Ćttarsvipur međ júlí nú og í fyrra (2016 og 2015)

Norđaustlćgar áttir voru ríkjandi í júlí - eins og í fyrra, en hún var ţó vćgari nú en ţá og mun hlýrri. Byggđarhitinn nú reiknađist 10,45 stig, en 8,64 stig í júlí 2015, Međalhiti júlímánađar frá 1931 til 2010, er 10,02 stig. 

Norđaustanátt var einnig ríkjandi í háloftunum í báđum mánuđum. Kortiđ hér ađ neđan sýnir međalhćđ 500 hPa-flatarins og vik frá međallagi áranna 1981 til 2010. 

w-blogg040816a

Hćđarhryggur er hér yfir Grćnlandi en lćgđ austurundan. Litirnir sýna vik, bleikir jákvćđ, en bláir neikvćđ. Ţetta er alveg sami svipur og í fyrra - en ţá var allt samt öflugra - eins og sjá má á nćstu mynd.

w-blogg040816b

Mikill ćttarsvipur er međ ţessum kortum. - Ađ međaltali er vćg vestanátt ríkjandi í háloftunum í júlímánuđi. Stađa sem ţessi hefur ţó komiđ upp fyrr á tímum - en hin sterka stađa í fyrra verđur ţó ađ teljast óvenjuleg. 

Nćst lítum viđ á vestanţátt vindsins í háloftaathugunum yfir Keflavíkurflugvelli í júlímánuđi allt aftur til 1952 - fyrst í sömu hćđ og á kortunum hér ađ ofan, 500 hPa. Flöturinn sá er í um 5,5 km hćđ yfir jörđ ađ sumarlagi. 

w-blogg040816c

Lóđrétti ásinn sýnir styrk vestanáttarinnar í m/s, austanátt kemur fram sem neikvćđ tala. Viđ sjáum ađ júlí 2015 hefur skoriđ sig mjög úr - en viđ tökum líka eftir ţví hversu austanáttir hafa veriđ miklu algengari síđasta áratuginn eđa svo heldur en áratugina ţar á undan - ţetta atriđi hefur reyndar veriđ til umrćđu á hungurdiskum áđur. Í pistli í vor kom fram ađ ritstjórinn er orđinn nokkuđ langeygur eftir vestanáttarsumri - jú júlí 2013 var eitthvađ í áttina - en frekar einstakur samt miđađ viđ ástandiđ ađ undanförnu. 

Nćsta mynd sýnir keđjumeđaltöl vestanţáttar í júlí - en fyrir fleiri hćđir, 850 hPa-flöturinn er í um 1500 metra hćđ, 700 hPa í um 3 km, 300 hPa rúmlega 9 km, 100 hPa í rúmum 16 km og 30 hPa í um 24 km hćđ.

w-blogg040816d

Ţađ er bleika línan sem sýnir keđju gagnanna sem notuđ voru á fyrri myndinni. Viđ sjáum strax ađ ţessi vestanáttarrýrnun kemur fram í öllum hćđum - meira ađ segja í 30 hPa, talsvert uppi í heiđhvolfinu, ţar sem bćtt hefur lítillega í austanáttina (gögnin ná ţar ađeins aftur til 1973). 

Í 850 hPa-fletinum (gráa strikalínan) valt međaltaliđ í kringum núlliđ fram yfir 1990, en ţá tóku austlćgu áttirnar völdin - dálítill afturbati varđ um aldamót. Myndin sýnir ađ síđustu 7 júlímánuđi hefur eindregin vestanátt ađ međaltali nćr horfiđ úr öllu veđrahvolfinu - rétt ađ 300 hPa međaltaliđ (grćn lína) hangi vestanáttarmegin - langt neđan viđ „venjulegt“ ástand fyrri ára. 

En ţessu ástandi hlýtur ađ linna - langtímauppgjöf háloftavestanáttarinnar í júlímánuđi er varla á dagskrá. 

Í árstíđasveiflunni er háloftavestanáttin í lágmarki fyrstu 10 daga ágústmánađar - eftir ţađ fer ađ halla til hausts. 


Bloggfćrslur 3. ágúst 2016

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 405
  • Frá upphafi: 2343318

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 366
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband