Snorrahátíð 1947

Nú minnast menn þess að 70 ár eru liðin frá því að stytta Gustav Vigeland af Snorra Sturlusyni var afhjúpuð í Reykholti í Borgarfirði. Þá var haldin þar eftirminnileg hátíð - og var veðrið sérlega hagstætt. 

Þetta sumar er reyndar í hópi frægra rigningasumra á Suður- og Vesturlandi - harla fáir þurrir dagar og stytti varla upp fyrr en langt var liðið á haust. Austan- og norðaustanlands fær það hins vegar hina bestu einkunn - eitt af óskasumrum þeirra landshluta. 

Norðanáhlaup hafði þó gert dagana 6. til 8.júlí - með mikilli veðurhæð miðað við árstíma. Þá var sagt að snjóað hefði niður undir byggð á Þingvöllum - rétt eins og í öðru frægu kasti í júlí 1970. Óvenjumikið rigndi á Norðausturlandi þessa daga.

Dagblaðið Tíminn segir í lítill frétt á forsíðu þann 8. júlí:

„Í fyrradag og alla fyrri nótt geisaði ofviðri mikið um land allt, sem algerlega er einsdæmi á þessum tíma árs, eftir því sem Veðurstofan tjáði blaðinu í gær.“

Víkverji segir skemmtilega frá í Morgunblaðinu sama dag:

„Skemtiferðir bæjarbúa um helgina verða mörgum minnisstæðar. Á Þingvöllum og fleiri stöðum, sem ferðafólk leitar til, stóðu menn i höm allan sunnudaginn, eins og útigangshross á Þorranum. Annaðhvort er almanakið orðið hringavitlaust, eða að það verður að snúa öllu tímatali við. Kalla það vetur, sem við nú nefnum sumar og sumar vetur. Það er rjettnefni. Jeg hitti kunningja minn i gær, sem var að koma úr sumarfríi. Hann bölvaði þeim illu forlögum, sem höfðu rekið hann til að eyða sumarfríinu sínu þetta snemma. Annan hitti jeg, sem var að fara í sumarfrí. Hann krossbölvaði yfir að hafa ekki farið fyr í frí.“

Svo var eldgosið mikla í Heklu auðvitað í fullum gangi. 

Dagana 20. til 22. gerði síðan óvenjulega hitabylgju. Hennar gætti um mestallt land. 

Snorrahátíð var haldin sunnudaginn 20. júlí - laugardagshátíðir eru seinni tíma fyrirbrigði. Við skulum líta á Íslandskort sem gildir kl. 18 þann dag.

w-blogg120717a

Myndin skýrist nokkuð sé hún stækkuð. Rauðu tölurnar sýna hitann, 20 stig í Síðumúla í Borgarfirði og sjálfsagt meira þegar best lét í Reykholti. Það er óvenjulegt að sjá 20 stiga hita á Loftsölum í Mýrdal og 19 stig á Fagurhólsmýri og á Dalatanga í austanáttinni. Austur í Fagradal í Vopnafirði má sjá 22 stig. Hiti fór þar í 23,7 stig og 25,0 á Hallormsstað. 

Næsti dagur, sá 21. varð enn merkari um landið vestanvert. Hiti fór þá í 20,4 stig í Reykjavík og í 24,8 stig vestur í Stykkishólmi - hæsti hiti sem þar hefur nokkru sinni mælst. Þann dag hafði þokan hins vegar tekið mestöll völd á Norðurlandi. 

Svo gekk hann aftur í rigningar syðra. 


Bloggfærslur 12. júlí 2017

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 16
  • Sl. sólarhring: 66
  • Sl. viku: 507
  • Frá upphafi: 2343269

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 459
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband