Hlýrra hljóð í spánum (en ekki eindregið mynstur)

Fyrri hluti júlímánaðar hefur verið heldur svalur víðast hvar á landinu - sé miðað við síðustu tíu ár. Sé miðað við lengri tíma reynist kalda svæðið mun rýrara. - Hiti hefur verið rétt ofan meðallags síðustu tíu ára á strandsvæði frá Vattarnesi í austri og vestur um til Reykjaness - en inn til landsins á þessu svæði hefur hiti verið neðan meðallags, sem og annars staðar á landinu. 

Jákvæða hitavikið hefur verið mest á Ingólfshöfða +0,7 stig, og +0,6 við Skarðsfjöruvita, í Kvískerjum og í Vestmannaeyjabæ. Neikvæða vikið er aftur á móti mest við Upptyppinga og Siglufjarðarveg, -2,6 stig og telst það býsna mikið. 

Hin almenni kuldi kemur ágætlega fram á þykktarvikakorti evrópureiknimiðstöðvarinnar síðustu tíu daga og sjá má hér að neðan.

w-blogg150716b

Litirnir sýna þykktarvikið. Við Ísland er það mest -62 metrar, það jafngildir um -3 stiga hitaviki í neðri hluta veðrahvolfs. Enn kaldara hefur verið við Nýfundnaland og Suður-Grænland. Sömuleiðis hefur kuldinn teygt sig austur um Evrópu - en hlýtt hefur verið í Norður-Noregi og suður á Pýreneaskaga (sem allt í einu er orðin lenska að kalla Íberíuskaga - ritstjóranum er svosem sama). 

En nú ber svo við að breytingum er spáð. Spákort næstu tíu daga er mjög ólíkt hinu fyrra.

w-blogg150716a

Hér ríkja hlýindi um mestallt svæðið sem kortið sýnir. Vikið við Ísland er allt upp í 50 metra, þess er vænst að neðri hluti veðrahvolfs verði 2,5 stigum hlýrri en að meðaltali á þessu tímabili. - Þetta eru allmikil umskipti, meir en 5 stiga hlýnun. 

En hvort og hvernig þessi hlýindi skila sér í garða og á leikvelli landsmanna er svo óvíst. Trúlega verður hlýrra á nóttum en verið hefur - en minni munur á síðdegishitanum - alla vega á þeim svæðum landsins sem hafa upp á síðkastið notið óvenjumargra sólarstunda. - Sé eitthvað að marka þessa spá á annað borð er þó ábyggilega hægt að gera ráð fyrir því að umtalsvert hlýrra verði á hálendinu en verið hefur. 

Svo er annað mál að vikamynstrið er ekkert sérstaklega eindregið - það bendir heldur til þess að fjölbreytt veðurlag leynist á bakvið meðaltalið og lítt á vísan að róa. Úrkomuspáin sem fylgir gerir ráð fyrir að úrkoman verði undir meðallagi um mestallt land - lítið undir því vestanlands - en meira fyrir norðan. Spáð er að úrkoma verði samtals yfir meðallagi suðaustanlands og á sunnanverðum Austfjörðum þessa tíu daga. 


Smávegis (fljótfærnislegt) um þurrka

Talsvert er nú rætt um þurrka - sérstaklega á Suðausturlandi. Lítum á málið á fáeinum myndum. - Ritstjórinn ákvað að nota tímabilið 1971 til 2000 til viðmiðunar - það er hans uppáhaldstímabil í slíkum reikningum. Ástæðan er sú að þá eru úrkomumælingar hvað þéttastar á landinu - og meðaltöl eru til fyrir fleiri stöðvar en fyrr og síðar. 

Mánaðarúrkomu hverrar stöðvar er varpað yfir í hlutfall af ársmeðalúrkomu þessa tímabils. Með því fæst beinn samanburður á milli stöðva - alveg sama hvort meðalúrkoma þeirra er mikil eða lítil. - Þetta er auðvelt að gera fyrir einstakar stöðvar, fyrir landshluta eða fyrir landið allt. 

Meðalhlutur hvers mánaðar í ársúrkomunni ætti að vera rúm 8 prósent - í raunveruleikanum er hlutur vormánaðanna nokkru lægri en þetta - en haustmánaðanna hærri. Þurr tímabil eru líklegri á vorin og snemmsumars heldur en að hausti og vetri. 

Fyrsta myndin sýnir þriggja mánaða summur mánaðahlutfallstalna á árunum 2010 til 2016. 

w-blogg140716a

Lárétti kvarðinn sýnir ár - merkingin er sett við júnímánuð hvers árs. Lóðrétti kvarðinn sýnir hins vegar þriggja mánaða summur hlutfallstalna. Að öðru jöfnu búumst við við því að summan sú sé í kringum 25 (fjórðungur úrkomunnar fellur á fjórðungi ársins). 

Á myndinni eru fjórir ferlar. Sá blái sýnir meðalhlutfallstölu úrkomu allra stöðva á Suðurlandi - allt frá Breiðdal í austri og vestur á Reykjanes. - Rauði ferillinn sýnir hlutfallstölu mönnuðu stöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri (hann endar í apríl 2013 - en þá var hætt að mæla á stöðinni). Græni ferillinn sýnir hlutfallstölu stöðvarinnar í Snæbýli, en sá bleiki tölu sjálfvirku stöðvarinnar á Klaustri. 

Í öllum aðalatriðum fylgjast ferlarnir nokkuð vel að - vot og þurr tímabil eru þau sömu og meira að segja sýna ferlarnir svipuð hlutföll. Þetta bendir til þess að úrkoma fylgist nokkuð vel að á öllu Suðurlandi þegar þriggjamánaða úrkoma er lögð saman og borin saman við meðaltöl. 

Við hljótum þó að taka eftir því að talsverðu munar á ferlum stöðvanna á Klaustri - sem báðir miða reyndar við meðaltal mönnuðu stöðvarinnar á árunum 1971 til 2000. Sú spurning vaknar hvort mannaða stöðin hafi verið komin úr takt við sjálfa sig síðustu árin sem hún var í rekstri - eða þá að eitthvað vanti upp á mælingar sjálfvirku stöðvarinnar. 

Það er skoðun ritstjóra hungurdiska (aðeins skoðun - vel að merkja) að mælingar á mönnuðu stöðinni hafi í raun og veru verið farnar að raskast síðustu ár hennar - miðað við fyrri tíð vegna trjágróðurs og minnkandi vinds við mælinn. Rauði ferillinn sé því „of hár“ þessi síðustu ár. Takið eftir því að hefði trjágróður alla tíð verið með sama hætti á stöðinni eru líkur til að rauði ferillinn hefði legið neðar. - Hér er möguleg ósamfella í úrkomumælingum.  

Ferlar Snæbýlis og sjálfvirka mælisins á Klaustri (sem miðar við minni trjágróður fyrri tíma - og er ekki inni í trjálundi) fylgjast betur að (sjálfvirku mælingarnar byrjuðu 2011). - En samt er ritstjórinn á þeirri skoðun að hann mæli aðeins „of lítið“ miðað við mönnuðu stöðina - og þyrfti því sitt eigið viðmiðunarmeðaltal. 

En - úrkomuhlutfallssumma bæði á Snæbýli og sjálfvirka-Klaustri er nú komin niður í 7 prósent af ársúrkomu og er það óvenjulegt - þetta er reyndar þurrasti tími ársins eins og áður sagði. Þó er ámóta lága tölu að finna á sama tíma árið 2012 - ekki þó alveg jafnlága. Eins er það eftirtektarvert að topparnir á fyrri hluta myndarinnar eru miklu myndarlegri heldur en síðari hluta tímabilsins. 

Við skulum líka líta á 6-mánaða summurnar - ætti að vera um 50 prósent ársúrkomunnar.

w-blogg140716b

Þetta er ekki ósvipuð mynd - við sjáum hér enn betur að mannaða stöðin á Klaustri hefur verið komin eitthvað fram úr sér síðustu árin sem hún var starfrækt. - Snæbýli og sjálfvirka stöðin fylgjast hins vegar vel að og sömuleiðis er lengst af ágætt samræmi milli þeirra og Suðurlandsferilsins bláa - sem endar reyndar við síðustu áramót. Vonandi verður hægt að uppfæra hann síðar í sumar. Sexmánaðaþurrkurinn á Klaustri og í Snæbýli er nú rétt búinn að toppa 6-mánaða þurrkinn 2012 - sem reyndar var mestur á tímabilinu apríl til september eins og sjá má á myndinni. 

Það er freistandi að líta á lengra tímabil - og skulum við rétt gera það.

w-blogg140716c

Hér tökum við með Suðurland (grár ferill) og Klaustur (rautt og bleikt) aftur til 1950. - Það er sárasjaldan sem 6-mánaða úrkoma hefur verið minni en nú á Klaustri. - Með því að rýna í myndina má sjá að hlutfallstölur Klausturs og Suðurlands fylgjast almennt mjög vel að - en þó hefur sjálfvirka stöðin frekar tilhneigingu til að hanga neðan í Suðurlandsröðinni - sem aftur bendir til þess að hún þurfi sína eigin viðmiðun - það er því ekki fullvíst að summa síðustu 6 mánaða - sem er sú lægsta á allri myndinni sé í raun og veru lægst - það eru ámóta þurrkar bæði 1977 og svo um miðjan 7. áratuginn. 

Ekki verður hér skorið úr um það - en auðvitað ætti að líta betur á málið. 


Bloggfærslur 14. júlí 2016

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a
  • w-blogg110424b
  • w-blogg110424b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 106
  • Sl. viku: 1800
  • Frá upphafi: 2347534

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 1547
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband