Hlýtt loft loksins yfir landinu - en er gagn að því?

Síðdegis í dag (laugardag) er loksins hlýtt loft yfir landinu. Meginöldufaldur þess berst reyndar hratt yfir á morgun sunnudag, en stutt virðist í næstu öldu. Á milli er loft sem er lítillega kaldara, en aðalkuldapollurinn á hörfa til vesturs meðan hann bíður eftir liðsauka.

Myndin sýnir þykktarspána síðdegis á sunnudag (24. júlí).

w-blogg240711

Heildregnu, svörtu línurnar sýna þykktina í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Litakvarðinn sýnir hita í 850 hPa-fletinum en hann er í dag í um 1400 metra hæð yfir sjávarmáli. Hiti er undir frostmarki þar sem liturinn er blár.

Við sjáum hlýju ölduna og kuldapollinn mjög vel. Á Austurlandi er þykktinni spáð yfir 5560 m, en í kuldapollinum miðjum er henni spáð um 5360 m. Þrátt fyrir mikla þykkt verður lítið hlýrra sunnan- og vestanlands heldur en verið hefur, dægursveiflan er lítil í skýjuðu veðri. Þá er tiltölulega hlýtt á nóttunni. Norðanlands fer hitinn hins vegar vel yfir 20 stig þar sem vindur blæs af landi. Spurning hvort 25 stigin nást? Það fer eftir því hvort sólin nær að hjálpa til.

Á eftir bylgjufaldinum fer þykktin aftur niður fyrir 5500 metra - en það þykir okkur samt sæmilegt á þessu sumri. Ný bylgja á síðan að koma yfir okkur á þriðjudag - með rigningu. Eftir það eru spár mjög óljósar og best að segja sem minnst um  þær.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Takk fyrir vönduð blogg um ýmsa veðurfarsþætti og met af mörgu tagi. En ég á bágt með að trúa því að ég sé einn um að skilja ekki hugtakið þykkt, sem hér er notað og sýnt á myndrænan hátt. Hvað er þykkt?

Magnús Óskar Ingvarsson, 24.7.2011 kl. 20:18

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Nei Magnús þú ert örugglega ekki einn um það að kannast ekki við þykktina. Ég hef endrum og sinnum reynt að skýra hana út í pistlunum - en gerði það ekki að þessu sinni. Kvikasilfur í hitamæli þenst út með vaxandi hita og er sá eiginleiki nýttur í venjulegum hitamælum til að mæla hita. Hlýtt loft er á sama hátt fyrirferðarmeira heldur en kalt. Þess vegna er hægt að nota fjarlægð milli þrýstiflata sem hitamæli. Þegar veðurfræðingar tala um þykkt er langoftast átt við fjarlægðina milli 1000 hPa flatarins annars vegar og 500 hPa flatarins hins vegar. Það er sú tala sem sýnd er á þykktarkortum, langoftast í dekametrum, en einnig oft í metrum. Ekki er fjarri að 2 dekametrar (20 metrar) samsvari einni gráðu í hita. Í fyrsta skipti sem ég minntist á þykktina í bloggpistli lét ég fylgja viðhengi þar sem reynt er að útskýra þykktina betur. Ég legg hér tengil á síðuna þar sem finna má viðhengið. Ég minnist stöku sinnum á fleiri lítt kunnugleg hugtök og kem vonandi til með að halda því áfram (í hófi).

Trausti Jónsson, 25.7.2011 kl. 01:25

3 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Bestu þakkir fyrir skýringuna, Trausti. Málið er ljóst!

Magnús Óskar Ingvarsson, 25.7.2011 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 27
  • Sl. sólarhring: 67
  • Sl. viku: 425
  • Frá upphafi: 2343338

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 383
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband