Dýpkandi lægð

Jæja, hér tókst mér að þurrka út langan (og gáfulegan pistil) um dýpkandi lægð. Ég var aðeins að leiðrétta veigalitla stafsetningarvillu (snöft). En skýringarmyndirnar má þó sjá í dálknum nýjustu myndir hér neðar til hliðar. Hvað þær duga mönnum, skýringarlausar, veit ég ekki. Ég reyni að koma ámóta efni að síðar. Nóg er yfirleitt af lægðunum - nema helst í vetur. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Ef að þú gerir svona mistök (litar textan og eyðir óvart). Þá dugar að ýta á "afturkalla" (eða "undo" í Internet Explorer)  (Ctrl+Z) til að ná aftur fram þeim texta sem þú eyddir.

Hinsvegar þykir mér ólíklegt að þú getir þetta núna. Þar sem þú ert væntanlega búinn að eyða þessu úr minni tölvunnar hjá þér með nýjustu aðgerðum. Þessi texti gæti þó verið í minni tölvunar hafir þú afritað hann þar inn og ekki afritað neitt nýtt inn í skyndimynni vafrans í síðustu aðgerðum. 

Jón Frímann Jónsson, 26.12.2010 kl. 02:37

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þegar maður skrifar inn ritsvæðið á blogginu borgar sig að vera sífellt að ''vista uppkast'' meðan maður er að skrifa, þá missir maður bara lítið ef svona kemur fyrir, bara það síðasta frá því maður vistaði uppkastið síðast.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.12.2010 kl. 12:26

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég geri þetta orðið alltaf, það sem Sigurður talar um, eftir að ég eyddi "óvart" færslu, sem ég vandað mig óvenju mikið við.

Gunnar Th. Gunnarsson, 26.12.2010 kl. 17:47

4 identicon

Gott er að skrifa pistlana í Word eða öðru ritvinnsluforriti, laga þar og breyta eftir hentugleikum, og líma síðan inn á bloggsvæðið ...

Hlynur Þór Magnússon (IP-tala skráð) 26.12.2010 kl. 18:33

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Öruggast er auðvitað að skrifa inn á word.

Sigurður Þór Guðjónsson, 26.12.2010 kl. 20:09

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka piltar. En ég á nærri því alltaf afrit af því sem ég geri og ekki má glatast. Pistillinn sem hvarf var bara eitthvað sem skrifað var í hita leiksins, orðið allt of langt og ruglingslegt. Ég vona að þetta fari ekki að dúkka upp einhvers staðaru úr internetfeninu -  en annað eins gerist nú.

Trausti Jónsson, 27.12.2010 kl. 01:08

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Þetta gladdi mig ósegjanlega,Trausti ekki óhapp þitt,heldur það að svona lagað hefur hent mig. Það segir mér að sú djúpstæða lægð,sem ég staðfærði í heilabúi mínu,vegna svona mistaka var bara ýmyndin ein.  þetta hendir greinilega vaska menn.

Helga Kristjánsdóttir, 27.12.2010 kl. 01:14

8 Smámynd: Hörður Þórðarson

Takk fyrir pistilinn, Trausti. Það er ástæðulast að mæðast. Ef þú lítur á þetta frá sjónarmiði Zen, þá sleppir þú þessu frá þér og skilur að það var aldrei neinn pistill.

Hörður Þórðarson, 27.12.2010 kl. 08:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 26
  • Sl. sólarhring: 342
  • Sl. viku: 1600
  • Frá upphafi: 2350227

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 1473
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband