Sein lágmörk (?)

Fyrir nokkrum dögum, aðfaranótt þess 24. apríl, gerðist það að hiti á fáeinum veðurstöðvum mældist lægri en áður á árinu til þessa. Lægsti hiti á einstökum veðurstöðvum fyrri hluta árs mælist yfirleitt á tímabilinu frá því í janúar til mars, stöku sinnum fyrstu dagana í apríl, en mjög sjaldan síðar. 

Til þess að þetta gerist þarf nokkuð snarpt síðbúið kuldakast, en sömuleiðis þarf árið fram að því að hafa verið hlýtt - rétt eins og verið hefur í vetur.

En spurning vaknaði um hversu algeng svona síðbúin lágmörk séu og hver sé síðasta dagsetning lægsta lágmarks fyrri hluta ársins. Gagnagrunnur Veðurstofunnar svarar því vonandi nokkurn veginn rétt. Hægt er að leita um 90 ár aftur í tímann - en lágmarksmælingar voru framan af nokkuð gisnar, stöðvar voru fáar og lágmarksmælar ekki notaðir á þeim öllum. Eftir því sem stöðvum hefur fjölgað - og þá sérstaklega eftir að sjálfvirku stöðvarnar komu til sögunnar eru líkur á afla meiri - færra fer framhjá þéttu mælikerfi heldur en gisnu. 

Það er ekki nema í tveimur kuldaköstum sem lágmörk fyrri hluta ársins hafa komið seinna en nú var, það er að segja seinna en 24. apríl

Merkilegt kuldakast gerði um mánaðamótin apríl/maí 2013. Um það var fjallað í pistlum hungurdiska á sínum tíma t.d. þeim frá 29. apríl. Þann 30. mældist lægsti hiti ársins fram a því á 16 sjálfvirkum stöðvum og einni mannaðri - og í kjölfarið þann 2. maí mældist lægsti hiti ársins fram að því á fjórum sjálfvirkum stöðvum. Þetta eru síðbúnustu lágmörk sem við vitum um á landinu. - Þess má geta að ekkert þessara lágmarka varð lægsti hiti ársins 2013 - haust og snemmvetur síðar á árinu gengu frá þeim. 

Hitt tilvikið var vorið 1932, en þá mældist lægsti hiti ársins fram að því á tveimur stöðvum (Grímsey og Hraunum í Fljótum) þann 25. apríl. Einstök hlýindi höfðu verið í vetrarmánuðunum þetta ár - og gerðu þau þennan atburð mögulegan. 

En á landinu öllu? Jú, árið 2013 mældist lægsta lágmark fyrri hluta árs ekki fyrr en 12. apríl (þá í Svartárkoti). Þann 14. apríl 1914 mældist frostið á Grímsstöðum á Fjöllum -24,0 stig - það mesta sem við vitum um á landinu fyrri hluta árs það árið. - En lítið er af dagsettum lágmörkum frá þessum tíma í gagnagrunninum - vonandi komast þau þangað síðar. 

Í Reykjavík er síðasta dagsetning lágmarks að vori 12. apríl, það var í páskahretinu fræga 1963 og þess má geta að sú næstsíðasta er 9. apríl, í páskahretinu mikla 1917 sem fjallað var um á dögunum hér á hungurdiskum. Á Akureyri hefur lægsta lágmark fyrri hluta árs aldrei mælst í apríl, síðasta dagsetning þar er 28. mars 2009. 

Lægsti hiti á landinu það sem af er ári mældist í Möðrudal 14. janúar, -24,7 stig. Það er vægast sagt ólíklegt að við sjáum lægri tölu en það úr þessu - og lægri tala hefur ekki sést að haustlagi fyrr en 4. nóvember (gæti auðvitað dottið inn eitthvað fyrr í haust - hver veit). 


Bloggfærslur 27. apríl 2017

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg120324a
  • w-blogg080324a
  • w-blogg010324c
  • w-blogg010324b
  • w-blogg010324a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 76
  • Sl. viku: 973
  • Frá upphafi: 2341347

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 891
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband