Mikil úrkoma?

Til að læra að lesa þarf að lesa - og helst mikið. Sama á við um lestur veðurkorta - til að læra á þau þarf að lesa oft og mikið. Þetta á jafnt við um ritstjóra hungurdiska sem aðra. Þegar nýjar gerðir af veðurkortum birtast þarf hann að sitja við og lesa sem flest - til að læra á þau. Fyrir nokkru (1. maí) var hér fjallað um nýja gerð korta úr ranni evrópureiknimiðstöðvarinnar - kort sem ritstjórinn er harla óvanur (og illlæs á). Ekkert er við ólæsinni að gera nema lesa því meira.

Það sem hér fer á eftir er að miklu leyti endurtekning á fyrri pistli - nema að skipt er um spá. 

Evrópureiknimiðstöðin reiknar tvisvar á dag 50 spár 15 daga fram í tímann og þuklar jafnframt á útkomunni og segir frá ef farið er nærri eða fram úr því sem mest hefur orðið í samskonar spám sem ná til síðustu 20 ára. Oft er ein og ein af spánum 50 með eitthvað útogsuðurveður - og telst það ekki til tíðinda.

En stundum gefur stór hluti spánna 50 til kynna að eitthvað óvenjulegt kunni að vera á seyði. - Líkur á því að svo sé raunverulega aukast eftir því sem styttra er í hið óvenjulega.

Reynslu þarf til að geta notað þessar upplýsingar í daglegum veðurspám. Sú reynsla mun byggjast upp - og til munu þeir sem orðnir eru vanir menn. Við lítum reynslulitlum augum á spá sem evrópureiknimiðstöðin hefur gert fyrir föstudaginn 27. maí.

Kortið sýnir hana.

w-blogg270516a

Hér er reynt að spá fyrir um hvort 24-stunda úrkomumagn er nærri metum. Tveir vísar eru sýndir - hér kallaðir útgildavísir (lituðu svæðin) og halavísir (heildregnar línur). Líkanið veit af því að úrkoma er að jafnaði í lágmarki hér á landi á þessum árstíma - sömuleiðis veit það að úrkoma um landið vestanvert er meiri en t.d. norðaustanlands.

Hér verða vísarnir ekki skýrðir frekar, en þess þó getið að veðurfræðingum er sagt að hafa varann á ef útgildavísirinn fer yfir 0,9 - og sömuleiðis ef halavísirinn (nafnið vísar til hala tölfræðidreifingar) nálgast 2,0 - hér er hann yfir 2 á allstóru svæði vestur af landinu - jafngildislínan 2 nær þó ekki alveg landi, gildið 0,0 mun algengt. Það er því fyrst og fremst á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum sem verið er að spá afbrigðilegri úrkomu.

En - líkan evrpópureiknimiðstöðvarinnar er ekki með full tök á landslagi - og þar að auki er ritstjóri hungurdiska nær reynslulaus í túlkun útgildaspáa af þessu tagi. Hvort kortið er að vara við einhverju sérstöku verður reynslan að skera úr um. 

En til að læra að lesa þarf að lesa - og helst mikið. 

Orðið „útgildavísir“ er þýðing á því erlenda „extreme forecast index“, EFI, en „halavísir“ reynir að íslenska „shift of tail“, SOT. - Þýðingar þessar hafa ekki öðlast hefðarrétt (né annan) og aðrar (og vonandi betri) munu e.t.v. sýna sig síðar. 


Bloggfærslur 27. maí 2016

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 25
  • Sl. sólarhring: 163
  • Sl. viku: 1649
  • Frá upphafi: 2349609

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 1495
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband