Fárviðrið 29. apríl 1972

Enn er fjallað um Reykjavíkurfárviðri. Þau þrjú sem komið hafa við sögu til þessa eru öll sérlega minnisstæð og ollu öll gríðarlegu tjóni bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og víða um land. Það sem nú birtist á borðinu er að eðli og uppruna gjörólíkt hinum - og sjálfsagt eru þeir fáir sem muna. Stóð það fremur stutta stund laugardagsmorguninn 29. apríl 1972. 

Slide1

Hér má sjá úrklippu úr Vísi þennan sama dag (af timarit.is). 

Stóru veðrin 1973, 1981 og 1991 áttu öll svipaðan aðdraganda - voru öll sömu ættar - og hvoru um sig fylgdu þrjár gerðir veðra - lágrastarlandsynningur, hárastarlandsynningur (eða úr hásuðri) og vestlægari stunga (lágröst) í kröppum lægðasveip. 

Fárviðrið það sem nú er fjallað um var hins vegar af norðri. Norðan- og austanveður eiga líka ólíkan uppruna. Algengust eru þau sem tengd eru því sem kallað hefur verið Grænlandsstífla. Það eru lágrastarveður - vindur er hægur í háloftunum. En norðlæg hárastarveður eru líka til. Norðanrastirnar eru þó oftast ekki eins öflugar og þær suðlægu og vestlægu - og heldur sjaldgæfari. Stundum byrjar norðankast í beinum tengslum við háröst - en endar síðan með lágröst. 

Slide2

Hér má sjá veðurkort frá hádegi 27. apríl 1972, tveimur dögum áður en veðrið skall á. Í fljótu bragði sýnist það nokkuð sakleysislegt - enda sumardagurinn fyrsti liðinn hjá. Mikið háþrýstisvæði er í námunda við Asóreyjar og annað yfir Grænlandi (sem endurgreiningin ýkir heldur) - en lægðarenna er á milli. 

Æstustu veðurnörd vita þó að þetta telst nokkuð varasöm staða. Slatti af mjög slæmum (mannskaða-)veðrum fyrri ára og alda eru í skylduliðinu. Gallinn var hins vegar sá að ekki var nokkur leið að sjá hvað úr yrði fyrir tíma tölvureikninga - ekkert að gera nema fylgjast grannt með loftþrýstihreyfingum. 

Slide3

Hættan sést betur á háloftakortum - þetta kort gildir síðdegis fimmtudaginn 27. apríl, - um einum og hálfum sólarhring fyrir illviðrishámarkið. Mjög hlýtt loft streymir til austnorðausturs inn á Norður-Atlantshaf í veg fyrir kalt loft sem kemur úr norðri fyrir vestan Ísland. - Hér er spurning um hversu vel heppnað stefnumótið verður. 

Slide4

Og það tókst svo sannarlega vel. Hér er veðrið nokkurn veginn í hámarki undir morgunn laugardaginn 29. apríl. Lægðin sem á fyrra korti var aðeins 1014 hPa í miðju er hér komin niður í 969 hPa, dýpkaði um 45 hPa á rúmum einum og hálfum sólarhring. Þetta er óvenjulegt svo seint í apríl. Mikill norðan- og norðaustanstrengur er yfir Íslandi. Þrýstimunur yfir landið fór yfir 23 hPa þegar mest var. 

Eitthvað má ráða í eðli veðursins með því að rýna í háloftakortið á sama tíma. 

Slide5

Við sjáum að töluverð norðanvindröst (þéttar jafnhæðarlínur) liggur yfir landinu vestanverðu - ásamt einskonar poka af köldu lofti (þykktin er sýnd í lit). Samspil þykktar- og hæðarflata segir mikið um eðli ofviðra en við látum það eiga sig að vera að smjatta á þeim fræðum hér - þó er freistandi að skjóta inn einu orði/hugtaki sem ekki hefur sést á hungurdiskum áður - „þykktaröst“ og mega lesendur velta vöngum yfir merkingu þess.

Slide7

Þrátt fyrir þéttar þrýstilínur yfir landinu hlýtur hinn mikli vindur í Reykjavík að hafa komið nokkuð á óvart. Fárviðri er alla vega ekki daglegt brauð - og síðan þetta var hefur vindur ekki mælst svona mikill í norðanátt á hinni opinberu veðurstöð í Reykjavík - í meir en 44 ár. 

Framan af nóttu var vindur lengst af um 15 m/s, datt um stund niður fyrir 10 m/s milli kl. 2 og 3. Eftir kl. 4 rauk hann upp fyrir 25 m/s og eftir kl.6 upp í um 30 m/s. Rétt eftir kl.8 fór hann svo um stund í 32,9 m/s - formleg hviðumæling var ekki gerð, en vísir á skífu sást fara yfir 40 m/s. - Líklegt er að mesta hviða hafi verið enn meiri en það. 

Norðanáttin í Reykjavík er skrýtin skepna - samanburður á flugvelli og Veðurstofutúni sýnir að síðarnefndi staðurinn sleppur oft við þær slæmu norðanáttir sem plaga flugvöllinn, miðbæinn og þau hverfi sem vestar liggja. Vindstyrkur sveiflast mjög - sérstaklega á þessu svæði - rétt eins og við sjáum á vindritinu hér að ofan. Norðanfossinn af Esjunni nær mjög oft að Geldinganesi og nágrenni - en ekki svo oft niður í Ártúnsholt og sjaldan í Selás og Breiðholt.  

Slide8

Í norðanáttum hegðar loftþrýstingur í Reykjavík sér oft mjög einkennilega - sérstaklega ef vindurinn á uppruna sinn í hærri röstum. Háloftaathuganir í Keflavík sýna að í þessu tilviki var vindhraði í hámarki í 400 hPa eða ofar (líklega við veðrahvörf - en þá athugun vantar - minni vindur var svo í heiðhvolfi). Í 400 hPa var hann 39,5 m/s á hádegi þann 29. - en var þá farinn að ganga niður í neðstu lögum - líka í Reykjavík. 

Á þrýstiritinu hér að ofan má sjá stórar sveiflur ganga yfir - þetta er reyndar mest um það leyti sem vindur tók dýfuna niður fyrir 10 m/s og svo upp aftur. Einhverjar bylgjur eru að fara yfir - stórar bylgjur þar sem lóðrétt hreyfing lofts er mjög mikil. Orðið „þyngdarbylgja“ er oft notað - en ritstjóri hungurdiska vill frekar nota „flotbylgja“ - er það einkum vegna þess að fyrra orðið er einnig notað um fyrirbrigði allt annars eðlis (bylgjur í þyngdarsviðinu sjálfu). 

Það er sum sé skoðun ritstjórans að þetta ákveðna norðanveður sé drifið af háloftavindröstinni. - Norðanfárviðri sem fjallað er um í næsta pistli er það hins vegar ekki - það er stífluveður - þykktarröst stýrði því. 

En tjón varð nokkuð í þessu veðri þótt skammvinnt væri. 

Mest var það á höfuðborgarsvæðinu, m.a. flettist þakklæðning af stórum hluta Tónabíós, loka varð Miklubraut um stund sökum járnplötufoks. Rúður brotnuðu viða, reykháfur hrundi og bárujárnsgirðing fauk. Litlar trillur sukku, önnur í Reykjavíkurhöfn en hin á Fossvogi. Mótauppsláttur fauk í Vestmannaeyjum, bíll fauk af vegi hjá Kiðafelli í Kjós og fleiri bílar lentu í vandræðum í Hvalfirði. Boltar brotnuðu í spennivirki á Geithálsi svo rafmagnslaust varð um tíma í Reykjavík.  Rúður fuku úr gróðurhúsum í Mosfellssveit. Uppsláttur fyrir stórri hlöðu og jarðýtuvagn fauk undir Eyjafjöllum. Mikið af grásleppunetum eyðilagðist á Bakkafirði í brimi. 

Mjög lúmskt allt saman. 


Hlýjustu októbermánuðirnir

Eins og alloft hefur verið fjallað um á hungurdiskum áður er október sá af mánuðum ársins sem minnst hefur vitað af núverandi hlýskeiði á Íslandi - alveg á skjön við flesta aðra. Við skulum rifja upp mynd sem áður birtist í pistli sem dagsettur er 9. febrúar 2016.

w-blogg100216a

Hér má sjá 30-ára keðjumeðaltöl hita í janúar (blár ferill) og október (rauður ferill) í Stykkishólmi. Lóðrétti ferillinn til vinstri er fyrir janúarhitann - en hægri kvarðinn fyrir október - það munar 5,5 stigum á meðalhita mánaðanna. 

Janúarhitinn er kominn langt fram úr hitanum á 20.aldarhlýskeiðinu - en október er ekkert hlýrri en hann var fyrir hundrað árum - sýndi þó mjög góðan sprett sem náði hámarki á árunum 1836 til 1965. Hvernig á þessu stendur veit víst enginn - hægt er að giska en hvort eitthvað vitlegt kemur út úr því er annað mál. 

En lítum nú á lista sem sýnir hæstu októbermeðalhitatölurnar - fyrst lítum við á sjálfvirku stöðvarnar. Þær sýna vel samkeppnisstöðuna síðustu 15-20 árin eða svo.

röðstöðármánmhiti nafn
1361322001109,17 Steinar
260122010108,10 Surtsey
3361272010108,08 Hvammur
4361322007107,91 Steinar
514532010107,84 Garðskagaviti
5361322000107,84 Steinar
7353052001107,77 Öræfi
860152010107,66 Vestmannaeyjabær
9361322010107,58 Steinar
10361322006107,54 Steinar

Hér er vegagerðarstöðin á Steinum undir Eyjafjöllum á toppnum með 9,2 stig (annar aukastafur er okkur til skemmtunar), langt fyrir ofan annað sætið, 8,1 stig í Surtsey í október 2010. Fyrstu ár athugana á Steinum eru reyndar grunsamlega hlý - miðað við aðrar stöðvar þannig að vel má vera að 9,2 stigin séu aðeins of há. - En þar til málið hefur verið athugað nánar skulum við láta kyrrt liggja. Við sjáum þó að október 2010 kemur vel út. 

Á samskonar topp-tíu lista mannaðra stöðva vekur hins vegar athygli að þar er ekkert ár eftir 1959. 

röðstöðármánmhiti nafn
19851946108,61 Reykjanesviti
21031959108,57 Andakílsárvirkjun
36151908108,47 Seyðisfjörður
48161915108,42 Vestmannaeyjabær
52201959108,35 Lambavatn
69831946108,31 Grindavík
78011959108,26 Loftsalir
84771946108,15 Húsavík
98161908108,12 Vestmannaeyjabær
101711946108,09 Hellissandur

Hlýjastur allra er október 1946 á Reykjanesvita - þótt athuganir hafi ekki verið í besta lagi þar um slóðir þetta ár var greinilega mjög hlýtt - þessi sami mánuður í Grindavík er í 6. sæti á listanum, aðeins 0,3 stigum neðar, og síðan er þetta líka metmánuður á Húsavík og á Hellissandi. Talan úr Andakílsárvirkjun 1959 ætti að vera sæmilega áreiðanleg, Seyðisfjörður 1908 hins vegar í tæpara lagi hvað áreiðanleika snertir. Við teljum hins vegar Vestmannaeyjabæ í lagi bæði 1915 og 1908. 

Í viðhenginu er svo listi sem sýnir hvaða mánuður er hlýjastur októbermánaða á öllum veðurstöðvum - athugið þó að sumar hafa aðeins athugað í örfá ár. Á landinu í heild telst október 1915 hlýjastur allra októbermánaða - en þónokkur óvissa fellst í þeim reikningum. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Októberhámörk - nokkrir nördamolar

Það er ekki oft sem hiti fer yfir 20 stig hér á landi í október. Það hefur þó gerst hátt í 10 sinnum - og þá jafnvel á nokkrum stöðvum í senn sama daginn. Listinn hér að neðan nefnir þær stöðvar sem náð hafa þessum merka árangri. Þetta er toppurinn á langri, feitri töflu í viðhenginu sem nördin geta litið á, og sýnir hæsta hita í október á öllum veðurstöðvum. 

Stöðvar á norðanverðum Austfjörðum og í Vopnafirði eru líklegastar til að ná 20 stigunum. Þau 22 stig sem þarna má sjá tvítekin á Seyðisfirði trompa fáein Seyðisfjarðartilvik til viðbótar, lægri, en samt yfir 20 stiga mörkunum. 

stöðmetármetmándagurklsthámark °Cnafn
6201973101623,5 Dalatangi
4193200310261122,6 Dalatangi - sjálfvirk stöð
5990200310261022,3 Neskaupstaður
61519731022122,0 Seyðisfjörður
615198510142122,0 Seyðisfjörður
62519921072121,7 Neskaupstaður veðurfarsstöð
4472200310261621,5 Bjarnarey
5981200310261221,3 Eskifjörður
52519921071821,2 Vopnafjörður
5975200310261421,1 Kollaleira
4180200710191121,0 Seyðisfjörður-Vestdalur
63519851015920,9 Kollaleira
445520071019920,6 Skjaldþingsstaðir
4021973101920,2 Siglunes
35315200310261320,2 Kvísker Vegagerðarstöð
52720071019920,2 Skjaldþingsstaðir
5801973102920,0 Hallormsstaður

Á listanum má sjá ártölin 1973 og 2003 koma fyrir hvað eftir annað. Þá komu sérlega hlýir dagar. 

Við getum litið á kort til að sjá hvað var á seyði.

w-blogg091016c

Hér er hæðar- og þykktarkort metdaginn 1. október 1973 - þykktin yfir Austurlandi slær yfir 5580 metra - þætti bara gott um hásumar.

w-blogg091016d

Þetta er 26. október 2003 - ámóta hámarkagæfur dagur. Þykktin slær líka yfir 5580 metra yfir Austurlandi. 

Þetta eru greinilega náskyld tilvik - ofboðslega hlýtt loft langt úr suðri - mjög hvass vindur í lofti og að auki hæðarsveigja á jafnhæðarlínum. Síðara tilvikið er enn óvenjulegra en hið fyrra að því leyti að það er miklu seinna í mánuðinum. 

Hin tilvikin í töflunni hér að ofan eru ekki ósvipuð að uppruna. Flettingar sýna að þykkt sem þessi er mjög sjaldséð hér við land í október. Bandaríska endurgreiningin (sem að nafninu til nær aftur til 1871) nefnir aðeins 3 tilvik með meiri þykkt en hún var 2003 (þá 5590 m). - Mest 5610 m, 4. október 1944, og 5600 m 1. október 1932 og 6. október 1945. Svo eru 5. október 1957 og 6. október 1959 jafnháir 1.október 1973, 5580 m. Þar rétt hjá eru líka 7. október 1879 og 4. október 1915. 

Þau nörd sem haldin eru mestu flettifíkninni geta fundið að sumar (ekki allar) þessar dagsetningar koma fyrir í stöðvametalistunum - þær eiga met á nokkrum stöðvum - meira að segja fáeinum sem störfuðu lengi. [Um að gera að fletta] En þetta sýnir að eitthvað vit er þrátt fyrir allt í endurgreiningunum. 

Nokkrar líkur (ekki miklar) eru á því að þetta hlýtt loft geti borist til okkar úr annarri átt heldur en suðvestri eða suðri. Austanátt er alveg hugsanleg - en sjaldgæft mun það vera að henni fylgi þá hentugur vindur og hæðarsveigja (þurrt veður). Þegar það loksins gerist mun hreinsa vel til í októberhitametum á Suðvesturlandi. - Ó, hvar er sá dagur? 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Bloggfærslur 9. október 2016

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 215
  • Sl. viku: 1331
  • Frá upphafi: 2349800

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 1216
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband