Af afbrigđilegum októbermánuđum

Viđ leitum nú ađ mestu norđan- og sunnanáttaoktóbermánuđum á sama hátt og viđ höfum gert áđur fyrir mánuđina júní til september. Ekki er ćtlast til ţess ađ lesendur muni ţá mćlikvarđa sem notađir eru ţannig ađ rétt er ađ rifja ţá upp jafnóđum. Skýringarnar eru ţví endurtekning en ártölin auđvitađ önnur. Nú ber svo viđ ađ lítiđ hefur veriđ um afbrigđilega októbermánuđi á síđustu árum - hvađ sem veldur.

1. Mismunur á loftţrýstingi austanlands og vestan. Ţessi röđ nćr sem stendur aftur til 1881. Gengiđ er út frá ţví ađ sé ţrýstingur hćrri vestanlands heldur en eystra séu norđlćgar áttir ríkjandi. Líklegt er ađ ţví meiri sem munurinn er, ţví ţrálátari hafi norđanáttin veriđ. Ákveđin atriđi flćkja ţó máliđ - en viđ tökum ekki eftir ţeim hér.

Mestur norđanáttaroktóbermánađa telst 1896. Ekki man neinn eftir honum lengur en minnisstćđur varđ hann austlendingum. Meir en 2000 fjár fórst á Austurlandi í hríđarbyl og krapa í miklu norđanveđri, einn mađur varđ úti. Hross fennti á Hérađi. Veđriđ stóđ í marga daga.

Margir muna enn nćstmesta norđanáttarmánuđinn, október 1981. Ţá bar helst til tíđinda ađ fannfergi var mikiđ norđanlands og snjódýpt mćldist 50 cm á Akureyri ţann 12. Ţessi mánuđur varđ einn af köldustu októbermánuđum allra tíma og ól á ísaldarótta sem var talsverđur um ţćr mundir.

Í ţriđja norđanáttarsćtinu er október 1934 en hann er frćgur fyrir gríđarlegt brim sem varđ norđanlands undir lok mánađarins. Međal annars gekk flóđbylgja yfir eyrina á Siglufirđi og fólk varđ ađ flýja hús.

Mest varđ sunnanáttin hins vegar í október 1915. Sá mánuđur er einhver hlýjasti október sem vitađ er um. Október 1920 er í öđru sunnanáttarsćtinu og síđan 1908 í ţví ţriđja. Allir ţessir mánuđir voru óvenjuhlýir

2. Styrkur norđanáttarinnar eins og hann kemur fram ţegar reiknuđ er međalstefna og styrkur allra vindathugana á öllum (mönnuđum) veđurstöđvum. Ţessi röđ nćr ađeins aftur til 1949.

Samkvćmt ţessu máli er október 1995 međ ţrálátustu norđanáttina. Ţá varđ snjóflóđiđ mikla á Flateyri, Október 1981 er í öđru sćti og 2004 í ţví ţriđja. Fyrir nokkrum dögum rifjuđum viđ upp norđanveđrin miklu í síđastnefnda mánuđinum (í pistli um mesta vindhrađa októbermánađar).

Sunnanáttaríkastir á tímabilinu 1949 til 2010 samkvćmt ţessari reiknireglu eru 1965 og 1985 jafnir í fyrsta og öđru sćti, báđir hlýir og síđan hitamánuđurinn október 1959 í ţví ţriđja.

3. Gerđar hafa veriđ vindáttartalningar fyrir ţćr veđurstöđvar sem lengst hafa athugađ samfellt og vindathugunum skipt á 8 höfuđvindáttir og prósentur reiknađar. Síđan er tíđni norđvestan, norđan, norđaustan og austanáttar lögđ saman. Ţá fćst heildartala norđlćgra átta. Ţessi röđ nćr aftur til 1874. Sunnanáttin er metin á sama hátt.

Hér er október 1968 mestur norđanáttarmánađa (međ sína hrikalega köldu daga - sjá pistilinn frá ţví í gćr (9. október)). Október 1981 er í öđru sćti og október 1967 í ţví ţriđja.

Sunnanáttin er mest í október 1946 (hlýjasti október í Stykkishólmi) en október 1908 er í öđru sćti.

4. Fjórđi mćlikvarđinn er fenginn úr endurgreiningunni amerísku og nćr hann aftur til 1871. Fyrstu 20 til 30 árin verđum viđ ţó ađ taka niđurstöđum greiningarinnar međ varúđ. Hér er stungiđ upp á október 1930 sem mesta norđanáttarmánuđinum. Október 1878 er í öđru sćti og 1981 í ţví ţriđja. Sunnanáttin er mest í október 1915 og síđan koma 1908 og 1946.

5. Fimmti kvarđinn er einnig úr endurgreiningunni nema hvađ hér er reiknađ í 500 hPa-fletinum.  Ţađ er október 1896 sem fćr fyrsta sćti í norđanáttakeppninni eins og efst hér ađ ofan, 1880 er í öđru. Ţessir mánuđir eru í sérflokki. Sunnanáttin er mest 1908, október 1959 er í öđru sćti.

Alltaf ánćgjulegt ađ sjá flokkunum bera saman ađ miklu leyti. Ađferđirnar eru ađ stinga upp á sömu mánuđunum sem ţeim afbrigđilegu. Ţađ eykur trú okkar á ađ metingurinn sé ekki út í hött.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 40
  • Sl. sólarhring: 52
  • Sl. viku: 531
  • Frá upphafi: 2343293

Annađ

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 483
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 29

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband