Veðurfræðirit á íslensku – þýdd: Veðrið (1965)

Þessi bók markaði mikil tímamót hjá ungum veðuráhugamönnum þegar hún kom út 1965. Hér Í henni er fjallað um veðurfræði á nútímavísu og ljósi varpað á fjölmörg atriði sem engar skýringar höfðu fengist á áður hér á landi. Þess er t.d. að minnast að stuttur veðurkafli í mjög góðri bók, Heimurinn okkar, var ekki mjög skiljanlegur börnum, útþensla alheimsins og sveigja rúmsins komst þar hins vegar að einhverju leyti til skila (já, það er alveg satt). Heimurinn okkar kom út á að giska áratug áður en Veðrið og vakti einnig mikinn áhuga á jarðsögunni, en veðurfræðin þar var mjög óljós þeim sem þetta skrifar.  

Jón Eyþórsson veðurfræðingur þýddi bókina Veðrið en hún var ein af þeim fyrstu í svonefndu alfræðasafni Almenna bókafélagsins. Þýðingin var vandaverk, sérstaklega vegna þess að þar komu fyrir mörg hugtök sem ekki höfðu hlotið íslensk nöfn. Nýrra orða var því þörf og leysti Jón það vandamál í flestum tilvikum auk þess sem texti hans er skýr og vel fram settur.  

Ég hafði ekki litið á bókina mjög lengi þar til núna fyrir nokkrum dögum. Flesthvað í henni má standa eins og það er. Hefur þó þann galla frá sjónarhóli Íslands að umfjöllun miðast við bandaríska staðhætti, ekkert er við því að gera þar sem bókin er samin með þarlenda lesendur í huga.  

Sumar áherslur eru þó einkennilegar nú á dögum þrátt fyrir að vera sjálfsagðar þá. Milli 1950 og 1960 voru menn t.d. vissir um að stjórn manna á veðri væri innan seilingar. Þeirrar bjartsýni gætir á síðum bókarinnar. Menn höfðu réttilega reynt að í sumum tilvikum er hægt að stjórna úrkomumyndun í skýjum með því að dreifa yfir þau þéttikjörnum. Þetta kallar Jón Eyþórsson skýjasöllun. Fyrstu tilraunir gáfu tilefni til bjartsýni og fór hún satt best að segja mjög úr hófi. Á bls. 124 má t.d. lesa þetta:

 

Með tilraunum á nærviðri halda sérfræðingar samt, að mönnum geti lærzt að hafa hemil á sjálfu veðrinu. Eitt af því sem gefur hvað beztar vonir um taumhald á veðri, er skýjasöllun. Nýlegar tilraunir benda til þess að takast muni að lokum að gera óvirkar haglhríðar þær, sem nú eyðileggja oft uppskeru og önnur verðmæti, og enn fremur að eyða hinum ægilegu skýjagöndlum sem eru aflgjafar fellibylja.

Enn einkennilegri er langur kafli um áhrif veðurs á skapferli manna og meira að segja vitnað í frægar bullkenningar Ellsworth Huntington sem líklegan sannleika. Fjallað er um rit eftir dr. Clarence A. Mills (en ég þekki það ekki) þar sem því er haldið fram að ólund og fallandi loftvægi haldist í hendur, m.a. (bls.110): 

 

En þeir, sem veikir eru fyrir, geta fallið fyrir ofurborð vegna áhrifa illviðris og lasleiki þeirra breyst í alvarlega sjúkdóma. Og veður getur hleypt slíkum fítonsanda í menn, sem eiga í sálarstríði, að þeir missi stjórn á sér og lumbri á náunganum.

Mér finnst varla trúverðugt að það sé sérstakt álag á skapferli manna að fara í rykk fram og til baka um Hellisheiðina, en á þeirri leið verða menn fyrir stærri og sneggri loftþrýstibreytingum en í öllum lægðum. Eða í lyftunni upp í turninn í Kópavogi, á efstu hæðinni er þrýstingur a.m.k. 7-8 hPa lægri en á þeirri fyrstu, aldrei kemur sú lægð hér að hún hafi við þrýstibreytingunni sem menn verða fyrir í lyftunni. Menn sem vinna í skýjakljúfum hljóta að vera óvenjutæpir á sinni.  

En þetta eru aukaatriði, flest í bókinni stendur vel af sér þau 45 ár sem liðin eru frá útkomu hennar. Alfræðasafn AB var mikill fengur.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Og nú vantar oss sárlega nýtískulega veðurbók út frá íslenskum staðháttum!

Sigurður Þór Guðjónsson, 30.8.2010 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 29
  • Sl. sólarhring: 54
  • Sl. viku: 520
  • Frá upphafi: 2343282

Annað

  • Innlit í dag: 26
  • Innlit sl. viku: 472
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband