Langmest var austanáttin í háloftunum 1976 - en ágústmánuđur ţađ ár var alveg sérstakur vestanáttarmánuđur í háloftunum. Veđrabreytingin ţetta haust (reyndar á höfuđdaginn) var sérlega óvenjuleg, ţegar vestanáttin snerist fyrst til ađeins hćrri áttar, en dó síđan. Kom varla aftur fyrr en ári síđar - og strögglađi síđan til 1981.

Mestir vestanáttarmánuđurinn í 500 hPa var 1921, hiđ óvenjulega úrkomuár, október 1972 er í öđru sćti og síđan 1904.

Ég held ađ óhćtt sé ađ segja ađ október hafi í áranna rás fariđ nokkuđ sínar eigin leiđir - en látiđ tískusveiflur eins og vind um eyru ţjóta. Hungurdiskar hafa áđur minnst á tregđu hans til ađ fljóta međ í hlýindaflaumnum síđasta áratuginn - einkennilegt.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Mestur austanáttaoktóbera eftir einu kerfi eru sem sagt 1968 og 2006. Mađur fer nú ađ hugsa út í hvađ valdiđ hafi gćđamuninum á ţessum mánuđum í hita og fleiru ţó áttin hafi veriđ sú sama af viđlíka stađfestu.

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 22.10.2011 kl. 13:45

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Sjá svar í nćsta pistli.

Trausti Jónsson, 23.10.2011 kl. 02:01

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 56
  • Sl. sólarhring: 248
  • Sl. viku: 1372
  • Frá upphafi: 2349841

Annađ

  • Innlit í dag: 46
  • Innlit sl. viku: 1249
  • Gestir í dag: 46
  • IP-tölur í dag: 45

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband