Páskahretið mikla 1917 (hundrað ára minning)

Þekktasta páskahret síðustu aldar er vafalítið það sem skall á þann 9. apríl 1963. Þetta var þriðjudagur í dymbilviku. Gleymir því enginn sem þau umskipti lifði. En við lítum nú enn lengra aftur í tímann, til páska 1917. Þá gerði líka afspyrnuslæmt áhlaup, furðulíkt því 1963. Aðalmunurinn var e.t.v. sá að vikurnar á undan voru ekki nærri því eins hlýjar 1917 og í síðara tilvikinu og gróður því ekki jafnlangt genginn þá og 63. Tíð hafði þó almennt verið hagstæð frá því um áramót.

Í tíðarhnotskurn hungurdiska segir um janúar til mars:

Janúar: Fremur hægviðrasöm og hagstæð tíð lengst af. Mjög þurrt víðast hvar. Fremur hlýtt.
Febrúar: Hægviðrasöm og hagstæð tíð lengst af. Fremur hlýtt.
Mars: Lengst af fremur hagstæð tíð, einkum suðvestanlands. Fremur hlýtt þar til undir lok mánaðar.

Hér verða fyrst sýnd nokkur veðurkort amerísku endurgreiningarinnar, síðan gerum við dálítinn samanburð á hretunum og loks rennt í gegnum helsta tjón í hretinu 1917. 

Slide1

Fyrirsögn á forsíðu Morgunblaðsins. Laugardagskvöldið fyrir páska bar upp á 7. apríl 1917.

Slide2

Veðurkort föstudagsins langa, 6. apríl, virðist heldur sakleysislegt. Grunn lægð á Grænlandshafi - engar opinberar veðurspár að hafa og því síður nokkrar tölvuspár. Gaman væri að vita hvort einhverjir hafa samt haft grun um hvað í vændum var. 

Slide3

Háloftakortið á hádegi sama dag afhjúpar stöðuna - og hér sjá vanir menn að illt gæti verið í efni (ekki þó neitt öruggt að spá eftir þessu korti einu og sér). Nokkuð hraðfara háloftalægðardrag er á austurleið yfir Suður-Grænlandi. Hvort greiningin nær þessu réttu vitum við ekki - en trúlega er farið nærri lagi því framhaldið er mjög trúverðugt. 

Slide4

Hér er komið hádegi þann 7. og hretið skollið á á Vestfjörðum - 10 vindstig af norðausturi talin á Ísafirði. Lægðarmiðjan er hér ekki á alveg réttum stað - enn var hægur suðvestan í Stykkishólmi kl. 14 (15 utc) - og þá var ekki heldur farið að hvessa að ráði í Grímsey. En síðan er eins og veggur af köldu lofti úr norðri falli suður yfir landið, lægðin heldur áfram að dýpka og þrýstingur vestan við land rýkur upp. 

Kortið sem gildir kl. 6 að morgni páskadags er vægast sagt ískyggilegt.

Slide6

Þrýstilínur í knippi yfir landinu og vindhraði ógurlegur, frostharka mikil og blindhríð. 

Við getum líka skoðað atburðarásina á línuriti. 

w-1917-04a

Lárétti ásinn sýnir daga aprílmánaðar 1917. Lóðréttu ásarnir eru tveir, sá til vinstri sýnir þrýstimun yfir landið, mun á hæsta og lægsta samtímaþrýstingi við sjávarmál í hPa. Ekki eru hér fáanleg nema þrjú gildi á sólarhring og sýna bláleitu súlurnar þau. Þrýstimunurinn er mestur að morgni páskadags, um svipað leyti og kortið að ofan gildir, 37,4 hPa. Þetta er óvenjuleg tala - hugsanlega eru ekki allar loftvogir alveg réttar, en samt. Þrýstimunur af þessu tagi má telja órækan vitnisburð um fárviðri einhvers staðar á landinu - sé hann er meiri en 20 hPa eru stormlíkur miklar. 

Hægri lóðrétti ásinn sýnir hita í Reykjavík og markar rauða strikalínan hann, þrisvar á sólarhring. Á einni nóttu fellur hitinn úr 5 stigum niður í meir en -8 stiga frost - og síðar enn neðar. - Þann 9 dúraði aðeins, en síðan bætti aftur í vind sé að marka þrýstimuninn. 

Næst sjáum við samanburð við hitann í Reykjavík 1963. 

w-1917-04b

Blái ferillinn er hér 1917, en sá rauði 1963, alveg ótrúlega líkir ferlar. Hér hefur dögum 1963 verið hnikað um tvo þannig að hretin falli saman. En eins og sjá má var mun hlýrra vikuna áður 1963 heldur en 1917. 

Línurit sem sýna þrýstimun í hretunum báðum eru líka ámóta - þó ekki eins lík og hitaritið. 

w-1917-04c

Munurinn varð meiri 1917 heldur en 1963, en síðari toppurinn var hærri 1963 heldur en 1917 (upplausn í tíma þó betri). Loftþrýstiferlarnir (ekki sýndir hér) eru ólíkari. Sá virðist hafa verið helstur munur á veðrunum að grænlandslægðardragið 1963 kom úr norðvestri en 1917 kom það beint úr vestri. 

Trúlega yrði veðrum sem þessum báðum spáð með einhverjum fyrirvara í tölvum nútímans. Veður af þessari ætt eru ekki óalgeng, en eru til allrar hamingju sjaldan svona óskaplega hörð og snörp. Þar að auki er auðvitað óvenjulegt að þau hitti á dymbilviku eða páska og komist þar með í hóp páskahreta - sem af einhverjum ástæðum vekja oftast meiri áhuga en önnur köst. 

En lítum nú lauslega á helsta tjón í veðrinu.

Að minnsta kosti þrír urðu úti, kona við Valbjarnarvelli í Borgarfirði, maður við Borg í Arnarfirði og maður við Hornafjarðarfljót.

Miklir fjárskaðar, m.a. í Húnavatnssýslum, í Dýrafirði og Arnarfirði. Miklir fjárskaðar urðu einnig á Síðu og í Fljótshverfi og austur í Lóni. Mikið tjón varð á bæjarsímanum á Seyðisfirði og brotnuðu flestir staurar, og allir milli Fjarðarárbrúar og Búðareyrar. Skúta sökk þar á firðinum og önnur á Eskifirði. Vélbátar brotnuðu bæði á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði. Í Reyðarfirði fauk hlaða og fjárskaðar urðu. Hlaða fauk í Mjóafirði. Bátar og hús skemmdust á Djúpavogi og þar í grennd, einn bátur með þremur mönnum fórst. Bátar sukku á Höfn í Hornafirði.

Fjögur útróðraskip fuku undir Eyjafjöllum og tvær hlöður á Rauðafelli þar í sveit. Hlöður fuku á Háeyri og í Votmúla í Flóa, símstaurar brotnuðu við Eyrarbakka. Skaðar urðu á húsum í Borgarfirði og fé fennti í Fornahvammi, Hraundal og víðar. Vélbátur brotnaði í Grundarfirði. Skaðar urðu á jörðum í Hornafirði og í Lóni af sandfoki og grjótflugi (nákvæm dagsetning þess tjóns óviss).


Bloggfærslur 7. apríl 2017

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg120324a
  • w-blogg080324a
  • w-blogg010324c
  • w-blogg010324b
  • w-blogg010324a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 76
  • Sl. viku: 973
  • Frá upphafi: 2341347

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 891
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband