Norðurhvel á jónsmessu

Lítið er um að vera á norðurhvelsmyndinni. Hér að neðan er sama spáin birt á tveimur myndum. Sú fyrri sýnir að vanda hæðir og lægðir í 500 hPa - sú síðari líka en þar er reynt að rýna í aðalatriði myndarinnar. Ekki eru þessar myndir augnayndi og er að vanda beðist velvirðingar á því - en vonandi að einhverjir læri eitthvað af þeim.

w-blogg220611a

Fastir lesendur hungurdiska ættu að kannast við meginatriði og tákn en myndin sýnir landaskipan á norðurhveli jarðar, norðurskaut um það bil í miðju og meginlöndin ljósbrún. Línur sýna hæð 500 hPa-flatarins frá jörð í dekametrum (dam = 10 metrar) og er 5460 metra hæðin sýnd með þykkri, rauðri línu. 5820 metra hæð er einnig dregin með rauðri línu, en sú er mjórri. Aðrar jafnhæðarlínur eru bláar og dregnar með 60 metra bili. Þar sem línurnar eru þéttar er hvasst í 500 hPa en hægur vindur er þar sem línurnar eru gisnar.

Það sem vekur athygli á þessu korti er fyrst að 5460 metra línan, góðkunningi okkar í vor, er nærri því horfin af kortinu, hún sést aðeins í kringum nokkrar lægðir. Enn er að hlýna á norðurhveli þannig að vel er hugsanlegt að 5460 línan hverfi alveg - við sjáum þó að í kuldapollinum norður af Grænlandi eru enn þrjár jafnhæðarlínur innan við hana.

Á kortinu er ógrynni smálægða (kuldapolla) eins og títt er á sumrin, þær sem liggja þar nærri sem jafnhæðarlínurnar eru hvað þéttastar hreyfast nokkuð ákveðið til austurs.

Sérstaklega má taka eftir því að engir meiriháttar hlykkir eru á 5820 metra línunni (sú þynnri rauða). Verulega hlýtt loft er eiginlega hvergi norðan Miðjarðarhafs austan Atlantshafs og Bandaríkjanna í vestri. Línan er í sinni nyrstu stöðu við 50°N í Rúmeníu.

Ef við skoðum smáatriði kortsins betur kemur í ljós að þrjár hæðir eru langt innan 5820 metra línunnar. Ein þeirra er rétt suðvestan við Grænland og hæðarhryggur yfir Grænlandi. Það er 5640 metra jafnhæðarlínan sem er innst við hæðarmiðjuna. Það þykir bara gott, en þykktin slefar rétt upp í 5500 metra - sem væri bara fínt hér á landi.

Önnur hæð er yfir Norður-Rússlandi. Þar er hæðin yfir 5700 metrum, mjög gott við 70°N.  Þar er þykktin 5640 metrar þar sem best er, frábær árangur - slíkt gerist ekki hér nema rétt í stöku sumri. Þriðja hæðin er svo við norðurströnd Kanada, álíka öflug.

Á fimmtudaginn (23. júní) verður Ísland norðan við mikinn en flatan kuldapoll. Lægðin við Nýfundnaland gæti eitthvað stuggað við honum - en of snemmt er að segja til um það. Hryggurinn yfir Grænlandi er framhallandi sem kallað er. Framhallandi háloftahryggir eru stirðir til hreyfingar og því miður er þessi líklegur til að viðhalda norðlægri átt í háloftunum eitthvað áfram.

En lítum nú á aðra gerð myndarinnar, þar sem ég hef teiknað þrjá hringi ofan í hana. Hringirnir marka nokkur aðalatriði myndarinnar.

w-blogg220611b

Svarti hringurinn er settur þar sem flestar lægðarmiðjurnar eru. Þarna um kring er meginröstin, flest hreyfist austur á bóginn. Ef hlýtt loft rífur sig norður fyrir þennan hring myndar það háþrýstisvæði eða alla vega hryggi með afgerandi hæðarbeygju. Á breiddarstigi háþrýstisvæðanna er tilhneiging mest til austanáttar (ekki taka örina allt of bókstaflega). Hún er merkt með gulbrúnum lit. Nyrst er síðan önnur lægðarhringrás (grænn hringur) þar sem síðustu vígi vetrarins hringsóla í dauðastríði sínu.

Meginlöndin eiga eftir að hlýna í nokkrar vikur til viðbótar, hafsvæðin í 6-7 vikur og Norðuríshafið í 8 til 10 vikur. Svarti hringurinn á því enn eftir að þrengjast eitthvað. Það þýðir að heimskautaröstin þokast að meðaltali nær Íslandi og þar með er enn möguleiki á að hún hreinsi burt kuldapollana sem plagað hafa okkur, sérstaklega íbúa Norður- og Austurlands. Hvað kæmi í staðinn er svo allt annað mál.

Við viljum alls ekki að græni hringurinn teygi sig hingað, honum fylgir ofstopi eða kuldi. Hans tími á að bíða þar til um og uppúr 20. ágúst. þegar sumri fer að halla.

Einu skulum við taka eftir til viðbótar á hringamyndinni en það er að miðja allra hringjanna er ekki við norðurskautið heldur okkar megin við það. Það táknar í grófum dráttum að kalda loftið er nær okkur heldur en á svipuðu breiddarstigi annars staðar. Græni hringurinn hallast þó til Kanada (eins og algengast er).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarki Tryggvason

Gaman að lesa pistlanna þína og þessi var mjög fræðandi :D Takk fyrir mig!

Bjarki Tryggvason, 22.6.2011 kl. 11:23

2 identicon

Þetta er ákaflega fróðlegt. Eru ekki mestar líkur á að norðaustan áttir verði ríkjandi nú í sumar sem síðustu sumur. Einhvernveginn finnst manni að sama veðurlagið geti varað lengur á sumrin nú en áður. Kannski er það vitleysa. En hvar er suðvestan áttin með rigningarhryðjum um allt sunnan- og vestanvert landið og jafnvel á norðurlandi líka. Slíkt hefur ekki komið í mörg ár að sumri til.

Hjalti (IP-tala skráð) 22.6.2011 kl. 11:43

3 identicon

Ég spyr einnig, hvar eru suð-vestanlægðirnar? Er það vegna þess að NAO er búinn að vera negatífur undanfarinn ár eða hvað?

Hermundur Sigurdsson (IP-tala skráð) 22.6.2011 kl. 22:15

4 identicon

Hér er áhugaverð lesning um sólvirkni og NAO. http://www.climatelogic.com/book/export/html/182

Hermundur Sigurdsson (IP-tala skráð) 22.6.2011 kl. 22:23

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Hjalti. Ég hef frekar á tilfinningunni að júlíveður endist fram í ágúst frekar en að júníveður endist fram eftir júlí. En ég held nú samt að ekkert sé á slíkt að treysta - veðrið fer ekki eftir neinum slíkum reglum til lengdar. Langt er síðan gegnheilt rigningasumar hefur komið hér sunnanlands  - en þó eru nokkrir fyrri- og seinnihlutar sumars þegar rignt hefur mikið og lengi. Hermundur: Já, NAO-talan hefur verið heldur neikvæð um sinn. Þótt hún sé ágæt til síns brúks er þar ekki allt sem sýnist og margs konar misskilningur á ferðinni. Fyrir rúmu ári skrifaði ég pistil um NAO og Ísland á vef Veðurstofunnar og hét hann Ísland og NAO-fyrirbrigðið. Þar má einnig finna fjölmargar tilvísanir í greinar og vefsíður (í sérstöku pdf-viðhengi).

Trausti Jónsson, 23.6.2011 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 113
  • Sl. viku: 1533
  • Frá upphafi: 2348778

Annað

  • Innlit í dag: 39
  • Innlit sl. viku: 1337
  • Gestir í dag: 36
  • IP-tölur í dag: 35

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband