Nćst sólu

Samkvćmt almanaki háskólans er jörđ nćst sólu á morgun, 4. janúar. Vegna ţess ađ jarđbrautin er sporbaugur en ekki hringur er mislangt í sólina eftir árstíma. Almanök hafa lengi veriđ ađgengileg hér á landi. Magnús Ketilsson sýslumađur í Búđardal á Skarđsströnd hefur haft slíkt undir höndum ţegar hann ritar í veđurdagbók sína 31. desember áriđ 1791: Hćgđ, ţykkur, dró úr. Perihelium. 

Perihelium er sólnánd - fyrir tvö hundruđ árum bar hana upp á gamlársdag - hefur seinkađ um fjóra daga síđan. - Okkur nćgja ađ vísu ekki tvćr dagsetningar til ađ segja ađ seinkunin sé fjórir dagar - ţví dagatal okkar er stillt eftir sólstöđum - ţađ er fastákveđiđ ađ sólstöđurnar skuli haldast á sama tíma árs. Ţessi leiđrétting á sér ţó ekki stađ alveg jafnt og ţétt heldur í rykkjum - bćtt er inn einum degi á fjögurra ára fresti (hlaupársdegi) en ekki 6 klukkustundum á ári. - Svo ţarf ađ auki ađ sleppa ţremur hlaupársdögum á hverjum fjögur hundruđ árum til ađ sólstöđurnar haldist á sínum stađ í almanakinu til lengdar. 

En ţessir rykkir ţýđa ađ bćđi sólstöđur og sólnánd fćrast lítillega til milli daga frá ári til árs, sólnánd er ţannig 3. janúar í sumum árum - eftir ţví hvernig stendur á hlaupársrykknum. 

En ekki er hćgt ađ halda bćđi sólstöđum og sólnánd kyrrum í dagatalinu. - Sólnánd rekur smám saman burt frá vetrarsólstöđum til vorjafndćgra - og ţađan áfram til sumarsólstađa - og auđvitađ áfram hringinn. 

Af dagsetningunum tveimur 4. janúar 2016 og 31. desember 1791 getum viđ séđ ađ í fyrstu nálgun er rekiđ um tveir dagar á öld, 183 aldir tćki ţá ađ fara hringinn, 18 ţúsund og ţrjú hundruđ ár. Viđ gćtum fariđ í almanök nokkurra ára, flett upp nákvćmari tímum og fundiđ út ađ hringurinn tekur í raun um 21 ţúsund og sex hundruđ ár. 

Eftir tíu ţúsund ár - eđa svo verđur jörđ nćst sólu í júní - og sólnánd og sumarsólstöđur falla saman - en nú er sólnánd tćpum hálfum mánuđi á eftir vetrarsólstöđum. Ţangađ til vinnur sólnándin sig fyrst í gegnum janúar, síđan febrúar og koll af kolli. 

Viđ sjáum svo lítiđ til sólar í skammdeginu ađ litlu skiptir hvort hún er nćrri eđa fjarri á ţeim tíma. - En á sumrin skiptir ţađ miklu máli. Ţess vegna var hlýtt á norđurslóđum ţegar sólnánd og sumarsólstöđur féllu síđast saman - fyrir meir en tíu ţúsund árum - svo hlýtt ađ ţađ tókst ađ losa um ísöldina og gera betur. 

En ţó sólnánd stefni nú til sumars (hćgum skrefum) kemur annađ á móti - ekki alveg jafnhagstćtt. Möndulhalli jarđar er breytilegur - hann rćđur ţví hversu hátt sól er á lofti ađ sumarlagi. Nú er hann minnkandi - heimskautsbaugur er á leiđ norđur og fer norđur fyrir Grímsey síđar á ţessari öld. Bćđi heimskautasvćđi (svćđin norđan og sunnan heimskautsbauga) og hitabelti (svćđiđ milli hvarfbauga) rýrna. Sól lćkkar á lofti viđ sumarsólstöđur. Möndulhallasveiflan tekur um 41 ţúsund ár.

Ţriđja meginsveiflan er sú ađ hringvikiđ - aflögun brautar jarđar um sól frá hringlögun - breytist. Sé hringvikiđ lítiđ er munur á fjarlćgđ sólar viđ sólnánd og sólfirrđ (ţá er jörđ lengst frá sólu) lítill - sé ţađ stórt verđur munurinn meiri. Hringvik er nú minnkandi - áhrif sólnándar verđa ţví minni ţegar sólnánd og sumarsólstöđur falla nćst saman heldur en síđast var. 

Um áhrif jarđbrautarţátta á veđurfar var gróflega fjallađ í gömlum hungurdiskapistli - 

Gamall pistill um jarđbrautarţćtti


Bloggfćrslur 3. janúar 2017

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 139
  • Sl. sólarhring: 318
  • Sl. viku: 1455
  • Frá upphafi: 2349924

Annađ

  • Innlit í dag: 118
  • Innlit sl. viku: 1321
  • Gestir í dag: 117
  • IP-tölur í dag: 113

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband