Dæmigerð vetrarhringrás yfir landinu

Nú ríkir mikið háþrýstisvæði á stóru svæði við Ísland og Grænland. Loftþrýstingur komst meira að segja upp fyrir 1040 hPa - það er býsna mikið. Vindur er lítill við miðju háþrýstisvæða enda setur snúningur jarðar skorður við mjög kröppum hæðasnúningi í stórum þrýstikerfum, geymum það. 

Núningur milli vinds og yfirborðs jarðar veldur því vindur nærri yfirborði blæs nær aldrei samsíða þrýstilínum heldur undir horni, misstóru í átt til lægri þrýstings. Í hæðarhring (sólarsinnis snúningur) blæs vindur því út frá hæðarmiðjunni. Í staðinn fyrir það loft sem leitar út kemur loft að ofan í staðinn. Loft á niðurleið hlýnar og ský eyðast. Þess vegna er úrkoma oftast lítil í hæðum og í námunda við hæðabeygjur. Þar sem vindur er oftast hægur og hlýtt loft er á niðurleið fyrir ofan verða til kjöraðstæður fyrir myndun hitahvarfa. Neðan þeirra getur mengun safnast fyrir og jafnvel þokuslæðingur.

Allt þetta á sér þó undantekningar því háþrýstisvæði eru aldrei alveg stöðug - en látum slíkt eiga sig. Hægur vindur og bjart veður gefur tilefni til þess að áhrifaþættir sem oftast eru duldir fá að njóta sín. Þar á meðal er lóðrétt hringrás sem landið skapar. Loft kólnar yfir hálendi og víðáttumiklu flatlendi á láglendi. Það leitar undan halla í átt til sjávar.

Svo hagar til hér á landi að bjartviðri er algengara í norðanátt heldur en sé áttin sunnanstæð. Þess vegna set ég lítilsháttar norðanátt í myndardæmið hér að neðan.

vetrarhringras

Kortagrunnur eftir Þórð Arason, Bláu örvarnar tákna kalt loft sem streymir út frá landinu til allra átta. Í þessu tilviki er norðaustanáttin (grænar örvar) veik og nær ekki að hreinsa kalda loftið burt og bjart veður er yfir mestöllu landinu. En þar sem afstreymið frá landi mætir norðaustangolunni verður til samstreymisbelti. Yfir þvi leitar loft upp og él vilja gjarnan myndast við ströndina þótt bjart sé í sveitum. Oft munar þá miklu á hita, t.d. við utanverðan Eyjafjörð annarsvegar og inni í sveitinni hins vegar. Stöku sinnum getur snjóað talsvert í útsveitunum við þessi skilyrði.

Þegar landloftið á Suðvesturlandi og í Borgarfirði kemur út yfir sjó minnkar núningur snögglega milli þess og yfirborðsins og vindhraði eykst lítillega, segja má að kalda loftið missi fótanna um stund. Þá verður til mjótt niðurstreymissvæði og ef ský eru til staðar leysast þau upp, oftast eru reyndar engin ský í landáttinni hvort sem er.

Menn mættu gefa þessum smáatriðum gaum, vegna þess að landið hefur þessi sömu áhrif þegar þrýstilínur eru þéttari og smáatriði vilja týnast. Þegar vindur stendur á land af hafi vex núningur og uppstreymi vill myndast, þegar hann stendur af landi minnkar núningur og niðurstreymi myndast.

En núverandi hæð ætlar að gerast býsna óvenjuleg og mjög spennandi verður að sjá með hvaða hætti hún gefur eftir. Þrýstingur er þegar farinn að lækka lítillega. Norðanáttin austan hæðarinnar veldur kuldum á Bretlandseyjum og víðar í Evrópu þessa dagana. Það er líka spennandi að fylgjast með þeim.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinbjörnsson

Afar áhugavert Trausti!  Gleiðstreymið er vitanlega sérlega áberandi á Suðurlandi, en líka Í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar og ef maður tínir til frekari smáatriði á Úthérað einnig heima þarna.  Fer þó eftir styrkir NA-áttar, en í stöðu eins og þessari má frekar  tala um  N- eða jafnvel NV-átt, sem eykur þá frekar á gleiðstreymi lofts á Austurlandi út Hérað (og einnig niður Vopnafjörð ef út í það er farið) !

ESv

Einar Sveinbjörnsson, 28.11.2010 kl. 10:52

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka þér fyrir Einar. Það fer auðvitað eftir vindáttinnni hvar niðurstreymis af þessu tagi gætir.

Trausti Jónsson, 29.11.2010 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 52
  • Sl. sólarhring: 54
  • Sl. viku: 543
  • Frá upphafi: 2343305

Annað

  • Innlit í dag: 48
  • Innlit sl. viku: 494
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband